Ingvar Pétur sat fundinn í fjarfundi.
1.Erindisbréf framkvæmda- og eignanefndar
2412025
Kosning varaformanns.
Lagt til að Margrét Harpa Guðsteinsdóttir verði varaformaður nefndarinnar.
Þá var erindisbréf yfirfarið og lagðar til smávægilegar breytingar á orðalagi. Sveitarstjóra falið að uppfæra erindisbréfið og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Þá var erindisbréf yfirfarið og lagðar til smávægilegar breytingar á orðalagi. Sveitarstjóra falið að uppfæra erindisbréfið og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
2.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024
2408032
Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.
Vegna fyrirhugaðra endurbóta á Freyvangi þá leggur nefndin til að skipulags- og umferðarnefnd fari yfir umferðaröryggismál varðandi gangandi vegfarendur frá Þingskálum að nyrðri enda Freyvangs.
Samþykkt sammála.

3.Umferðarmál. Staða mála
2310087
Á fundinn mætir Jón Ragnar Örlygsson og fór yfir uppsetningu lista vegna framkvæmda í umferðarmálum. Tómas Haukur og Jón Ragnar gerðu síðan grein fyrir stöðu mála varðandi árið 2025.
Nefndin leggur til að framkvæmda- og eignanefnd komi á fund skipulags- og umferðarnefndar þar sem farið verði yfir útfærslur og forgangsröðun framkvæmda í umferðaröryggismálum vegna sumarsins 2025.

4.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi
2209059
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda varðandi 2. áfanga skólabyggingarinnar á Hellu. Jafnframt lagði hann fram minnisblað varðandi framkvæmdir og innkaup vegna skólaeldhúss.
Nefndin leggur til að forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs verði veitt heimild til að panta grunnbúnað í nýtt eldhús Grunnskólans og Heklukots á Hellu í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

5.Erindi vegna Íþróttavallar. UMF Hekla
2502009
Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Heklu um breytingar á fyrirkomulagi framkvæmda vegna æfingaaðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. Lagt er til að núverandi körfuboltavöllur verði lagður tartani en frestað að gera hlaupabraut meðfram gerfigrasvelli og horft til nýs svæðis norðan gerfigrasvallar.
Nefndin leggur til að laust tartan/tartnanmottur verði lagðar á núverandi svæði og forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin leggur til að laust tartan/tartnanmottur verði lagðar á núverandi svæði og forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
6.Starfshópur gervigrasvallar - 1
2501010F
- 6.1 2411020 Starfshópur gerfigrasvallarStarfshópur gervigrasvallar - 1 Farið var yfir drög að verkefnislista um verkefnið og tímalínu þess með það að markmiði að völlurinn komist í notkun seint í sumar.
THT fór yfir stöðu á hönnun verksins en hún er langt komin en VSÓ er aðalhönnuður vallarins. Stefnt er að því að hönnun klárist í byrjun mars.
THT upplýsir að verið sé að vinna að því að kynna sér tæknilausir aðila sem bjóða upp á mismunandi lausnir í gerfigrasmálum. THT kynnti nýjar lausnir varðandi gerfigras.
Farið verður í endanlega landmótun og aðra tengda jarðvinnu þegar sigi vallarsvæðisins er lokið og aðstæður leyfa. Bókun fundar Tómas Haukur fór yfir stöðu málsins. Unnið að er að endanlegri hönnun varðandi lýsingu og lagnir og verið að fylgjast með sigi vallarins. Lagt er til að fundað verði með VSÓ ráðgjöf og starfshópi um gerfigrasvöll þar sem kynnt verði mismunandi útfærslur á gerfigrasi.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 10:25.