8. fundur 15. desember 2025 kl. 08:15 - 10:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
  • Tómas Haukur Tómasson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024-2026

Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Helstu verkefni sem unnið er að núna er að koma upp lýsingu á göngustíg milli Heiðvangs og Eyjasands og meðfram Sleipnis- og Faxaflötum. Dregist hefur að fá afhent götuljós fyrir hesthúsahverfið en þau eru væntanleg í vikunni. Að auki verður farið í lagfæringar á regnvatnslögnum og stígum í hluta hesthúsahverfisins. Þá er hafin vinna við áfanga 2 við fráveitulögn að nýrri staðsetningu hreinsistöðvar á Hellu.

2.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi

Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Verið er að vinna í lýsingu, gólfefnum á efri hæð og uppsetningu á kerfisloftum. Þá verið grófjöfnun lóðarinnar. Flutningar í nýtt húsnæði eru háðir því að framleiðslutími nýs gólfdúks á neðri hæð og göngum efri hæðar, í stað þess sem eyðilagðist í flutningum, standist. Að því gefnu er gert ráð fyrir að hefja starfsemi í 2. áfanga eigi síðar en eftir páska.

3.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi

Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu. Fyrsti áfangi við jarðavinnu er í gangi. Verið er að fylla í jarðvegspúða undir sökkla og gert er ráð fyrir að því ljúki fyrir jól. Útboðsgögn eru í vinnslu og gert er ráð fyrir að hægt sé að bjóða út burðarvirki hússins fljólega eftir áramót.

4.Íþróttavöllur Hellu færsla.

Málsnúmer 2404137Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu. Rætt var um tímasetningar á lýsingu vallarins. Lýsing verður á vellinum frá 9:00-12:00 og 15:00-20:00 nú í svartasta skammdeginu. Gert verður ráð fyrir því að stýring á lýsingu verði í íþróttamiðstöðinni á Hellu. Varðandi aðstöðumál við völlinn er gert ráð fyrir að lausar kennslustofur sem eru við völlinn verði nýttar fyrir búnings- og sturtuaðstöðu og verði tilbúin í byrjun sumars. Þá verður komið fyrir aðstöðu til bráðabrigða fyrir veitingasölu og áhaldageymslu. Þá þarf í samráði við KFR að koma upp varamannaskýlum við völlinn.

5.Íþróttamiðstöð Hellu - Endurhönnun tengibyggingar

Málsnúmer 2512041Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt og hugmyndir frá íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa um nýtingu á tengibyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu.

Lagt til að hefja vinnu við þarfagreiningu á rýmum sem losna í íþróttamiðstöðinni þegar mötuneyti flyst úr kjallaranum. Í framhaldi af þarfagreiningu verði gerð frumdrög að hönnun.

Þar til að endanleg hönnun liggur fyrir er lagt til að rými í tengibyggingu verði nýtt sem aðstaða fyrir gesti í samræmi við framkomnar hugmyndir. Forstöðumanni íþróttamiðstöðva falið að vinna málið áfram með það að markmiði að aðstaðan verði klár fljótlega á nýju ári.

Samþykkt samhljóða.

6.Tæming rotþróa í RY

Málsnúmer 2506044Vakta málsnúmer

Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu málsins. Verið er að vinna drög að útboðsgögnum um tæmingu rotþróa. Einnig er verið að skoða með breytingar á samþykkt fráveitu fyrir Rangárþing ytra. Lagt til að haldinn verði sameiginlegur fundur með Rangárþingi eystra og EFLU í janúar til að fara yfir stöðu mála.
Eftir fund var farið í skoðunarferð til að skoða stöðu á framkvæmdum við 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu.

Fundi slitið - kl. 10:15.