1.Erindisbréf framkvæmda- og eignanefndar
Málsnúmer 2412025Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar endurskoðað erindisbréf nefndarinnar sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn
2.Umferðarmál. Staða mála
Málsnúmer 2310087Vakta málsnúmer
Á fundinn mætir Jón Ragnar Örlygsson aðstoðamaður skipulagsfulltrúa og fer yfir lista vegna framkvæmda í umferðarmálum. Tómas Haukur og Jón Ragnar gerðu síðan grein fyrir stöðu mála varðandi árið 2025 og þeirri vinnu sem verið er að vinna í eftir sameiginlegan fund með skipulags- og umferðarnefnd.
Nefndin samþykkir að merktar verði gangbrautir á eftirfarandi stöðum í sumar:
Heiðvangur/Þingskálar, Eyjasandur/Langisandur, Langisandur/Dynskálar, Eyjasandur/Langalda, Þrúðvangur/Bolli og Freyvangur í framhaldi af göngustíg yfir hól. Einnig verður komið fyrir léttri hraðahindrun á Þrúðvang á móts við Nes og fyrsti áfangi nýrrar gangstéttar lagður með Þrúðvangi frá Hellubíó í átt að Nesi.
Nefndin óskar eftir að skipulags- og umferðarnefnd komi með tillögur að framtíðar gönguleiðum frá Nestúni og Hólavangi yfir á Helluvaðsveg og frá Baugöldu að Þrúðvangi.
Samþykkt samhljóða.

3.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2025
Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer
Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.
Gert er ráð fyrir að fara í eftirfarandi viðhaldsverkefni í sumar: Freyvangur yfirlögn og kantsteinar, Þrúðvangur yfirlögn, götulýsing og gangstétt að hluta, gangstígalýsing yfir hólinn, undirbygging gangstígs meðfram gamla hesthúsahverfi að Eyjasandi. Einnig er gert ráð fyrir að fara í ýmis aðkallandi viðhaldsverkefni við eldri hluta Grunnskólans á Hellu og utanhúss málningarvinnu á Heklukoti.
Þá gert ráð fyrir að fara vinna að eftirfarandi nýframkvæmdum: Malbikun Kjarröldu, gangstéttar og kantsteinar, malbikun Guðrúnartúns, kantsteinar og gangstéttar, Lyngalda malbikun. Götulýsing Sleipnisflatir og Faxaflatir, gervigrasvöllur lokafrágangur, grunnskólinn viðbygging 2.áfangi, Leikskólinn Heklukot hönnun og jarðvinna, opin svæði, Fossabrekkur og hjóla- og göngustígur með þjóðvegi innan Hellu, fráveitulögn að nýrri hreinsistöð. Í áætlun Húsakynna bs. er gert ráð fyrir framkvæmdum á Laugalandi.
Samþykkt sammála.

4.Nýbygging Leikskóla, hönnunarmál.
Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu hönnunar Heklukots.
Tómas Haukur fór yfir stöðu hönnunar vegna byggingu á 3. áfanga við stækkun skólasvæðisins á Hellu vegna leikskólans Heklukots. Hönnun skólans er á lokastigi og gert ráð fyrir að bjóða út jarðvinnu vegna verksins í júní og jarðvinna hefjist eftir Töðugjöld.
5.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi
Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Fram kom að framgangur og kostnaður við verkið er í samræmi við áætlanir.
6.Íþróttavöllur Hellu færsla.
Málsnúmer 2404137Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu vinnu við gervigrasvöll.
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvölinn á Hellu. Búið er að bjóða út tvær mismunandi útfærslur á gervigrasi á völlinn og er útboðsfrestur til 13. maí. Fyrir liggur að hefja vinnu við lokafrágang jarð- og lagnavinnu eins fljótt og kostur er. Stefnt er að því að taka völlinn í notkun á Töðugjöldum í sumar.
7.Ársreikningur 2024. Rangárljós
Málsnúmer 2504065Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri fór yfir niðurstöðu ársreiknings Rangárljóss fyrir árið 2024. Rekstrartekjur Rangárljóss námu 22,2 millj. kr. á árinu 20234 og hækkuðu um 1,9 millj. kr. milli ára og hagnaður félagsins á árinu 2024 nam 7,9 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var jákvætt um 161,7 millj. kr. að meðtöldu stofnfé Rangárljóss 142,6 millj.kr.
Nefndin leggur til að ársreikningurinn verði samþykktur og vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða
Nefndin leggur til að ársreikningurinn verði samþykktur og vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða
8.Rangárljós. Arðgreiðsla 2025
Málsnúmer 2504064Vakta málsnúmer
Nefndin leggur til að greiddur verði út kr. 10 millj. arður úr Rangárljósum vegna ársins 2024.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.Umhverfis og ásýndarmál.
Málsnúmer 2504066Vakta málsnúmer
Rætt um hvað betur megi fara í umhverfis- og ásýndarmálum í sveitarfélaginu. Því miður hefur verið að aukast fjöldi númarslausra bíla á einkalóðum í þéttbýli. Bendir nefndin á að hægt er að hægt er að koma þeim í geymslu á sérstökum geymslusvæðum eða til förgunar á Strönd þannig að ekki þurfi að grípa til kostnaðarsamra aðgerða.
Nefndin hvetur íbúa og fyrirtæki til að huga að og snyrta umhverfi sitt nú þegar sumarið er gengið í garð.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin hvetur íbúa og fyrirtæki til að huga að og snyrta umhverfi sitt nú þegar sumarið er gengið í garð.
Samþykkt samhljóða.
Að fundi lokunum var farið í skoðunarferð til að skoða stöðu framkvæmda við 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu.
Fundi slitið - kl. 11:00.