35. fundur 26. mars 2025 kl. 08:15 - 10:50 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir formaður
  • Eggert Valur Guðmundsson varaformaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Eydís Þ. Indriðadóttir varamaður Ingvars P. Guðbjörnssonar boðaði forföll.

Formaður lagði til að við dagskrána myndi bætast við tvö mál, liður 2, beiðni um afnot af útivistarsvæðinu í Nesi til tónleikahalds á sumarsólstöðum og liður 22, umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Suðurlandi um rekstrarleyfi vegna Þrúðvangs 6. L164926. Stracta Hótel Mosfell ehf.

Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.

Björk Grétarsdóttir mætir sem áheyrnarfulltrúi á fundinn kl. 9:00.

1.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40

2503003F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Farið yfir verkferla við ákvarðanir um umferðaröryggismál. Bókun fundar Lagt fram til kynninngar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Farið yfir stöðu einstakra skipulagsmála. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Fundarfólki kynnt staða lóðamála. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin áréttar að núverandi kvöð um lagnir og umferðarrétt að hreinsivirki sveitarfélagsins verði viðhaldið og að göngustígur meðfram árbakka skerðist ekki við fyrirliggjandi áform. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa jafnhliða að gera tillögu að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem núverandi frístundasvæði F29 í aðalskipulagi verði breytt í íbúðasvæði. Nefndin vill benda á að gæði vegar og vegtenginga uppfylli skilyrði Vegagerðarinnar um héraðsvegi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og unmferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsing verði sérstaklega gerð áberandi á heimasíðu sveitarfélagsins og tengdum miðlum þess, auk birtingar í skipulagsgátt og í staðarblaði.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
    Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en telur ekki ástæðu til grenndarkynningar þar sem breytingin hefur engin áhrif á aðra en umsækjanda.

    Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan verði jafnframt kynnt Ásahreppi vegna tengsla við sveitarfélagamörk.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu fyrir lóð Landsvirkjunar en telur eðlilegast að breyting á deiliskipulaginu verði gerð samhliða fyrir lóð nr. 2b og óskar eftir að endanleg tillaga taki mið af því. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að fresta erindinu að sinni. Nefndin telur að skilgreina þurfi betur núverandi byggingar á svæðinu og aðkomuleiðir að fyrirhuguðum byggingum áður en hún verður auglýst. Samræma þarf fram lögð gögn í samræmi við núgildandi deiliskipulag og skipulagsreglugerð Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • 1.22 2311053 Hverfisskipulag
    Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir lýsinguna til kynningar og leggur til að hún verði auglýst skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningin standi frá og með 27. mars til og með 10. apríl og verði auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins auk þess að vera sett í Skipulagsgáttina. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 40 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

2.Beiðni um afnot af útivistarsvæðinu í Nesi til tónleikahalds á sumarsólstöðum.

2503016

Á fundinn mætir Bjarki Eiríksson og gerir grein fyrir beiðni um afnot af útivistarsvæðinu í Nesi til tónleikahalds á sumarsólstöðum 21. júní n.k. Fram kemur að gert sé ráð fyrir órafmögnuðum fjölskyldutónleikum sem myndi standa frá ca. 18.00-21:00.

Byggðarráð leggur til að samþykkja erindið fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að viðburðurinn verði kynnt vel.

Samþykkt samhljóða.

3.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2025

2502051

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstaryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar-febrúar.

Lagt fram til kynningar.

4.Starfsskýrsla 2024 - Byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings

2502086

Byggðarráð leggur til að fresta málinu til næsta reglulega byggðarráðsfundar.

Samþykkt samhljóða.

5.Grænir iðngarðar á Strönd

2410016

Byggðarráð leggur til að fresta málinu til næsta reglulega byggðarráðsfundar.

Samþykkt samhljóða.

6.Hús frítímans

2502072

Lagt fram minnisblað byggðarþróunarfulltrúa, þar sem kynntar eru hugmyndir um "Hús frítímans" í Rangárþingi.

Stefán Friðrik Friðriksson, byggðaþróunarfulltrúi fer yfir minnisblað og upplýsingar varðandi mögulegt "Hús frítímans" í Rangárþingi ytra. Byggðarráð þakkar Stefáni fyrir kynninguna og felur honum að vinna áfram að málinu svo sem með þarfagreiningu og samráði við hagaðila.

Samþykkt samhljóða.

7.Starfslýsingar skrifstofu

2501082

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.

8.Trúnaðarmál

2501031

Fært í trúnaðarmálabók

9.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi

2209059

Lagt fram minnisblað frá Tómasi Hauki Tómassyni forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs varðandi niðurstöðu verðkönnunar í málingavinnu við 2. áfanga.

Lagt er til að semja við lægstbjóðanda sem er, Þröstur Júlíusson/Málning-verk ehf að fjárhæð kr. 24.395.2680, sem er 78% af kostnaðaráætlun og sveitarstjóra falið að undirita samning við viðkomandi aðila.

Samþykkt samhljóða.

10.Jafnlaunavottun 2025-2028 - tilboð frá vottunaraðilum

2503028

Lögð fram tilboð frá þremur aðilum í jafnlaunavottun fyrir sveitarfélagið næstu þrjú árin.

Lagt er til að semja við lægstbjóðanda iCert ehf. Tilboðið hljóðar upp á kr. 296.000 á ári. Sveitarstjóra falið að undirita samning við viðkomandi aðila.

Samþykkt samhljóða.

11.Flóahreppur. Sundkennsla.

2411049

Lagðir fram minnispunktar sveitarstjóra með skólastjórum og forstöðumanni íþróttamannvirkja vegna beiðni Flóahrepps.

