5. fundur 28. október 2026 kl. 07:30 - 09:40 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir formaður
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Guðmar Aubertsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri Rangárþings ytra
Lagt er til að við dagskrá fundarins sé tekið inn mál nr. 2610113 "Öldur III. Melalda". Málið verði nr. 5 á dagskrá og aðrir liðir færist sem því nemur.

Samþykkt samhljóða.

1.Skipulagsnefnd - 8

Málsnúmer 2610015FVakta málsnúmer

  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Áður en framkvæmdir hefjast skal uppfæra gildandi deiliskipulag til samræmis við breytta afmörkun lóða. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Eggert Valur víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.

    Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd hefur móttekið umbeðna framkvæmdaáætlun og leggur til að henni verði gerð skil í væntanlegum lóðarleigusamningi. Nefndin leggur til að sameining lóðanna verði samþykkt og samhliða verði deiliskipulag uppfært. Nefndin leggur til að væntanlegur lóðarleigusamningur verði lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áform umsækjanda en telur nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi og leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga í þá vinnu. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin felur ekki í sér breytingar á formi eða útliti lóðarinnar. Nefndin leggur til að umsækjanda verði gert að leggja fram tillögu að deiliskipulagi Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem tillagan felur einungis í sér skiptingu lóðar í sama horf og var. Nefndin telur ekki þörf á grenndarkynningu þar sem um sama byggingarmagn er að ræða og aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags eru óbreyttir. Nefndin leggur því til að meðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu. Nefndin telur rétt að sérskilmálar frá 2014 verði felldir úr skipulagi samhliða þessum breytingum.
    Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd hefur fjallað um framlögð gögn málsins og leggur til eftirfarandi afgreiðslu:

    1. Varðandi kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna Svínhaga L7A: Skipulagsnefnd telur ekki uppfyllt lagaskilyrði til að fallast á endurupptöku samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Réttur til að krefjast endurupptöku samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laganna er bundinn við aðila máls, en nágrannar teljast almennt ekki aðilar að stjórnsýslumáli um útgáfu byggingarleyfis á annarri fasteign í skilningi ákvæðisins. Jafnframt er liðið meira en eitt ár frá samþykkt aðaluppdrátta og útgáfu byggingarleyfa, sbr. 2. mgr. 24. gr. laganna, og liggja ekki fyrir þær veigamiklu ástæður sem réttlæta frávik frá þeim fresti, auk þess sem skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. um að ákvarðanir hafi byggst á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik teljast ekki uppfyllt.
    Nefndin telur jafnframt ekki lagagrundvöll til að taka málið upp að nýju eða afturkalla ákvarðanirnar á grundvelli óskráðra meginreglna stjórnsýsluréttarins. Líkt og áður greinir skortir bréfritara lögvarða aðild að ákvörðun um útgáfu leyfanna auk þess sem allir lögmæltir kæru- og endurupptökufrestir eru löngu liðnir. Liggur fyrir að deiliskipulag svæðisins hefur tekið formlegt gildi að aflokinni lögboðinni kynningu og mannvirkið samræmist því skipulagi í einu og öllu. Með vísan til réttaröryggis, meðalhófs og þeirrar staðreyndar að efnislegt samræmi ríkir milli mannvirkisins og gildandi skipulags verður ekki talið tækt að fella ákvarðanirnar úr gildi eða afturkalla þær. Kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna L7A er því hafnað.

    2. Varðandi kröfu um stöðvun skipulagsáforma á L7 og L8A: Fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi er varða lóðir L7 og L8A eru í formlegu lögboðnu skipulagsferli samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Athugasemdir bréfritara og umsögn HMS dags. 1. október 2026 eru til meðferðar innan þess skipulagsferlis og verða teknar til efnislegrar skoðunar við frekari vinnslu og afgreiðslu tillögunnar í samræmi við lög. Nefndin hafnar því kröfu um að fallið verði frá skipulagsgerðinni með fyrirframákvörðun í tengslum við afgreiðslu á erindi þessu.

