43. fundur 22. október 2025 kl. 08:15 - 10:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir formaður
  • Eggert Valur Guðmundsson varaformaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir varamaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 2 og 3.

1.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53

2510002F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að allar aðkomur að lóðum verði í samræmi við veghönnunar- og öryggisreglur Vegagerðarinnar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Staða mála kynnt Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsókn umsækjanda og telur að gera þurfi breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi vegna fram lagðra áforma. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og verður að breytast í Verslunar- og þjónustusvæði ef áform umsækjanda eiga fram að ganga.
    Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda, á hans kostnað.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsókn umsækjanda og telur að gera þurfi breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi vegna fram lagðra áforma. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og verður að breytast í Verslunar- og þjónustusvæði ef áform umsækjanda eiga fram að ganga.
    Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda, á hans kostnað.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra hefur fjallað um erindi lóðarhafa Kjarröldu 1, Kjarröldu 3 og Lyngöldu 2 um breytingu á deiliskipulagi til fjölgunar íbúða. Nefndin telur að gatan og tengdir innviðir s.s veitur séu ekki hönnuð til að bera þá auknu umferð og bílastæðaþörf sem fjölgun íbúða hefði í för með sér, og að öryggi og gæði umhverfis verði ekki tryggð með fyrirliggjandi gögnum. Þá liggja ekki fyrir rök sem sýna fram á að gildandi deiliskipulag hamli því að bjóða íbúðir sem falli undir reglur um hlutdeildarlán; skilyrðum um lágmarksstærðir og íbúðagerðir verður að mati nefndarinnar unnt að mæta með hönnun innan heimilaðs íbúðafjölda og byggingarmagns. Ekki eru því efni til að víkja frá skipulagsforsendum í þágu tiltekinnar fjármögnunarleiðar. Að þessu virtu er erindinu hafnað. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu með fyrirvara um að skýr aðkoma sé að hverri lóð og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar nefndarinnar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin vill árétta við Vegagerðina að nú þegar liggur fyrir samþykki Vegagerðarinnar fyrir umræddri tengingu rétt austan við hringtorgið. Nefndin tekur undir með Þorsteini Kristinssyni um nauðsyn þess að gera vegamót Suðurlandsvegar og Rangárvallavegar betri en þau eru í dag, en sér ekki fyrir sér að þær lausnir sem bent er á verði að veruleika á næstu árum. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við Vegagerðina um vegtengingu við Suðurlandsveg 2 og frestar afgreiðslu málsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila og telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu. Nefndin leggur því til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Eggert Valur víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin vill árétta að áform um uppbyggingu tjaldsvæðis í samræmi við áform umsækjanda séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu með fyrirvara um að aðkomur verði betur skilgreindar fyrir allar lóðir innan svæðisins. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 53 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

2.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2025

2502051

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstaryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar-september.

Lagt fram til kynningar.

3.Fjárhagsáætlun 2026-2029

2509032

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar 2026-2029 og forsendur fjárhagsáætlunarinnar.

Ákveðið að leggja til við sveitarstjórn að útsvarshlutfall fyrir árið 2026 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra verði 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

4.Endurnýjun á yfirdráttarheimild sveitarfélagsins

2510021

Byggðarráð veitir Jóni G. Valgeirssyni sveitarstjóra heimild til að ganga frá endurnýjun á yfirdráttarheimild sveitarfélagsins hjá Arion banka að hámarki 65 mkr sem gildi út árið 2026.

Samþykkt samhljóða.

5.Samþykkt um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra. Endurskoðun

2308059

Lagðar fram athugasemdir og ábendingar frá Sigurdísi Oddsdóttur og Hrönn Kristey Atladóttur varðandi samþykkt um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra.

Byggðarráð þakkar fyrir ábendingarnar og sveitarstjóra falið að yfirfara samþykktina. Jafnframt er lagt til að farið verði í átak að vekja sérstaka athygli á ákvæðum samþykktarinnar varðandi skráningu hunda og katta í þéttbýlinu á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

6.Ungmennaráð 2024-2026

2410040

Skipan ungmennaráðs
Lagðar fram tillögur um skipan í ungmennaráð 2025-2026.
Grunnskólinn á Hellu -
Aðalmaður: Kristín Birta Daníelsdóttir 10.b.
Varamaður: Emilija Nikole Obrycka, 10.b.

Laugalandsskóli
Aðalmaður: Þorgeir Óli Eiríksson, 9.b.
Varamaður: Eldey Eva Engilbertsdóttir, 9.b.

