7. fundur 17. nóvember 2025 kl. 08:15 - 10:10 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
  • Tómas Haukur Tómasson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Formaður lagði til að við dagskrána myndi bætast eitt mál, liður 6, nýtt hesthúsahverfi á Hellu, framkvæmdir.

Það var samþykkt samhljóða.

1.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2025-2028

Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Fram kom að altjón varð á flutningi á gólfdúk í nýju grunnskólabygginguna á Hellu sem óhjákvæmilega veldur töfum á því að hægt verði að taka 2 áfanga í notkun um næstu áramót. Á næstu dögum verður ljóst hversu miklar tafir verða og þá mun það verða kynnt sérstaklega.

Rætt var um helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni áranna 2026-2028.

2.Fjárhagsáætlun Húsakynna 2026

Málsnúmer 2510271Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun Húsakynna bs fyrir árið 2026 lögð fram til kynningar.

Tómas Haukur kynnti helstu viðhalds- og fjárfestingarverkefni sem eru áætluð á Laugalandi á árinu 2026.

3.Öryggisúttekt á íþróttamiðstöðvum sveitarfélagsins

Málsnúmer 2508025Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram öryggisúttektarskýrslur fyrir íþróttahús og íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins.

Lagt til að óska eftir því að fá tímasetta aðgerðaráætlun um úrbætur frá forstöðumanni íþróttamannvirkja fyrir næsta fund nefndarinnar sem er er áætlaður í desember.

Samþykkt samhljóða.

4.Rangárljós. Gjaldskrá 2026

Málsnúmer 2510052Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og eignanefnd leggur til að gjaldskrá Rangárljósa 2026 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

5.Fjárhagsáætlun Rangárljósa 2026

Málsnúmer 2510051Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og eignanefnd leggur til að fjárhagsáætlun fyrir Rangárljós 2026 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

6.Nýtt hesthúsahverfi á Hellu. Framkvæmdir

Málsnúmer 2509088Vakta málsnúmer

Rætt um fund sem haldinn var í Rangárhöllinni þann 12.nóv. s.l. með hagaðilum á svæðinu. Upplýst er að sveitarfélagið mun koma upp götulýsingu á ljósastaura sem komnir eru fyrir jól. þá verði brugðist við frágangi á yfirborðsvatni í hluta hverfsins í samráði við eigendur. Óskað var eftir því að hagaðilar kæmu með tillögur um að aðalaðkomu að reiðhöll og mögulegar útfærslur á reiðleiðum.

Fundi slitið - kl. 10:10.