    3. Varðandi skaðabótakröfu og kröfu um dómkvaðningu matsmanns: Skipulagsnefnd hafnar framkominni skaðabótakröfu að svo stöddu fyrir sitt leyti. Afstaða til fjárkrafna og málsmeðferð skaðabótamála á hendur sveitarfélaginu fellur undir valdsvið sveitarstjórnar, og er kröfunni því jafnframt vísað til sveitarstjórnar til formlegrar meðferðar. Þá bendir nefndin á að bótakröfu samkvæmt 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ber að lýsa skriflega innan eins árs frá gildistöku skipulags, sbr. 3. mgr. þeirrar greinar. Enn fremur er kröfu um að sveitarfélagið standi straum af kostnaði við dómkvaðningu matsmanna samkvæmt 2. mgr. 51. gr. a skipulagslaga hafnað, enda felur ákvæðið í sér heimild en ekki skyldu sveitarfélags.

    Afgreiðsla og kæruleiðbeiningar: Skipulagsfulltrúa er falið að kynna bréfriturum og eiganda Svínhaga L7A afgreiðslu þessa. Bent er á að ákvörðun um höfnun á endurupptöku byggingarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samkvæmt lögum nr. 130/2011, og er kærufrestur einn mánuður frá því að aðila varð kunnugt um ákvörðunina. Afgreiðsla á erindi um að stöðva yfirstandandi skipulagsmeðferð telst hins vegar ekki lokaákvörðun í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og er því ekki sjálfstætt kæranleg til nefndarinnar.
    Bókun fundar Byggðarráð setur hér fram leiðréttingu á bókun Skipulagsnefndar þar sem 3. töluliður er leiðréttur.

    1.
    Varðandi kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna Svínhaga L7A: Skipulagsnefnd telur ekki uppfyllt lagaskilyrði til að fallast á endurupptöku samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Réttur til að krefjast endurupptöku samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laganna er bundinn við aðila máls, en nágrannar teljast almennt ekki aðilar að stjórnsýslumáli um útgáfu byggingarleyfis á annarri fasteign í skilningi ákvæðisins. Jafnframt er liðið meira en eitt ár frá samþykkt aðaluppdrátta og útgáfu byggingarleyfa, sbr. 2. mgr. 24. gr. laganna, og liggja ekki fyrir þær veigamiklu ástæður sem réttlæta frávik frá þeim fresti, auk þess sem skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. um að ákvarðanir hafi byggst á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik teljast ekki uppfyllt. Nefndin telur jafnframt ekki lagagrundvöll til að taka málið upp að nýju eða afturkalla ákvarðanirnar á grundvelli óskráðra meginreglna stjórnsýsluréttarins. Líkt og áður greinir skortir bréfritara lögvarða aðild að ákvörðun um útgáfu leyfanna auk þess sem allir lögmæltir kæru- og endurupptökufrestir eru löngu liðnir. Liggur fyrir að deiliskipulag svæðisins hefur tekið formlegt gildi að aflokinni lögboðinni kynningu og mannvirkið samræmist því skipulagi í einu og öllu. Með vísan til réttaröryggis, meðalhófs og þeirrar staðreyndar að efnislegt samræmi ríkir milli mannvirkisins og gildandi skipulags verður ekki talið tækt að fella ákvarðanirnar úr gildi eða afturkalla þær. Kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna L7A er því hafnað.

    2.
    Varðandi kröfu um stöðvun skipulagsáforma á L7 og L8A: Fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi er varða lóðir L7 og L8A eru í formlegu lögboðnu skipulagsferli samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Athugasemdir bréfritara og umsögn HMS dags. 1. október 2026 eru til meðferðar innan þess skipulagsferlis og verða teknar til efnislegrar skoðunar við frekari vinnslu og afgreiðslu tillögunnar í samræmi við lög. Nefndin hafnar því kröfu um að fallið verði frá skipulagsgerðinni með fyrirframákvörðun í tengslum við afgreiðslu á erindi þessu.

    3.
    Varðandi skaðabótakröfu og kröfu um dómkvaðningu matsmanns:
    Skipulagsnefnd hafnar framkominni skaðabótakröfu að svo stöddu fyrir sitt leyti. Afstaða til fjárkrafna og málsmeðferð skaðabótamála á hendur sveitarfélaginu fellur undir valdsvið sveitarstjórnar, og er kröfunni því jafnframt vísað til sveitarstjórnar til formlegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 51. gr. a skipulagslaga nr. 123/2010. Enn fremur er kröfu um að sveitarfélagið standi straum af kostnaði við dómkvaðningu matsmanna samkvæmt 2. mgr. 51. gr. a skipulagslaga hafnað, enda felur ákvæðið í sér heimild en ekki skyldu sveitarfélags.

