1.Umferðarmál 2025. Staða mála
2505035
2.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2025
2408032
Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Framkvæmdir og viðhald hafa gengið að mestu skv. áætlun.
3.Íþróttavöllur Hellu færsla.
2404137
Grefigrasvöllur
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.
Vinna við jarð- og lagnavinnu er lokið. Tafir á afhendingu vökvunarkerfis hefur ollið seinkun á verkinu. Gert er ráð fyrir að vinna við lagningu gervigrassins hefjist 10. september og áætluð verklok eru seinni hluta þessa mánaðar.
Samþykkt að komið verði upp bráðabrigðalýsingu við völlinn svo sem hann nýtist sem best í haust og vetur.

4.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi
2209059
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Innréttingar og innihurðir eru væntanlegar í lok þessa mánaðar. Stefnt er að því að mötuneyti og leikskólinn komist í nýtt húsnæði í nóvember.
5.Nýbygging Leikskóla
2402047
Tómas Haukur fór yfir stöðu hönnunar vegna byggingu á 3. áfanga við stækkun skólasvæðisins á Hellu vegna leikskólans Heklukots. Hönnun skólans er á lokastigi og gert er ráð fyrir að henni verði lokið í seinni hluta október.
Útboðsgögn vegna jarðvinnu eru klár og gert ráð fyrir að bjóða út jarðvinnu vegna verksins í næstu viku. Gert ráð fyrir að fyrri hluta verksins verði lokið um miðjan desember. Stefnt er að því að bjóða út burðarvirki um áramót.
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar í lóðahönnun leikskólans. Lagt til að semja við Landhönnun sem var lægstbjóðandi í verkið.
Samþykkt samhljóða.

6.Göngubrú yfir Ytri Rangá
2506046
Nefndin leggur til að kallað verði eftir verði í frumhönnun og frumkostnaðaráætlun á göngubrú yfir Ytri Rangá á gamla brúarstæðinu til að fyrir liggi umfang verksins. Nefndin felur forstöðumanni framkvæmda- og eignasviðs að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.Hóll vestan við Stracta. Hjólaleiðir.
2507022
Nefnin tekur undir bókun skipulags- og umferðarnefndar og leggur til að hafin verði heildstæð vinna við göngu, reið- og hjólaleiðir innan þéttbýlis á Hellu. Nefndin þakkar fyrir innsent erindi varðandi hjólabraut á hól vestan Stracta en telur þetta ekki heppilega staðsetningu m.t.t. umferðaröryggis. Nefndin telur möguleika á að skoða með hvort slík hjólabraut samræmist áformum á nýju íþrótta- og útivistasvæði úr landi Helluvaðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.Fyrirspurn varðandi gangstétt - Leikskálar 2-A og 2-B
2507057
Lögð fram fyrirspurn frá Orra Ragnari Árnasyni varðandi gangstétt við Leikskála 2A og 2B.
Nefndin þakkar fyrir erindið og felur forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að meta ástandið og leggur til að málinu verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Samþykkt sammála.
Nefndin þakkar fyrir erindið og felur forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að meta ástandið og leggur til að málinu verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Samþykkt sammála.
9.Reykjagarður. Færsla hitaveitulagnar
2508068
Lagðar fram upplýsingar og beiðni um framkvæmdaleyfi frá Veitum vegna færslu á hitaveitulögn vegna stækkunar á húsnæði Reykjagarðs á Hellu við Dynskál
Nefndin leggur til að fela forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að ræða við Veitur og Reykjagarð um framkvæmdina.
Samþykkt sammála.
Nefndin leggur til að fela forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að ræða við Veitur og Reykjagarð um framkvæmdina.
Samþykkt sammála.
10.Íþrótta- og útivistasvæði á Hellu. Hönnun
2508043
Lögð fram vinnugögn sem unnin voru vegna hugmyndina um nýtingu á nýju íþróttavallasvæði á Hellu.
Nefnin leggur til að hafin verði vinna við deiliskipulag fyrir svæðið og gerð verðkönnun vegna verksins. Óskað verði eftir hugmyndum frá íbúum um notkunarmöguleika svæðisins til framtíðar sem myndu nýtast í skipulagsvinnunni.

11.Kvörtun vegna umferðar ökutækja á göngustíg
2508041
Lögð fram bókun byggðarráðs og skipulags- og umferðarnefndar varðandi umferð ökutækja á göngustíg yfir hólinn milli Heiðvangs og Eyjasands.
Nefndin leggur til að sett verði þegar upp merki að umferð akandi ökutækja sé bönnuð en að öðru leyti verði vinnu varðandi frekari framkvæmdir vísað til fjárhags- og framvæmdaáætlunar.
Nefndin bendir á að gangstígar séu fyrir gangandi og hjólandi umferð en ekki fyrir umferð vélknúinna ökutækja. Íbúar og aðrir eru vinsamlegast beðnir um að virða það.

Fundi slitið - kl. 10:15.
Unnið verður að umferðaröryggismálum í samræmi við fyrri ákvörðun nefndarinnar. Umferðarskiltum hefur að mestu verið komið upp og lokið við að merkja gangbrautir. Stefnt er að því að samþykkt verkefni verði kláruð á næstu vikum.
Nefndin tekur undir tillögu skipulags- og umferðarnefndar fyrir þörf við mótun verklags- og vinnureglna fyrir framkvæmda- og eignasvið sveitarfélagsins sem nái til gatnagerðar og tengdra framkvæmda í hverfum þar sem gildandi deiliskipulag liggur fyrir. Nefndin leggur til að fela sveitarstjóra að láta vinna drög að reglum.
Samþykkt samhljóða.