2. fundur 15. júlí 2026 kl. 08:15 - 09:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir formaður
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Guðmar Aubertsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri
Formaður óskar eftir því að við fundinn bætist eitt mál "Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2026", það verði jafnframt 6. liður á dagskrá og aðrir liðir færast sem því nemur.

Samþykkt samhljóða

1.Skipulags- og umferðarnefnd - 3

Málsnúmer 2606011FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir matsskyldufyrirspurn vegna fyrirhugaðrar Tunguvirkjunar í Keldnalæk og þau gögn sem lögð hafa verið fram með erindinu.

    Nefndin vísar til fyrri bókunar sinnar þar sem bent var á veruleg álitamál vegna menningarminja, sérstakrar verndar Tungufoss og Krókahrauns, áhrifa á vatnshlot og neysluvatn, auk verndargildis lífríkis og fuglalífs á svæðinu.

    Þrátt fyrir að frekari rannsóknargögn hafi nú verið lögð fram telur nefndin að ekki hafi verið leyst með fullnægjandi hætti úr öllum þeim álitaefnum sem áður voru tilgreind. Sérstaklega liggur ekki fyrir endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands til áhrifa framkvæmdarinnar á fornleifar, fullnægjandi og samræmt mat á áhrifum á vatnshlot og neysluvatn né skýrt valkostamat. Þá er ósamræmi í gögnum um umfang framkvæmdarinnar, meðal annars varðandi stærð inntakslóns og lengd vegslóða, og þær forsendur sem einstakar sérfræðirannsóknir byggja á.

    Með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og viðmiðum 2. viðauka laga nr. 111/2021 telur nefndin að ekki sé unnt að útiloka að framkvæmdin geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.

    Skipulags- og umferðarnefnd mælir því með að fyrirhuguð Tunguvirkjun verði háð umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021. Nefndin tekur með þessari umsögn ekki endanlega afstöðu til heimildar framkvæmdarinnar í skipulagi.
    Bókun fundar Óskað var eftir fresti til 17. ágúst til þess að skila umsögn til HMS og hefur sú beiðni verið staðfest.

    Byggðarráð óskar eftir umsögn Umhverfis- og hálendisnefndar.

    Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar þann 12. ágúst.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að varaformaður nefndarinnar kjörtímabilið 2026-2030 verði Þórunn Dís Þórunnardóttir. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáform samræmast stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið. Staðsetning bílastæða skuli koma fram í skilmálum lóðarinnar. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki forsendur til að halda áfram með málið fyrr en niðurstaða HMS liggur fyrir um hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Byggðarráð frestar afgreiðslu til næsta reglulega fundar sveitarstjórnar þann 12. ágúst.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en málsaðila og sveitarfélagið auk þess sem ný staðsetning efnistökusvæðisins verður á þegar röskuðu svæði við suðurenda Sigöldugljúfurs. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar breytingar á tillögunni frá síðsutu kynningu. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna áherslna í fyrirliggjandi tillögu. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Nefndin vill árétta að sýnt sé fram á að pláss sé innan lóðar eða húss fyrir geymslur og sorpgerði. Að auki telur nefndin réttast að göngustígur verði ekki innan lóðar heldur færist austur fyrir lóðamörk.
    Bókun fundar Eftir ábendingu skipulagsfulltrúa var bent á að deiliskipulagið er búið í auglýsingu og þarfnast því ekki frekari auglýsingar. Uppfærð gögn bárust fyrir fund Byggðarráðs þessu til samræmis.

    Byggðarráð staðfestir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að senda hana til skipulagsstofnunar í samræmi við 1.mgr.42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir erindi lóðarhafa og fyrirliggjandi gögn. Nefndin vísar til þess að samkvæmt grunnforsendum gildandi deiliskipulags er lóðin ætluð undir þjónustustarfsemi við þjóðveginn, einkum söluskála, eldsneytisafgreiðslu, bílaþvottastöð og tengda starfsemi. Gististarfsemi var hins vegar sérstaklega staðsett annars staðar innan skipulagssvæðisins og fellur því ekki að þeirri notkun og þeirri heildarsýn sem mótuð var fyrir þessa tilteknu lóð.