    Afgreiðsla og kæruleiðbeiningar: Skipulagsfulltrúa er falið að kynna bréfriturum og eiganda Svínhaga L7A afgreiðslu þessa. Bent er á að ákvörðun um höfnun á endurupptöku byggingarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samkvæmt lögum nr. 130/2011, og er kærufrestur einn mánuður frá því að aðila varð kunnugt um ákvörðunina. Afgreiðsla á erindi um að stöðva yfirstandandi skipulagsmeðferð telst hins vegar ekki lokaákvörðun í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og er því ekki sjálfstætt kæranleg til nefndarinnar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem tillagan felur einungis í sér stækkun núverandi byggingareits. Nefndin telur ekki þörf á frekari grenndarkynningu en fram fór við kynningu á byggingaráformum umsækjanda. Í þeirri kynningu kom fram í umsögn Rarik að áður en framkvæmdir hefjast skal framkvæmdaaðili sóna svæðið til að staðsetja rafstreng sem virðist liggja í um 6 metra fjarlægð frá fyrirhugaðri byggingu. Nefndin leggur því til að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Skipulagsnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • 1.15 2311053 Hverfisskipulag
    Skipulagsnefnd - 8 Farið var yfir áherslur varðandi byggðamynstur og lóðamál. Bókun fundar Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 8 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

2.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Lagðir fram viðaukar 2, 3 og 4 við fjárhagsáætlun Rangárþings ytra 2026. Greinargerð fylgir viðauka 4 og Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir breytingarnar og áhrif viðaukanna.

Viðauki 2 eru tilfærslur á milli málaflokka til að áætlun verði í samræmi við breytingu á reglugerð 1212/2015 sem tók gildi í byrjun árs 2026. Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu.

Viðauki 3 færir Húsakynni bs og Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu út úr áætlun sem samstarfsverkefni þar sem að þessi byggðarsamlög eru undir viðmiði um 1% af heildar tekjum, eignum og skuldum sveitarfélagsins. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu en hefur áhrif til lækkunar á handbæru fé samstæðunnar um 9,3 milljónir en þar er um að ræða hlutdeild í handbæru fé byggðarsamlaganna.

Viðauki 4 gerir ráð fyrir að tekjur aukist um 76,3 milljónir, launakostnaður aukist um 108,7 milljónir og annar rekstrarkostnaður lækki um 1,2 milljónir. Viðaukinn hefur áhrif til lækkunar rekstrarafgangs um 31,3 milljónir. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Samþykkt samhljóða.

3.Fjárhagsáætlun 2027-2030

Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir undirbúning og forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030 ásamt útkomuspá fyrir árið 2026.

Ákveðið að leggja til við sveitarstjórn að útsvarshlutfall fyrir árið 2027 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra verði 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

4.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2026

Málsnúmer 2602048Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir fór yfir rekstraryfirlit janúar - september 2026.

Lagt fram til kynningar.

5.Öldur III. Melalda.

Málsnúmer 2610113Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn hefur ákveðið að heimila byggingu 10 íbúða húss á lóðinni Melöldu 6 á Hellu. Breyting á deiliskipulagi hefur verið auglýst og bárust nokkrar umsagnir og athugasemd varðandi aukningu á umferð og fleira. Athugasemd í afgreiðslu HMS gerði það að verkum að gera þarf breytingar á aðalskipulagi til að heildaráformin nái fram að ganga. Um fullt ferli verður að ræða. Í millitíðinni er ákveðið að leggja fram tillögu að lítils háttar breytingu á gildandi deiliskipulagi þar sem einungis verður tekin fyrir breyting á samsettri lóð Lyngöldu 5 og Melöldu 6, hér eftir sem Melalda 6. Sú breyting sem um ræðir er að heimilt verður að byggja allt að 10 íbúða fjölbýlishús á lóðinni í stað tveggja einbýlishúsa áður. Umrædd breyting er í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins hvað varðar landnotkun, byggðamynstur og þéttleika.
Byggðaráð samþykkir að farið verði um málsmeðferð sem um óverulega breytingu á deiliskipuaginu verði að ræða. Fyrirhugaðar 10 íbúðir eru fleiri en þær 2-5 íbúðir sem koma fram í viðmiðunartöflunni. Byggðaráð telur breytinguna engu að síður ekki fela í sér frávik frá grundvallarstefnu aðalskipulagsins, enda helst landnotkun óbreytt, byggingin verður innan skilgreinds íbúðarsvæðis, verður áfram lágreist og að hámarki á tveimur hæðum, og breytingin stuðlar að þeim markmiðum aðalskipulagsins að þétta núverandi íbúðarbyggð og koma til móts við mismunandi þarfir íbúa hvað varðar tegundir íbúða.

