1.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63
2603009F
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að engin þörf sé á grenndarkynningu vegna þessa máls sökum mikillar fjarlægðar frá næstu íveruhúsum, en næsta íbúðrhús er í rúmlega hálfs kílómetra fjarlægð. Nefndin gerir því engar athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi fyrir vðkomandi fóðurturni enda framkvæmdin í samræmi við þá starfsemi sem stunduð er á svæðinu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að þar sem búið er að samþykkja að gera smávægilegar breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir Veiðivötn skuli ekki gerð athugasemd við staðsetningu eða byggingu þessa húss að fengnu samþykki Forsætisráðuneytisins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu vegna þessara breytinga en leggur til að breyting verði gerð á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem lóðin verði færð aftur til íbúðanotkunar. Nefndin telur réttast að bíða með breytinguna þar til ákvörðun um endurskoðun aðalskipulagsins liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að þar sem engar athugasemdir voru gerðar af hálfu hagsmunaaðila í grenndarkynningu skuli veita byggingarleyfi / heimild fyrir áformuðum framkvæmdum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsögn og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið. Nefndin gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar skv. lögum nr. 111/2021. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning standi í a.m.k. 2 vikur. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en málsaðila og sveitarfélagið. Nefndin telur að um sé að ræða skilgreiningu á landnotkun í samræmi við raunverulega notkun fyrir starfsemi sem hefur verið rekin um árabil, innan núverandi húsnæðis, án áforma um verulega aukningu umsvifa eða breytta ásýnd svæðis, og telur því nefndin að næg rök séu til staðar fyrir því að breytingin geti fallið undir málsmeðferð óverulegrar breytingar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggur fyrir greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar verði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda vegna tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin telur sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til fyrirsjáanlegs orkuskorts í landinu, sbr. orkuspá Umhverfis- og orkustofnunar og raforkuspá Landsnets, til þess að tryggja raforkuöryggi í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Framkvæmdir á Búrfellslínu 1, sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir, eru nauðsynlegar til að Hvammsvirkjun geti orðið að veruleika og virkjunin geti skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets, en framkvæmdir við virkjunina eru hafnar. Nefndin telur tilgang virkjunarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla og telur það sama eiga við um þær framkvæmdir sem fyrirliggjandi umsókn varðar og tengjast þeirri virkjun með beinum hætti. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.
Bókun fundar Byggðarráð tekur undir mat Skipulags- og umferðarnefndar á framkominni umsókn um framkvæmdaleyfi og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillögu Skipulags- og umferðarnefndar að afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna frekari gagnaöflunar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 63 Skipulags- og umferðarnefnd líst vel á framkomnar hugmyndir að skipulagi við og meðfram Sigöldugljúfri og leggur til að gengið verði frá gerð deiliskipulagstillögu á þeim forsendum sem nú liggja fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
2.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2026
2602048
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fer yfir rekstaryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar-febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.Persónuverndarstefna. Endurskoðun
2603055
Lögð fram endurskoðun persónuverndarstefna fyrir Rangárþing ytra.
Lagt til að samþykkja endurskoðaða persónuverndarstefnu.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að samþykkja endurskoðaða persónuverndarstefnu.
Samþykkt samhljóða.
4.Áætlun sveitarfélaga um refaveiðar 2026-2028
2603056
Lagt fram erindi frá Náttúrverndarstofnun um gerð áætlunar Rangárþings ytra um refaveiðar 2026-2028.
Lagt til að fela sveitarstjóra að skila inn áætlun til Náttúrverndarstofnunar.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að fela sveitarstjóra að skila inn áætlun til Náttúrverndarstofnunar.
Samþykkt samhljóða.
5.Leigusamningur GHR og tengd mál
2603017
Lagður fram viðauki við leigusamning milli Rangárþings ytra og GHR um heimild til framleigu til GHR vegna svæðis undir fjarskiptamastur.
Lagt til að samþykkja viðauka við samninginn og fela sveitarstjóra að skrifa undir hann.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að samþykkja viðauka við samninginn og fela sveitarstjóra að skrifa undir hann.
Samþykkt samhljóða.
6.Dynskálar 45 lóðamál
2412052
Lagður er fram samningur milli Olíudreifingar ehf og Rangárþings ytra um skil á lóðinni Dynskálum 45 á Hellu en á móti fái aðstöðu á hluta af lóðinni Dynskálum 53.
Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða.
7.Sveitarstjórnarkosningar 2026. Kjörstaður
2603031
Lagt til að kjörstaður fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026 verði í Grunnskólanum á Hellu og verði kjörstaður opinn milli 9:00-22:00.
