1.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49
2508005F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum á svæðinu. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð tekur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að aðkoma breytist frá því sem fyrir liggur. Nefndin leggur til að aðkoman verði tekin inn á núverandi veg u.þ.b. 200 metrum frá lóðamörkum en leggist ofan / austan lóðarinnar, inn að miðju hennar og þar inn. Allur stofnkostnaður og viðhald leggist á umsækjanda. Nefndin setur það sem skilyrði að ef umrædd tenging geti nýst öðrum lóðarhöfum í framtíðinni verði það heimilt. Jafnframt áskilur sveitarfélagið sér rétt til að endurskoða legu vegarins ef sveitarfélagið kýs að nýta landið til annarra nota en er í dag. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi á kostnað umsækjanda þar sem ný aðkoma verði skilgreind. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að útbúa yfirlitskort af öllum leiðum og setja inn á kortasjánna. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Hafin er vinna við að kortleggja allar hraðahindranir og mun sú samantekt verða lögð fram á næsta fundi nefndarinnar með það fyrir augum að hvert tilfelli verði metið í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar þar um.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd hvetur framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að ganga frá þeim málum sem þegar hafa verið ákveðin á vettvangi stjórnsýslunnar Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt og málið verði tekið til umræðu í framkvæmda- og eignanefnd.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Borið hefur á að skilti hafi verið sett upp í þéttbýlinu á Hellu án þess að sótt hafi verið um slíkt. Byggingarfulltrúa verði gert að bregðast við því. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd tekur fyrir kvörtun sem borist hefur vegna aksturs ökutækja á göngu- og hjólastíg sem liggur yfir hólinn við enda Freyvangs/ofan Heiðvangs í átt að Hesthúsvegi/Eyjasandi. Í kvörtuninni kemur fram að gangandi vegfarandi hafi mætt þar jeppabifreið á akstri með kerru, sem skapaði hættu fyrir gangandi vegfarendur. Ökumaður bifreiðarinnar, virtist vera að stytta sér leið frá Freyvangi með rusl á kerru á leið sinni að grenndargámasvæði.
Umferð ökutækja á göngu- og hjólastígum er bönnuð samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019 og slík háttsemi getur varðað sektum. Nefndin tekur málið alvarlega og leggur áherslu á að stígurinn var upphaflega lagður með það að markmiði að bæta öryggi barna á leið sinni frá íbúðahverfinu í Ölduhverfi til og frá grunnskóla Hellu og íþróttasvæði þorpsins.
Tillögur nefndarinnar
Nefndin telur brýnt að gripið verði til eftirfarandi aðgerða til að tryggja öryggi vegfarenda á svæðinu:
1.
Stígurinn verði kláraður að Heiðvangi með malbikun í samræmi við umsókn og gögn sem fylgdu framkvæmdaleyfi göngustígarins fyrir um ári síðan. Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins annist það sérstaklega fyrir haustið og verði það framkvæmt meðfram öðrum malbikunarframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í september.
2.
Bætt verði við lýsingu við stíginn.
3.
Öryggisbætur á stígnum verði gerðar, þar á meðal frágangur á grófri möl meðfram stígnum, og gripið verði til aðgerða gegn hálku og vatnssöfnun á bröttum og hlykkjóttum köflum.
4.
Settar verði viðeigandi umferðarmerkingar sem árétta að stígurinn er eingöngu ætlaður gangandi og hjólandi vegfarendum.
5.
Koma verði fyrir hindrunum sem tryggja að bifreiðar geti ekki farið þessa leið.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur ríka áherslu á að sveitarfélagið bregðist við framangreindum atriðum til að tryggja öryggi allra vegfarenda, sérstaklega barna.
Bókun fundar Lagt til að vísa málinu til framkvæmda- og eignanefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd telur sýnd staðsetning henta mun betur en sú fyrri. Nefndin leggur áherslu á að Flugmálafélag Íslands skili til sveitarfélagsins þeim upplýsingum sem þeir voru beðnir um á fundi 24. mars 2025, sem taka eiga á framtíðarsýn flugvallarins á Hellu. Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Farið var yfir áherslur og möguleika til að gera Grashagann að eftirsóknarverðum kosti fyrir ferðaþjónustu. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið en telur það ekki samræmast fjárhagsáætlun viðkomandi sviðs og leggur til að ákvörðun bíði næstu fjárhagsáætlunar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
2.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2025
2502051
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstaryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar-júlí.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.Tilboð í vátryggingar
2508032
Lagt fram tilboð frá Consello ehf um ráðgjöf og umsjón með útboði í vátryggingar sveitarfélagsins og byggðarsamlaga.
Byggðarráð samþykkir að fara í útboð á vátryggingum og leggur til að sveitarstjóra verði falið að ganga frá samningi við Cosello ehf um verkið.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð samþykkir að fara í útboð á vátryggingum og leggur til að sveitarstjóra verði falið að ganga frá samningi við Cosello ehf um verkið.
Samþykkt samhljóða.
4.Trúnaðarmál
2508058
Fært í trúnaðarmálabók.
5.Íþrótta- og útivistasvæði á Hellu. Hönnun
2508043
Lögð fram vinnugögn sem unnin voru vegna hugmyndina um nýtingu á nýju íþróttavallasvæði á Hellu.
Byggðarráð leggur til að málinu verði vísað til framkvæmda- og eignanefndar til úrvinnslu.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til að málinu verði vísað til framkvæmda- og eignanefndar til úrvinnslu.
Samþykkt samhljóða.