Talið er að 2-5 íbúðir í hinni almennu viðmiðunartöflu feli því ekki í sér fortakslaust hámark á fjölda íbúða í einstöku fjölbýlishúsi, enda er taflan samkvæmt orðalagi aðalskipulagsins sett fram til viðmiðunar við gerð og endurskoðun deiliskipulags.

Byggðaráð telur jafnframt ekki ástæðu til frekari grenndarkynningar þar sem búið er að auglýsa umrædd áform með auglýsingu deiliskipulagstillögu á fyrri stigum og samþykkir því að skipulagsfulltrúa verði falið að birta auglýsingu um gildistöku þessarar breytingar í B-deild.

Samþykkt samhljóða.

6.Uppsögn á afnotasamningi - Geldingalækjarheiði

Málsnúmer 2610030Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Land og Skóg sem varðar uppsögn afnotasamnings um Geldingarlækjarheiði. Sveitarstjóra er falið að tilkynna þeim sem nýtt hafa umrætt land til beitar um uppsögn samnings.

Samþykkt samhljóða.

7.Hagi lóð L192681. Breyting á heiti í Litla Holt.

Málsnúmer 2609043Vakta málsnúmer

Úlfur Ísfeld fyrir hönd Lake Cabin ehf óskar eftir að heiti lóðarinnar verði breytt í Litla Holt.

Byggðarráð gerir ekki athugasemd við nafnabreytinguna.

Samþykkt samhljóða.

8.Kvennaathvarfið - Umsókn um rekstrarstyrk fyrir 2027

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Óskað er eftir styrk frá Rangárþingi ytra að upphæð 200.000 kr.

Byggðarráð hafnar erindinu.

9.Sigurhæðir - styrkumsókn 2027

Málsnúmer 2610031Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sigurhæða um styrks vegna starfsársins 2027 að fjárhæð 998.752 kr.

Byggðarráð leggur til að veita styrk vegna ársins 2027 að fjárhæð 465.000 kr.

Samþykkt samhljóða.

10.Styrkumsókn frá Strandarvelli ehf

Málsnúmer 2610050Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Strandarvelli ehf þar sem óskað er eftir tíu ára styrktarsamning að upphæð 5 m.kr. á ári, vísitölutryggt.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar við fjárhagsáætlanagerðar 2027.

11.Samstarfssamningur akstursíþróttadeild Umf Hekla

Málsnúmer 2511010Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá stjórn Ungmennafélagsins Heklu þar sem óskað er eftir viðauka við þjónustu og lóðaleigusamning félagsins sem nemur kostnaði við viðhald svæðisins. Áætlaður kostnaður er 3.444.000 kr.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar við fjárhagsáætlanagerðar 2027.

12.Ísland 2030 - bók og vefsvæði um atvinnuhætti og menningu

Málsnúmer 2610061Vakta málsnúmer

Lagt er til að taka þátt í verkefninu.

Heildarverð án vsk er 455.000, kr. 100.000 kr innborgun kemur til greiðslu þann 1. október 2028 og eftirstöðvar greiðast við útgáfu verksins.

Samþykkt samhljóða.

13.Endurskoðun rammasamkomulags Rangárþings ytra og Ásahrepps

Málsnúmer 2610062Vakta málsnúmer

Byggðarráð leggur til endurskoðun rammasamkomulags milli Rangárþings ytra og Ásahrepps og að skipuð verði viðræðunefnd. Lagt er til að hvort sveitarfélag tilnefni tvo fulltrúa í viðræðunefnd.

