1.Skipulags- og umferðarnefnd - 2
2606006F
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir stöðu málsins. Fyrir liggur að haldinn var fundur með lóðarhafa Faxaflata 4 og ráðgjafa hans þann 15. júní 2026 þar sem áform um uppbyggingu á lóðinni voru rædd og skýrð frekar.
Á fundinum kom fram að fyrirhuguð uppbygging lóðarhafa, þ.m.t. allt að 1.700 m² bygging undir lágvöruverðsverslun, rúmast innan núverandi afmörkunar lóðarinnar. Núverandi byggingarreitur heimilar allt að 2.000 m² byggingarmagn og samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa þegar verið nýttir 256 m² vegna núverandi byggingar á lóðinni.
Með vísan til framangreinds telur nefndin að ekki sé þörf á að halda áfram með fyrirliggjandi landskiptamál og fyrirhugaða stækkun Faxaflata 4 að svo stöddu. Nefndin leggur því til að fallið verði frá fyrirhugaðri stækkun lóðarinnar samkvæmt merkjalýsingu dags. 31.10.2025 og að lóð Faxaflata 4 verði áfram afmörkuð óbreytt
Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd telur rétt að verða við beiðni umsækjanda og heimila því byggingar gestahúsa með allt að 90 m² heildarstærð með mænishæð allt að 10 m og byggingar véla og/eða fóðurgeymsla allt að 400 m² heildarstærð með mænishæð allt að 10 m. Tillagan skal grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir ásamt samantekt og viðbrögðum við þeim.
Nefndin telur að hluti af fram komnum umsögnum gefi tilefni til breytinga á auglýstri tillögu sem þó kalli ekki á nýja auglýsingu. Nefndin leggur áherslu á að sjónarmið um umferð, bílastæði, göngu- og hjólatengingar verði höfð til hliðsjónar við áframhaldandi útfærslu og hönnun svæðisins.
Nefndin telur réttast að bílastæði verði 1.5 við fjölbýlishúsin og að lóðamörk verði þar með færð til norðurs. Að auki verði einungis leyfðar 8 íbúðir við Melöldu 6 og Móöldu 8.
Nefndin telur að þörf sé á umferðargreiningu skipulagssvæðisins og að opnun í gegnum gámasvæðið inn á Langasand sé nauðsynleg til að fyrirbyggja of mikla umferð inni í svæðinu og gegnum svæðið. Uppbygging á ofanbyggðarveginum er einnig talin nauðsynleg til að fyrirbyggja umferðartafir.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki umræddar breytingar á auglýstri tillögu og að hún verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar Byggðarráð telur rétt að áfram verði gert ráð fyrir allt að 10 íbúðum á lóðunum Melöldu 6 og Móöldu 8 enda samræmist það upphaflegum tilgangi breytingarinnar á deiliskipulaginu.
Það er mat byggðarráðs að það að gera ráð fyrir 10 íbúðum í hvoru fjölbýlishúsi hafi ekki grundvallaráhrif á umferðarþunga hverfisins.
Því vísar byggðarráð málinu aftur til skipulags og umferðarnefndar til frekari skoðunar og útfærslu áður en endanleg afgreiðsla fer fram. Byggðarráð frestar því afgreiðslu til næsta fundar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu til auglýsingar og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir gögn málsins þar sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur leggur áherslu á að skýra betur samræmi aðalskipulags og deiliskipulags varðandi heimildir til efnistöku úr lónstæði. Tillaga hefur því verið uppfærð, þar sem náma 26 er afmörkuð og samhliða er sett inn breytt afmörkun lóðar fyrir tengivirki Landsnets.
Þar sem auglýsing á breytingu á deiliskipulagi Hvammsvirkjunar er hafin af hálfu Rangárþings ytra en án ofangreindra atriða telur nefndin réttast að skipulagsferli verði stöðvað og tillaga því auglýst að nýju. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir meðfylgjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi Hvammsvirkjunar, dags. 15.06.2026 og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samráði við Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 2 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsókn aðila og telur að hún uppfylli skilyrði samþykktra úthlutunarreglna til afgreiðslu. Nefndin samþykkir að lóðinni Orravellir 5 verði úthlutað til Laufeyjar Óskar Christensen til að byggja á henni hesthús í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
2.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 2
2606005F
Lagt fram til kynningar
3.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
2606008F
Lagt fram til kynningar
4.Aukaaðalfundur Bergrisans bs. 2026
2606005
Lögð fram fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs. 2026.
Lögð er sérstök athygli á bókun undir lið 7. önnur mál.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og stjórnarformaður Bergrisans, vakti athygli á því að á stjórnarfundi fyrr um daginn hafði stjórn Bergrisans staðfest umsögn um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Í umsögninni eru gerðar verulegar athugasemdir við reglugerðardrögin, einkum að skilgreining á þeim hópi barna sem reglugerðin tekur til sé þrengd frá því sem kveðið er á um í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025. Drögin endurspegla ekki samkomulagið og getur það leitt til þess að börn sem hingað til hafa fallið undir viðurkennda skilgreiningu barna með fjölþættan vanda, þar á meðal fötluð börn, falli utan gildissviðs reglugerðarinnar óháð þjónustuþörf.