6.Norður Nýibær. Fyrirspurn um lækkun gatnagerðargjalda
2507032
EFLA fyrir hönd eiganda Norður Nýjabæjar í Þykkvabæ leggur fram beiðni um lækkun fyrirhugaðra gatnagerðargjalda vegna áforma um uppbyggingu á svæðinu.
Byggðarráð leggur til að veittur verði 75% afsláttur af gatnagerðargjöldum með vísan til 4 gr. samþykktar um byggingargjöld í Rangárþingi ytra fyrir áfanga 1 og 2 í samræmi við fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun. Jafnframt verði heimilt að áfangaskipta greiðslum gjaldanna í samræmi við uppbyggingu svæðisins. Gangi þau framkvæmdaáform eftir er lagt til að veittur verði sambærilegur afsláttur vegna síðari áfanga verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til að veittur verði 75% afsláttur af gatnagerðargjöldum með vísan til 4 gr. samþykktar um byggingargjöld í Rangárþingi ytra fyrir áfanga 1 og 2 í samræmi við fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun. Jafnframt verði heimilt að áfangaskipta greiðslum gjaldanna í samræmi við uppbyggingu svæðisins. Gangi þau framkvæmdaáform eftir er lagt til að veittur verði sambærilegur afsláttur vegna síðari áfanga verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
7.Gaddstaðir 1B, L164597. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
2508013
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Samúels Arnar Erlingssonar fyrir hönd Tals og tóna ehf. kt. 670807-1420 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "H" Frístundahús á lóðinni Gaddstaðir 1B, L164597, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 30.07.2025.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
8.Hagi 2b, L193194. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
2508011
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hannesar Þrastar Hjartarsonar fyrir hönd Hagabúsins ehf. kt. 540797-2349 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" Minna gistiheimili á lóðinni Hagi 2b, L193194, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 30.07.2025.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
9.Laxalodge, Riverfront, Rangá veiðhús, L198604. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
2508009
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Jakobs Milli Sæmundssonar um starfsleyfi fyrir gistingu á lóðinni Rangá veiðihús, L198604, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 29.07.2025.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
10.Króktún, L175238. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis.
2508010
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ingvars K. Guðmundssonar fyrir hönd Króktúns ehf. kt. 640523-1150 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "H" Frístundahús á lóðinni Króktún, L175238, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 29.07.2025.
Lagt er til að byggðarráð gefi neikvæða umsögn við veitingu á rekstrarleyfi til félagsins Króktúns ehf fyrir gistingu í flokki II á gististað í Króktúni í Rangárþingi ytra þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðs landbúnaðarsvæðis í sveitarfélaginu nema föst búseta sé á viðkomandi fasteign. Að auki er enginn skráður með fast aðsetur eða lögheimili á lóðinni.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð gefi neikvæða umsögn við veitingu á rekstrarleyfi til félagsins Króktúns ehf fyrir gistingu í flokki II á gististað í Króktúni í Rangárþingi ytra þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðs landbúnaðarsvæðis í sveitarfélaginu nema föst búseta sé á viðkomandi fasteign. Að auki er enginn skráður með fast aðsetur eða lögheimili á lóðinni.
Samþykkt samhljóða.
11.Bjallabrún, L228760. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
2506056
Sýslumaður á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Gísla Heiðars Bjarnasonar um rekstrarleyfi fyrir gistingu á Lóðinni Bjallabrún L228760, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 30.05.2025. Breytt var síðan umsókn fyrir gistingu úr 6 manns, í 8 manns.
Lagt er til að byggðarráð gefi neikvæða umsögn við veitingu á rekstrarleyfi til Gísla Heiðars Bjarnasonar fyrir gistingu á lóðinni Bjallabrún Rangárþingi ytra þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagra landbúnaðarsvæðis í sveitarfélaginu nema föst búseta sé á viðkomandi fasteign. Að auki er viðkomandi húsnæði skráð sem sumarhús í fasteignaskrá HMS og uppfyllir sú skráning ekki skilyrði um skráningu lögheimilis.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð gefi neikvæða umsögn við veitingu á rekstrarleyfi til Gísla Heiðars Bjarnasonar fyrir gistingu á lóðinni Bjallabrún Rangárþingi ytra þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagra landbúnaðarsvæðis í sveitarfélaginu nema föst búseta sé á viðkomandi fasteign. Að auki er viðkomandi húsnæði skráð sem sumarhús í fasteignaskrá HMS og uppfyllir sú skráning ekki skilyrði um skráningu lögheimilis.
Samþykkt samhljóða.
12.Fundargerðir Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar 2025
2508057
Fundargerð 9. fundar frá 11. ágúst s.l.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.Fundargerðir 2025 - Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
2501049
Fundargerð 246. fundar stjónrar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.Fundargerðir stjórnar SASS - 2025
2502012
Fundargerð 624. fundar stjórnar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.Tindaselsvegur - Tilkynning Vegagerðarinnar um niðurfellingu
2507021
Lagt fram til kynningar.
16.Hróarslækjavegur - Tilkynning Vegagerðarinnar um niðurfellingu
2507020
Lagt fram til kynningar.
17.Umsagnarbeiðni - Tækifærisleyfi vegna Njáluhátíðar á Rangárbökkum
2508038
Lagt fram til kynningar.
18.Njáluhátíð - Beðni um umsögn vegna tækifærisleyfis
2507049
Lagt fram til kynningar.
19.Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf 2025
2508035
Fundarboð á aðalfund 26. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:45.
Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 2 og 3.