Lagt til að sveitarstjórn skipi fulltrúa á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

14.Aðventuhátíð 2026 - ósk um styrk

Málsnúmer 2610098Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Kvenfélagsins Einingar um styrk vegna aðventuhátíðar á Laugalandi fyrsta sunnudag í aðventu þann 29. nóvember n.k.

Byggðarráð leggur til að sveitarfélagið leggi kvenfélaginu til húsnæði fyrir hátíðina án endurgjalds og fjárstyrk skv. samningi við félagið. Jafnframt muni starfsmaður aðstoða við framkvæmd viðburðarins.

Samþykkt samhljóða.

15.Beiðni um lóð og samstarf - hagkvæm hús á Hellu

Málsnúmer 2610097Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Suðurfoss ehf þar sem lögð er fram beiðni um lóð og samstarf um byggingu þriggja hagkvæmra heilsárshúsa á Hellu.

Byggðarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu á þeim forsendum sem lagt er upp með en felur sveitarstjóra að ræða við aðila um aðrar útfærslur.

Samþykkt samhljóða.

16.Kauptilboð í Útskála 1

Málsnúmer 2610101Vakta málsnúmer

Eggert Valur Guðmundsson víkur af fundi og Erla Sigríður Sigurðardóttir tekur sæti í hans stað undir þessum lið.

Lagt er fram kauptilboð í Útskála 1 að upphæð 36.000.000 kr, sveitarstjóra falið að skila inn gagntilboði að upphæð 38.000.000 kr.

Samþykkt samhljóða.

17.Styrkbeiðni vegna ferðar fermingarbarna í Vatnsskóg 2026

Málsnúmer 2609038Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Æskulýðsnefnd Kirkna í Rangárvallasýslu vegna beiðni um fjárstyrk að fjárhæð 145.000 kr vegna fermingarbarnamóts í Vatnaskógi.

Byggðarráð leggur til að beiðnin verði samþykkt og kostnaðarfærist á menningarmál.

Samþykkt samhljóða.

18.Brekkur 2b, L226402. Thales slf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2604067Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrir hönd Thales slf., kt. 620514-0980, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Brekkur 2b, rýmisnúmer 010101 fyrir 8 gesti. Umsókn barst 22.04.2026.

Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemdir við beiðnina.

19.Fundargerðir stjórnar SÍS 2026

Málsnúmer 2601033Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga nr. 1004.

20.Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 1

Málsnúmer 2609011FVakta málsnúmer

1. fundargerð stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs lögð fram til kynningar.

21.Umsóknir um styrk - fyrstu íbúðarkaupendur 2026-2030

Málsnúmer 2610029Vakta málsnúmer

Fimm einstaklingar hafa sótt um og fengið samþykktan styrk á móti fasteignaskatti fyrir fyrstu íbúðarkaupendur í Rangárþingi ytra.

Lagt fram til kynningar.

22.Fyrirhuguð niðurfelling Hróarslækjavegar

Málsnúmer 2610006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

23.Fyrirhuguð niðurfelling Geldingalækjarvegar

Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

24.Fyrirhuguð niðurfelling Selsundsvegar

Málsnúmer 2610005Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

25.Fyrirhuguð niðurfelling Saubæjarvegar

Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

26.Fyrirhuguð niðurfelling Borgartúnsvegar

Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

27.Fyrirhuguð niðurfelling Lambhagavegar

Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

28.Samantekarskýrsla refa- og minkaveiða 2026

Málsnúmer 2609045Vakta málsnúmer

Skýrslu hefur verið skilað.

Lagt fram til kynningar.

29.Bréf frá nemendum í Grunnskólanum á Hellu

Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá nemnendum í Grunnskólanum á Hellu þar sem þau þakka fyrir nýja byggingu en krefjast þess að útisvæðið verði lagfært.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og upplýst er að unnið er að úrbótum.

30.Fundargerðir Almannavarnarnefndar Rangárvalla- og V-Skaft. - 2026-2030

Málsnúmer 2610060Vakta málsnúmer

Fundargerð 7. fundar Almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:40.