1.Landmannaafréttur - Umsókn um byggingarleyfi (vinnubúðir Landsvirkjunar v. stækkunar Sigöldu) - Flokkur 2
Málsnúmer 2607054Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Anne Bruun Hansen, fh. Landsvirkjunar, um byggingarleyfi fyrir vinnubúðum, mhl. 01-05, alls 1.545,5 m², með gistirýmum, aðstöðurýmum og skrifstofum fyrir starfsfólk á Landmannaafrétti, í tengslum við stækkun Sigölduvirkjunar, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 14.7.2026. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 16.9.2026.
2.Flagbjarnarholt lóð (L175637) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 2609028Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Björgvins Snæbjörnssonar, fh. Gréars Árnasonar, um byggingarheimild fyrir þegar byggðu 21,5 m² gestahúsi úr timbri á sumarhúsalóðinni Flagbjarnarholt lóð, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 14.9.2026.
Byggingarfulltrúi synjar umsókn um byggingarheimild þar sem framlagt mannvirki uppfyllir ekki kröfur byggingarreglugerðar um hámarks U-gildi einstakra byggingarhluta. Jafnframt er uppbygging þaks, samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum, ekki talin hæfa tilgreindum þakhalla.
Mannvirkið uppfyllir því ekki þær kröfur sem gerðar eru til útgáfu byggingarheimildar.
Mannvirkið uppfyllir því ekki þær kröfur sem gerðar eru til útgáfu byggingarheimildar.
3.Urriðabakki - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2609036Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið tilkynningu Friðriks Ólafssonar, fh. Sigríðar Helgu Heiðmundsdóttur, um tilkynningarskylda mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarheimild eða byggingarleyfi. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi og lögnum í 229,2 m² gistihúsi, mhl. 02, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 17.9.2026.
Byggingarfulltrúi synjar erindinu þar sem mannvirkið fellur í notkunarflokk 4. Fyrirhugaðar breytingar á innra skipulagi og lögnum teljast því til mannvirkjagerðar í umfangsflokki 2 og eru háðar byggingarleyfi. Umsækjanda er bent á að leggja inn umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
4.Bjóla 1 165360 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Málsnúmer 2607004Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar Hjaltasonar, fh. Sæmundar B. Ágústssonar, um byggingarheimild til byggingar 3.706,6 m² fjóss á jörðinni Bjólu, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Eflu, dags. 1.7.2026. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 21.9.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.

5.Sigölduvirkjun, vinnubúðir. Ístak. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis fyrir vinnubúðir Ístaks vegna stækkunar Sigöldustöðvar í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 10.09.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Málsetja þarf stærðir björgunaropa á grunnmyndum.