Byggðarráð leggur til að gerður verði formlegur samningur við Flóahrepp um afnot af sundlaugum sveitarfélagsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

12.Samningar um refa- og minkaveiði

2502004

Lögð fram umsókn Páls Jóhannssonar um að gerður verði samningur vegna refa- og minkaveiði í fyrrum Rangárvallahrepp í kjölfar auglýsingar.

Byggðarráð leggur til að að sveitarstjóra verði falið að vinna drög að samningi við Pál Jóhannsson og endurnýjun á öðrum samningum sveitarfélagsins við refa- og minkveiðimenn sveitarfélagsins og leggja fram á næsta reglulega fundi byggðarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Björk víkur af fundi við meðferð málsins.

13.Skráning fjarvista starfsfólks Odda bs. og Rangárþings ytra á vinnutíma

2502077

Lögð fram tillaga um reglur um skráningu fjarvista starfsfólks Rangárþings ytra á vinnutíma.

Byggðarráð leggur til að reglurnar verði samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

14.Fatastyrkur. Reglur.

2501036

Lögð fram tillaga um reglur um greiðslu fatastyrks til þess starfsfólks Rangárþings ytra sem á rétt á þeim skv. kjarasamningum.

Byggðarráð leggur til að reglurnar verði samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

15.Fundur með sveitarstjórn. Landsvirkjun.

2503049

Byggðarráð þakkkar boðið og felur sveitarstjóra að finna heppilegan tíma.

Samþykkt samhljóða.

16.Hagabraut, Landvegur - Reiðholt. Framkvæmdaleyfi

2503021

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til styrkingar og lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti. Að auki verði farið í lagfæringar á vegstæði og tengingum á nokkrum stöðum. Samhliða verði farið í aukningu vegskeringa á völdum stöðum til að auka umferðaröryggi. Sett verði upp búfjárræsi á þremur stöðum. Efni úr skeringum verður notað til vegagerðarinnar en til viðbótar verður efni nýtt úr námu í landi Varghóls, E26. Álit Skipulagsstofnunar frá 2. ágúst 2024 liggur fyrir þar sem viðkomandi framkvæmd skal ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Byggðaráð samþykkir að útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurbóta og styrkinga á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði sett af stað. Byggðaráð heimilar skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Nefndin vill árétta að öll efnistaka úr námum er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar og að auki starfsleyfis frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands ef og þegar um sölu efnis er að ræða.

Samþykkt samhljóða.

17.The Rift 2025 - hjólreiðakeppni

2503055

Lögð fram beiðni frá Lauf Cycles hf. um leyfi fyrir The Rift 2025 - Hjólreiðakeppni-, þann 19.júlí n.k.

Byggðarráð leggur til að samþykkja beiðnina fyrir sitt leyti en hvað varðar lokun vega þarf að leita samþykkis Vegagerðarinnar. Verði lokun heimiluð gerir sveitarfélagið ekki athugasemdir við það svo framarlega að samráð verði haft við rekstaraðila á svæðinu og lokunin verði vel kynnt.

Samþykkt samhljóða.

18.Umsókn um styrk vegna æfingaferðar ungmennis 2025

2503040

Guðlaug Berglind Guðgeirsdóttir óskar eftir styrk fyrir dóttur sína vegna þátttöku hennar vegna æfingaferðar í frjálsum íþróttum til Tenerife á Spáni 13.-23 apríl n.k.

Byggðarráð leggur til að samþykktur verði styrkur kr. 45.000 í samræmi við reglur sveitarfélagsins um slíka styrki.

Samþykkt samhljóða.

19.Styrkveiting á móti álögðum fasteignaskatti. Golfklúbburinn Hellu

2503014

Golfklúbbur Hellu óskar eftir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2025 vegna golfskála og geymslu.

Byggðarráð leggur til að samþykkja styrkinn skv. gildandi reglum sveitarfélagsins um slíka styrki.

Samþykkt samhljóða

20.2025 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis

2503012

Umsagnarbeiði Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Borgarstefnu, tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um vernd og orkunýtingu landsvæða og rannsóknir á jarðlögum og hafsbotni á fyrirhugaðri gangaleið milli lands og Vestmannaeyja.
Lögð fram umsögn sveitarstjórnar vegna tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um vernd og orkunýtingu landsvæða. Að öðru leyti er málið til kynningar.

21.Sörlatunga 11. L232240. Lúxus Ævintýrareisur ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2503011

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ólafs Helga Þorgrímssonar, fyrir hönd Lúxus Ævintýrareisur ehf., kt. 560103-2390 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki lV-tegund C "minna gistiheimili"á lóðinni Sörlatungu 11. L232240, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 05.03.2025.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

22.Þrúðvangur 6. L164926. Stracta Hótel Mosfell ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfi

2408026

Sýslumaður Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hreiðars Hermannssonar, kt. 020648-4069 fyrir hönd Stracta Hotel Mosfell ehf., kt. 470406-0380 um reksrarleyfis fyrir reksturs gististaðar í flokki ll, stærra gistiheimili á lóðinni Þrúðvangi 6, L164926 , Rangárþingi ytra. Umsókn barst 14.08.2024.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

23.Fundargerðir stjórnar SÍS - 2025

2502008

Fundargerð 972. stjórnarfundar.
Lagt fram til kynningar.

24.Fundargerðir 2025 - Samtök orkuveitarfélaga

2501069

Fundargerð 81. stjórnarfundar.
Lagt fram til kynningar.

25.Aðalfundur Veiðifélag Þjórsár 2025

2502085

Aðalfundarboð 28. mars n.k.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:50.