Einn fulltrúi úr Félagsmiðstöðinni Hellinum.
Aðalmaður: Jóhanna Gerður Hrannardóttir.
Varamaður: Á eftir að tilnefna.

HÍT nefnd:
Eitt ár sem flytast frá fyrra ári:
Aðalmaður: Anna Ísey Engilbertsdóttir
Varamaður: Bragi Valur Magnússon.

Valin í tvö ár:
Aðalmaður: Ómar Azfar Valgerðarson Chattha.
Varamaður: Helga Fjóla Erlendsdóttir.

Lagt til að staðfesta tilnefningarnar.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð leggur jafnframt til að ungmennaráð fjalli um málefni ungs fólks sem innlegg í fjárhagsáætlunargerð.

Samþykkt samhljóða.

7.Kvennaverkfall 50 ára

2510095

Lögð fram tilmæli frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi samstöðufundi undir yfirskriftinni kvennaverkfall, föstudaginn 24. október nk. sem samtök kvenna, launafólks og fl. hagsmunahópar hafa boðað til.

Byggðarráð beinir því til stjórnenda sveitarfélagsins að þau komi til móts við konur og kvár, þar sem því verður við komið og skapi eftir bestu getu aðstæður á starfsstað og í starfsemi til að sem flest komist á boðaða samstöðufundi. Í þeim tilvikum þar sem það er ekki hægt, starfseminnar vegna, er þeim tilmælum beint til stjórnenda að þeir leiti leiða til að konur og kvár geti með öðrum hætti sýnt samstöðu. Byggðarráð leggur því til að þeim stofnunum eða starfsemi sveitarfélagsins sem eru í þessari stöðu loki kl. 13.00.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

8.Gaddstaðavegur

2501031

Lögð fram til kynningar endurskoðuð drög að samningum við Vegagerðina og landeigendur og kostnaðaráætlun frá Vegagerðinni.

Haldinn verður fundur 1. nóvember n.k. með landeigendum, Vegagerðinni og fulltrúum sveitarfélagsins.

9.Vindmyllur Þykkvabæ. Tilfallandi lýsing

2510012

Lögð er fram fyrirspurn af hálfu fulltrúa Qair og Háblæs um heimild til að vindmyllurnar í Þykkvabæ verði lýstar upp á tyllidögum í samráði við íbúa.

Byggðarráð tekur vel í hugmyndina og leggur til að hún verði kynnt fyrir íbúum áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Samþykkt samhljóða.

10.Innleiðing farsældarlaga. Kynning

2509094

Á fundinn mætir Arna Hrönn ný ráðin verktaki hjá Félags- og skólaþjónustuni sem mun stýra innleiðingu á farsældarlögum á svæðinu og kynnir starf sitt. Jafnframt situr fundinn Svava Davíðsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustunnar.

Byggðarráð þakkar Örnu Hrönn fyrir góða kynningu.

11.Stofnun farsældaráðs á Suðurlandi

2510039

Lögð fram drög að samstarfsyfirlýsingu og skipurit fyrir stofnun farsældarráðs fyrir Suðurland.

Lagt til að samþykkja samstarfsyfirlýsinguna og fela sveitarstjóra að undirrita hana.

Samþykkt samhljóða.

12.Fyrirspurn um dæluhús vatnsveitunnar á Hellu

2509086

Lagt fram erindi frá Brynju Rúnarsdóttur varðandi ástand núverandi dæluhús vatnsveitunnar á Hellu við Hólavang.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og leggur til að vísa því til stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.

Samþykkt samhljóða.

13.Ósk um að varðveita gamla vatnsbólið á Hellu

2509085

Lagt fram erindi frá Brynju Rúnarsdóttur varðandi varðveislu á gamla vatnsbólinu á Hellu.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og leggur til að vísa því til vinnu við hönnun á íþrótta- og útivistarsvæðinu á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

14.Fyrirspurn um gamlar mógrafir á Hellu

2509084

Lagt fram erindi frá Brynju Rúnarsdóttur varðandi varðveislu gamallra mógrafna sem eru á svæðinu austan Hólavangs.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og leggur til að vísa því til vinnu við hönnun á íþrótta- og útivistarsvæðinu á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

15.Ósk um beit á túninu norðan Hólavangs

2509083

Lagt fram erindi frá Brynju Rúnarsdóttur um að svæðið austan Hólavangs verði nýtt til beitar hrossa í haust.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við beiðninni enda þar sem önnur áform eru fyrirhuguð á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.