Tekur fundurinn undir þessa ályktun stjórnar Bergrisans og beinir því til ríkisins að falla frá þessari breytingu og virða það samkomulag sem var gert milli ríkis og sveitarfélaga um þessi mál.
Lögð er sérstök athygli á bókun undir lið 7. önnur mál.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og stjórnarformaður Bergrisans, vakti athygli á því að á stjórnarfundi fyrr um daginn hafði stjórn Bergrisans staðfest umsögn um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Í umsögninni eru gerðar verulegar athugasemdir við reglugerðardrögin, einkum að skilgreining á þeim hópi barna sem reglugerðin tekur til sé þrengd frá því sem kveðið er á um í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025. Drögin endurspegla ekki samkomulagið og getur það leitt til þess að börn sem hingað til hafa fallið undir viðurkennda skilgreiningu barna með fjölþættan vanda, þar á meðal fötluð börn, falli utan gildissviðs reglugerðarinnar óháð þjónustuþörf.
Tekur fundurinn undir þessa ályktun stjórnar Bergrisans og beinir því til ríkisins að falla frá þessari breytingu og virða það samkomulag sem var gert milli ríkis og sveitarfélaga um þessi mál.
Byggðarráð staðfestir fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs. 2026 og tekur jafnframt undir bókun undir 7. lið.
5.Oddi bs - 1
2606002F
Byggðarráð staðfestir fundargerðina.
6.Oddi bs - 2
2606003F
Byggðarráð staðfestir fundargerðina.
7.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 1
2606004F
Byggðarráð staðfestir fundargerðina.
8.Hagi við Selfjall 2, L176252. Nýtt heiti Hjartarstaðir
2606024
Eigandi Haga við Selfjall 2 L176252 óskar eftir að landið fái nýtt heiti, Hjartarstaðir.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við nafnabreytingu.
9.Gaddstaðavegur
2501031
Lagður fram samningur vegna uppbyggingar Gaddstaðavegs.
Byggðarráð staðfestir samninginn fyrir sitt leyti.
10.Hugmyndagátt og ábendingar 2026
2603059
Erindi vegna garðslátts fyrir eldri borgara.
Byggðarráð þakkar ábendinguna og vísar henni til þjónustumiðstöðvar til úrvinnslu og úrbóta.
11.Umsókn um styrk vegna keppninsferðar erlendis
2606034
Sótt er um styrk vegna keppnisferðar erlendis.
Samþykkt að veita styrk samkvæmt reglum um styrkveitingar til afreksfólks í íþróttum búsett í Rangárþingi ytra 18 ára og yngra.
12.Umsókn um styrk vegna keppnisferðar erlendis
2606035
Sótt er um styrk vegna keppnisferðar erlendis.
Samþykkt að veita styrk samkvæmt reglum um styrkveitingar til afreksfólks í íþróttum búsett í Rangárþingi ytra 18 ára og yngra.
13.Samþykktir Rangárþings ytra - endurskoðun
2606011
Sveitarstjórn fól byggðarráði endurskoðun samþykkta Rangárþings ytra.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
14.Samningur um beitarhólf
2606039
Í gildi var samningur um beitarhólf sem nú er útrunnin.
Sveitarstjóra er falið að hafa samband við samningsaðila og leggja nýjan samning fyrir byggðarráð.
15.Siðareglur - endurskoðun í upphafi kjörtímabils
2606012
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
16.Fundaáætlun 2026 -sveitarstjórn, byggðarráð, skipulags- og umf.nefnd
2511182
Lagt er til að næsti reglulegi fundur byggðarráðs færist aftur um viku og verði 15. júlí 2026 kl. 08:15.
Samþykkt
17.Hjartaland. Umsókn um lögbýli
2606037
Niklas Becker fyrirhönd eiganda að Hjartalandi L227520, óskar eftir að fá að stofna til lögbýlis á jörð sinni, Hjartalandi. Álit búnaðarráðunauts liggur fyrir þar sem ekki voru gerðar athugasemdir.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við stofnun lögbýlis.
18.Landsmót 50 á Hellu 2027
2606031
1. fundur framkvæmdanefndar 50 2027 á Hellu
Lagt fram til kynningar.
19.Öruggara Suðurland
2606020
Bréf til sveitarstjóra frá lögreglustjóranum á Suðurlandi og skýrsla spretthóps vegna úti- og bæjarhátíða.
Lagt fram til kynningar.
20.Einföldun regluverks og Stofnun atvinnuveganna - næstu skref
2606038
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
21.Íþróttavika Evrpópu 2026 - Opið fyrir umsóknir um styrk
2606016
Íþróttavika Evrópu 2026
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:40.
Samþykkt samhljóða.