Jafnframt verði öllum framboðum veitt endurgjaldslaus afnot af fundaraðastöðu sveitarfélagsins í námsverinu á Hellu, íþróttahúsinu í Þykkvabæ og Menningarmiðstöðinni á Laugalandi vegna undirbúnings sveitarstjórnarkosninga.
Samþykkt samhljkða
Jafnframt verði öllum framboðum veitt endurgjaldslaus afnot af fundaraðastöðu sveitarfélagsins í námsverinu á Hellu, íþróttahúsinu í Þykkvabæ og Menningarmiðstöðinni á Laugalandi vegna undirbúnings sveitarstjórnarkosninga.
Samþykkt samhljkða
8.Staðgengill regluvarðar
2603047
Lögð fram tillaga frá KPMG um breytingu á staðgengli regluvarðar.
Lagt til að Ásgerður Þ. Hannesdóttir, lögfræðingur hjá KPMG Law, taki við þeirri stöðu.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að Ásgerður Þ. Hannesdóttir, lögfræðingur hjá KPMG Law, taki við þeirri stöðu.
Samþykkt samhljóða.
9.Skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025. KPMG
2602077
Lagt fram til kynningar.
10.Samningur um vikurnám við Merkihvol
2602056
Lögð fram fyrirspurn frá Steypustöðinni varðandi samning um vikurnám í landi sveitarfélagsins í Merkihvoli.
Lagt til að fela sveitarstjóra að svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að fela sveitarstjóra að svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.
11.Gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2026
2511247
Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá íþróttamannvirkja um að notendur 16 ára og eldri sem nota íþróttahús sveitarfélagsins á vegum annara enn viðurkenndra æskulýðs- og íþróttafélaga greiði fyrir aðgang af sölum íþróttahúsa samkvæmt gjaldsskrá íþróttamiðstöðva. Gjaldið til að fá aðgang í salina miðast við gjaldskrá fyrir aðgang í sund og geta notendur nýtt sér sundlaugina eftir tímann ef hún er opin.
Þá er lagt til að gjaldskránni verði breytt þannig að börn 0-9 ára fái frítt í sund og börn 10-15 ári greiði óbreytt gjald. Tímakort fyrir verði einnig uppfærð í gjaldskrá m.t.t. aldurs.
Lagt til að tillögurnar verði samþykktar og þær taki gildi frá og með 15. apríl nk.
Samþykkt samhljóða.
Þá er lagt til að gjaldskránni verði breytt þannig að börn 0-9 ára fái frítt í sund og börn 10-15 ári greiði óbreytt gjald. Tímakort fyrir verði einnig uppfærð í gjaldskrá m.t.t. aldurs.
Lagt til að tillögurnar verði samþykktar og þær taki gildi frá og með 15. apríl nk.
Samþykkt samhljóða.
12.Leikvellir
2603041
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um fjárfestingu og rekstur vegna leikvalla í sveitarfélaginu, fyrir utan skólabyggingar, vegna áranna 2021-2025.
13.Styrkbeiðni vegna fasteignagjalda 2026. Styrktarfélag krabbam.sj. barna
2602084
Styrkarfélag krabbameinssjúkra barna óskar eftir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2026 af fasteign félagsins á Ketilsstöðum, fastanr. 232-2998.
Byggðarráð leggur til að samþykkja styrkinn skv. gildandi reglum sveitarfélagsins um slíka styrki.
Samþykkt samhljóða
Byggðarráð leggur til að samþykkja styrkinn skv. gildandi reglum sveitarfélagsins um slíka styrki.
Samþykkt samhljóða
14.Hugmyndagátt og ábendingar 2026
2603059
Eitt erindi hefur borist í hugmyndagátt á heimasíðu sveitarfélagsins um laus skilti á vörubrettum á Hellu. Byggðarráð þakkar fyrir ábendingu og vísar málin til skoðunar hjá byggingarfulltrúa en til eru reglur um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta í Rangárþingi ytra.
15.Erindi frá Jósep Benediktssyni um sorpurðun
2112031
Lagt fram svar lögmanns landeiganda Varmadals við svari sveitarfélagsins.
Lagt til að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
16.Marteinstunga-Stekkjartún. Breyting á heiti í Stekkjartún.
2601036
Eigandi Marteinstungu-Stekkjartúns L220971 óskar eftir að fá að breyta heiti lands síns í Stekkjartún.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við breytingu á nafni landsins.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við breytingu á nafni landsins.
Samþykkt samhljóða.
17.Fundargerðir stjórnar SÍS 2026
2601033
Fundargerð 995. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:15.
Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.