16.Trúnaðarmál

2509072

Fært í trúnaðarmálabók.

17.Íbúafundur

2510020

Lagt til að haldinn verði íbúafundur mánudaginn 1. desember nk.kl. 20:00 í Safnaðarheimilinu á Hellu þar sem áform í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins yrðu kynnt og rætt um framtíðarfyrirkomulag Töðugjalda. Þá er lagt til að fundinum verði streymt.

Samþykkt samhljóða.

18.Óskir frá UMF Heklu um úrbætur í íþróttahúsi

2510018

Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Heklu um úrbætur vegna körfuboltakarfa í íþróttahúsinu á Hellu vegna fjárhagsáætlunar Rangárþings ytra 2026.

Lagt til að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

Samþykkt samhljóða.

19.Styrkbeiðni v fermingarbarna í Vatnaskóg. Æskulýðsnefnd Kirkjna í Rangárvallasýslu

2509058

Lögð fram beiðni Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu um styrk að fjárhæð kr. 145.000 vegna fermingarbarnamóts í Vatnaskógi.

Byggðarráð leggur til að beiðnin verði samþykkt og kostnaður færist á menningarmál.

Samþykkt samhljóða

20.Dagur sauðkindarinnar 2025. Styrkbeiðni

2510013

Lögð er fram umsókn Félags sauðfjárbænda í Rangárvallarsýslu um styrk vegna dags sauðkindarinnar.

Lagt er til að styrkja félagið um kr. 50.000. Kostnaður færist á menningarmál.

Samþykkt samhljóða

21.Aðventuhátíð 2025 - Styrkbeiðni Kvennfélagsins Einingar

2510038

Lögð fram beiðni Kvenfélagsins Einingar um styrk vegna aðventuhátíðar á Laugalandi fyrsta sunnudag í aðventu þann 30. nóvember n.k.

Byggðarráð leggur til að sveitarfélagið leggi kvenfélaginu til húsnæði fyrir hátíðina án endurgjalds og fjárstyrk skv. samningi við félagið. Jafnframt muni starfsmaður aðstoða við framkvæmd viðburðarins.

Samþykkt samhljóða

22.Hugmyndagátt og ábendingar 2025

2506030

Tvö erindi hafa borist í hugmyndagátt á heimasíðu sveitarfélagsins um að selja fyrirtækjum skreytingar á trjám við árbakkann á Hellu og að gamli róluvöllurinn á Hellu verði ekki kallaður "Fúsaróló"

Byggðarráð þakkar fyrir ábendingarnar og felur markaðs- og menningarfulltrúa að skoða hvort raunhæft sé að fyrirtæki styrki skreytingar á tré við árbakkann. Byggðarráð tekur undir þá hugmynd að gamla róluvöllinn á Hellu verði ekki kallaður "Fúsaróló" og leggur til að fundið verði nafn á svæðið sem hentar þeirri starfssemi sem fyrirhuguð er þar.

23.Fögruvellir, L200046. Leiguvík ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2509060

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ólafar Rúnar Tryggvadóttur fyrir hönd Leiguvík ehf ehf. kt. 690515-1050 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Fögruvellir, L200046, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 18.09.2025.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

24.Galtalækjaskógur, Langahlíð, L165042. Vinjar ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2509065

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Guðrúnar Jónsdóttur fyrir hönd Vinja ehf ehf. kt. 440522-2700 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "D" gistiskáli, rýmisnúmer 350101 á lóðinni Galtalækjarskógi, L165042, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 18.09.2025.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

25.Norður- Nýibær, L165410. N66 ehf. Umsagnarbeiðni Samgöngustofu um geymslustað ökutækja

2509079

Samgöngustofa óskar eftir umsögn vegna beiðni Loo Eng Wah fyrir hönd N66 ehf. kt. 541216-1700 um leyfi fyrir geymslustað fyrir tíu ökutæki vegna ökutækjaleigu á lóðinni Norður-Nýibær, L165410, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.09.2025.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.

26.2025 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis

2503012

Umsangarbeiðnir Atvinnuveganefnd Alþingis um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu) og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Lagt fram til kynningar.

27.Fundargerðir stjórnar SÍS - 2025

2502008

Fundargerð 986. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

28.Fundargerðir stjórnar SASS - 2025

2502012

Fundargerð 627. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

29.Vegagerðin. Niðurfelling Tindaselsvegar af vegaskrá

2510043

Lagt fram til kynningar.

30.Vegagerðin. Samþykki fyrir héraðsveg að Giljatungu, L214314 og Skáldakoti L231438

2510042

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:45.