11. fundur 30. september 2026 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hjartarstaðir (Hagi v/Selfjall 2) - Flokkur 2

Málsnúmer 2605075Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Róberts Orra Brooks Skúlasonar um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar sumarhúss í íbúðarhús á Hjartarstöðum (L176252), samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Svövu Bjarkar Jónsdóttur, dags. 10.9.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Ketilsstaðir lóð 22 (L165237) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2609046Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Óskars Júlíusar Bjarnarsonar um byggingarheimild vegna stækkunar sumarhúss á lóðinni Ketilsstaðir lóð 22, sem eftir stækkun verður alls 76,6 m² að stærð, samkvæmt aðaluppdráttum Sveins Hallgrímssonar, dags. 11.9.2022.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Afstöðumynd er ófullnægjandi. Staðsetja skal húsið á afstöðumynd með fullnægjandi hætti.
Gera skal grein fyrir björgunaropi frá svefnherbergi.
Gera skal grein fyrir staðsetningu handslökkvitækis á grunnmynd.

3.Galtalækur 2, L192113. Ragnar Glamp ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2609041Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Renars Indrikson fyrir hönd Ragnars Glamps ehf., kt. 610525-0830 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" Minna gistiheimili að Galtalæk 2, rýmisnúmer 320101 fyrir 6 gesti og rýmisnúmer 330101 fyrir 9 gesti, í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 21.9.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn um erindið að svo stöddu þar sem fyrir liggur að a.m.k. annað þeirra mannvirkja sem umsóknin tekur til er ekki í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og skráningu þess.
Jákvæð umsögn verður því ekki veitt fyrr en sýnt hefur verið fram á að mannvirkin og fyrirhuguð notkun þeirra samræmist samþykktum aðaluppdráttum og skráningu.

4.Galtalækur 2, L192113. Ragnar Glamp ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Renars Indrikson fyrir hönd Ragnars Glamps ehf., kt. 610525-0830 um starfsleyfi til reksturs gististaðar í tveimur húsum á Galtalæk 2 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 22.09.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn um erindið að svo stöddu þar sem fyrir liggur að a.m.k. annað þeirra mannvirkja sem umsóknin tekur til er ekki í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og skráningu þess.
Jákvæð umsögn verður því ekki veitt fyrr en sýnt hefur verið fram á að mannvirkin og fyrirhuguð notkun þeirra samræmist samþykktum aðaluppdráttum og skráningu.

5.Ægissíða 7, L218360. Skuggasíða ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2609047Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Ævars Svans Sigurðsson fyrir hönd Skuggasíðu ehf., kt. 640622-0320 um starfsleyfi til reksturs gististaðar, rýmisnúmer 020101 við Ægissíðu 7, fyrir 2 gesti í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 26..0.2026. Ítrekuð beiðni 27.09.2026
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.