47. fundur 25. apríl 2018 kl. 15:00 - 17:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Eiríksson formaður
  • Sólrún Helga Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Yngvi Karl Jónsson aðalmaður
  • Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
Formaður lagði til að við bættist liður 7. Dynskálar 52 og 53 - umsókn um lóð. Aðrir liðir færast til í samræmi. Það var samþykkt samhljóða.

1.Sorpstöð Rangárvallasýslu - stjórn 195

1804023

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Rekstraryfirlit 23042018

1804033

Lagt fram yfirlit um rekstur sveitarfélagsins fram til loka mars 2018.

Til kynningar.

3.Kauptilboð - Gaddstaðalóð 32

1710020

Tillaga um að taka kauptilboðinu og fela sveitarstjóra að ganga frá sölunni.

Samþykkt samhljóða.

4.Sporðalda - umsókn um 4 raðhúsalóðir

1804027

Faxar ehf sækja um 4 raðhúsalóðir í Ölduhverfi III.
Tillaga um að úthluta Föxum ehf 4 raðhúsalóðum við Sporðöldu á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

5.Sæluvellir 8. Umsókn um lóð

1804020

Ágúst Sigurðsson sækir um hesthúslóð á Rangárbökkum.
Tillaga um að úthluta Ágústi Sigurðssyni lóð undir hesthús á Sæluvöllum 8 í nýju hesthúsahverfi á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

6.Dynskálar 51. Umsókn um lóð

1804028

Ari Geir Sæmundsson sækir um lóð undir iðnaðarhús.
Tillaga um að úthluta Ara Geir Sæmundssyni lóð undir iðnaðarhús við Dynskála 51 á Hellu.

Samþykkt samhljóða

7.Dynskálar 52 og 53. Umsókn um lóð

1804039

Agnar Bergmann Birgisson fyrir hönd 1977 ehf óskar eftir lóðum undir iðnaðarhúsnæði að Dynskálum 52 og 53.
Tillaga er um að úthluta 1977 ehf lóð undir iðnaðarhús við Dynskála 52 við Hellu en úthlutun lóðar við Dynskála 53 frestað þar til nánari upplýsingar um byggingaráform liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

8.Ósk um stuðning - Hrókurinn

1804025

Skákfélagið Hrókurinn óskar eftir stuðningi.
Tillaga um að styrkja Hrókinn með 25.000 kr.

Samþykkt samhljóða.

9.Styrkbeiðni vegna áningahólfa

1804034

Reiðveganefnd Geysis óskar eftir styrk til uppbyggingar og viðhalds áningahólfa í Rangárþingi ytra.
Byggðarráð tekur vel í erindið og leggur til að sveitarstjóra verði falið að greina hvort verkefnið geti rúmast innan fjárhagsáætlunar og leggja fram tillögu um afgreiðslu fyrir næsta sveitarstjórarfund.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

10.Styrkur vegna söngskrár.

1804003

Karlakór Rangæinga óskar eftir styrk.
Tillaga um að styrkja Karlakór Rangæinga um 50.000.- kr vegna söngskrár.

Samþykkt samhljóða.
Sólrún Helga Guðmundsdóttir vék af fundi.

11.Ósk um styrk

1804024

Steinn Daði Gíslason sækir um styrk vegna tónlistarnáms.
Byggðarráð telur sér ekki fært að veita beina námsstyrki með þessum hætti og erindinu því hafnað.

Samþykkt samhljóða.
Sólrún Helga Guðmundsdóttir kom aftur til fundar.

12.Þingskálar 4. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis til gistingar í flokki II.

1804014

Tillaga er um að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis til gistingar í flokki II, tegund 'C' á efri hæð að Þingskálum 4 á Hellu í Rangárþingi ytra.

Samþykkt samhljóða.

13.Til umsagnar 425.mál

1804032

Frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða.
Lagt fram til kynningar.

14.Til umsagnar 467,mál

1804031

Frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.).
Lagt fram til kynningar.

15.Til umsagnar 479. mál

1804035

Tillaga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029
Lagt fram til kynningar.

16.Erindi og fyrispurnir frá Á-lista 2018

1803007

Svör við fyrirspurnum frá 11042018
16.1. Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um heildarútgjöld Rangárþings ytra vegna greiðslna til aðalfulltrúa í sveitarstjórn sundurliðað eftir árum, frá 1. júní 2014 og til 1. apríl 2018. Með heildarútgjöldum er átt er við föst mánaðarlaun auk fastra og breytilegra greiðslna til aðalfulltrúa þ.m.t. bílastyrki, síma- og netkostnað, annan kostnað auk ferðakostnaðar og dagpeninga.
Svar: Lögð fram skjöl með yfirliti um heildargreiðslur og fylgja skjölin fundagerðinni. Áréttað skal að upplýsingar með nánari sundurliðun fyrir fyrri hluta tímabilsins eru ekki að fullu tilbúinar en verða lagðar fram á næsta fundi byggðarráðs.

16.2. Óskað er eftir að sveitarstjóri afli gagna um gjaldskrár og bókhald vegna útleigu á sölum þeirra félaga eða félagasamtaka sem óska eftir styrk á móti álögðum fasteignagjöldum. Óskað er eftir gögnum fyrir árin 2014, 2015, 2016 og 2017. Gögnin verði lögð fram á næsta byggðarráðsfundi.
Svar: Lögð fram svör við fyrispurninni frá viðeigandi aðilum og fylgja þau með fundargerðinni.

16.3. Hvenær er áætluð opnun gámasvæðis í Þykkvabæ?
Svar: Opnunin hefur ekki verið tímasett.

16.4. Óskað er eftir lista um eignir (lóðir, lönd, hús/íbúðir og eignarhlutar í félögum) sem eru á sölu.
Svar: Hjá fasteignasölu eru eftirtaldar eignir skráðar til sölu þann 16/4/2018 :

Þrúðvangur 31, Hellu (blokkin)

Gaddstaðir, lóð nr. 37

Gaddstaðir, lóð nr. 38

Parhús í Giljatanga


16.5. Hver er staðan á riftun kaupa Biokraft ehf. á landi sem sveitarfélagið átti?
Svar: Búið er að rifta samningnum.

17.Ársfundur Landgræðslunnar 2018

1804036

Ársfundur Landgræðslu ríkisins 27.4.2018
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin yfirlesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?