    Nefndin vísar jafnframt til þess að áfram er unnið að því að ná niðurstöðu um framtíðarþróun og atvinnuuppbyggingu á Faxaflötum 4, meðal annars um áfangaskiptingu, starfsemi og heildstæð framkvæmdaáform. Að mati nefndarinnar væri óheppilegt að víkka nú út heimildir lóðarinnar með gististarfsemi eða annarri notkun sem getur breytt eðli uppbyggingarinnar áður en skýr og samræmd niðurstaða liggur fyrir um megináherslur svæðisins.

    Með vísan til framangreinds telur nefndin ekki tímabært að breyta gildandi deiliskipulagi með umbeðnum hætti og hafnar erindinu að svo stöddu.
    Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd - 3 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

2.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 4

Málsnúmer 2606009FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

3.Húsakynni bs - 1

Málsnúmer 2606012FVakta málsnúmer

1. fundargerð Húsakynna bs.
Byggðarráð staðfestir fundargerð Húsakynna.

4.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 256

Málsnúmer 2606007FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

5.Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd - 1

Málsnúmer 2606013FVakta málsnúmer

Byggðarráð staðfestir fundargerðina.

6.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2026

Málsnúmer 2602048Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstaryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar-maí.
Lagt fram til kynningar.

7.Girðingarmál við Geldingarlæk

Málsnúmer 2605067Vakta málsnúmer

Erindi frá Októ Einarssyni varðandi girðingamál á Geldingalækjarheiði.
Fundað var með Landi og Skógum vegna erindisins og í framhaldi gerði sveitarfélagið úttekt á girðingunni. Niðurstaða þeirrar úttektar er að girðingin þarfnast töluverðrar endurnýjunar svo hún geti talist fjárheld.

Sveitarstjóra falið að svara erindinu og jafnframt hafa samband við afnotahafa og óska eftir úrbótum.

8.Hesthúsvegur - frestur til rýmingar

Málsnúmer 2607012Vakta málsnúmer

Erindi frá Sigurgeir Brynjari Kristgeirssyni þar sem óskað er eftir heimild fáist til að nýta hesthús í hans eigu í gamla hesthúsahverfi lengur en samningar segja til um.
Byggðarráð frestar afgreiðslu erindisins og vísar málinu til frekari skoðunar hjá sveitarstjóra.

9.Aðalfundur Félags- og skólaþjónustu RVS

Málsnúmer 2606047Vakta málsnúmer

Fundargerðin liggur fyrir til staðfestingar. Sérstaklega er tekinn út liður nr. 4 Framkvæmdaáætlun barnaverndarþjónustu.
Byggðarráð staðfestir fundargerðina og framkvæmdaáætlun barnaverndarþjónustu.

10.100. fundur Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla og Vestur-Skaftafellssýslu

Málsnúmer 2606050Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

11.Kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa - Samtök orkusveitarfélaga

Málsnúmer 2607022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

12.Sérklefi í sundlaug

Málsnúmer 2607023Vakta málsnúmer

Ábending frá Írenu Sólveigu S. Stolzenwald vegna skorts á sérklefa í sundlaugina á Hellu.
Byggðarráð þakkar ábendinguna og vísar málinu til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar í haust.

13.Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026

Málsnúmer 2607028Vakta málsnúmer

Kjörstjórn Rangárþings ytra leggur til að kjörfundur verði styttur frá því sem verið hefur og standi frá kl. 9-20 í stað kl. 9-22.
Byggðarráð samþykkir styttingu á opnunartíma kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst n.k.

Byggðarráð leggur áherslu á að breytingin verði auglýst vel.

Kjörfundur verður opin frá kl. 09-20.

14.Kjörstjórn - breyting

Málsnúmer 2607029Vakta málsnúmer

Þórhallur Jón Svavarsson hefur beðist lausnar úr kjörstjórn sem varamaður.
Byggðarráð þakkar Þórhalli Jóni Svavarssyni fyrir sín störf og felur sveitarstjóra að tilnefna varamann í kjörstjórn fyrir fund sveitarstjórnar 12. ágúst.

15.Endurskoðun vatnaáætlunar 2028-2033

Málsnúmer 2607030Vakta málsnúmer

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á

vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu.

16.Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 2607025Vakta málsnúmer

Óskað er eftir því að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í vinnu um endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Svara þarf spurningum fyrir 21. september nk.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu.

17.Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár

Fundi slitið - kl. 09:45.