11. fundur 27. apríl 2026 kl. 09:30 - 11:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
  • Tómas Haukur Tómasson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024-2026

Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.

Fara á í malbikun á götum á Freyvangi og Þrúðvangi fyrra hluta sumars í samráði við veitufyrirtæki. Þá verður farið að vinna að gerð göngustígs og lýsingar bak við Þjónustumiðstöð að Langasandi. Þá er búið að panta glugga í viðhaldsverkefni á eldra hluta Grunnskólans á Hellu og jafnframt verður farið í viðhald á þaki núverandi bókasafns þegar flutningum og skóla líkur. Búið er að panta glugga í viðhaldsverkefni á Laugalandi og búið að klára að ráða verktaka þar að stærstum hluta. Hönnun á ákveðnum verkþáttum (loftræsting, lýsing og hljóðvist) er í gangi. Verið er að vinna að útfærslu á nýju leiksvæði í Ölduhverfi.

2.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi

Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Þá fór hann yfir kostnað við 2. áfangann í samanburði við verðbætta kostnaðaráætlun.

Búið er að taka í notkun tvær deildir fyrir leikskólann Heklukot og mötuneytið. Verið er að vinna að flutningi á listgreinastofu gunnskólans og öðrum lokafrágangi byggingarinnar.

Fram kom að kostnaður við 2. áfangann sé í samræmi við upphaflega verðbætta kostnaðaráætlun.

3.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi

Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.

Framleiðsla á steyptum einingum er hafin og gert ráð fyrir að reisingu burðarvirkis verði lokið í byrjun september. Áætlað er að húsinu verði lokað með gluggum og þaki fyrir áramót. Gert er ráð fyrir hægt verði að taka húsið í notkun um áramótin 2027/2028.

4.Tillaga fulltrúa D-lista um uppfærða tímalínu vegna framkvæmda við stækkun skólasvæðisins á Hellu

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir tímalínu vegna byggingu við 2. áfanga Grunnskólans og 3. áfanga vegna leikskólans á Hellu.

Gert er ráð fyrir að 2. áfanga og flutningi grunnskólans, bókasafns og tónlistarskóla verði lokið næsta haust. Varðandi 3. áfanga þá verði reisingu burðarvirkis lokið í byrjun september 2026, húsinu verði lokað með gluggum og þaki fyrir næstu áramót og húsið tekið í notkun um áramótin 2027/2028.

Nefndin felur forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að taka saman upplýsingarskjal fyrir næsta reglulega fund sveitarstjórnar, þar sem frekari tímasetningar einstakra verkþátta komi fram sem nefndin getur unnið með.

5.Íþróttavöllur Hellu færsla.

Málsnúmer 2404137Vakta málsnúmer

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja innahússframkvæmdir við búnings- og sturtuaðstöðu í aðstöðuhúsi við völlinn um miðjan maí. Verið er að bíða eftir viðbótar fyllingarefni og vinnu að lokafrágangi fyrir FIFA úttekt á vellinum. Rætt var um hvaða möguleikar eru í boði við upphitun vallarins.

6.Bjargshverfi

Málsnúmer 2311062Vakta málsnúmer

Niðurstaða verðkönnunar
Tómas Haukur fór yfir niðurstöðu verðkönnunar um gatna- og veituhönnun fyrir Bjargshverfið. Tvö tilboð bárust en EFLA var með lægsta verðið. Stjórn samþykkir að ganga til samninga við EFLU um verkið.

7.Ársreikningur 2025. Rangárljós

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir niðurstöðu ársreiknings Rangárljóss fyrir árið 2025. Rekstrartekjur Rangárljóss námu 23,3 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 1,1 millj. kr. milli ára og hagnaður félagsins á árinu 2025 nam 7,8 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var jákvætt um 159,6 millj. kr. að meðtöldu stofnfé Rangárljóss 142,6 millj.kr.

Nefndin leggur til að ársreikningurinn verði samþykktur og vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða

8.Tæming rotþróa í RY

Málsnúmer 2506044Vakta málsnúmer

Niðurstaða útboðs
Lögð var fram niðurstaða útboðs í verkið Rotþróarhreinsun í Rangaárþingi ytra og Rangárþingi eystra 2026-2029 en útboðsfrestur rann út 16. apríl. Tveir verktakar skiluðu inn tilboðum Verkval og Hreinsitækni. Verkval bauð 81% af kostnaðaráætlun og Hreinsitæki 89% af kostnaðaráætlun. Tilboð Verkvals nam kr. 62,7 millj. fyrir þrjú ár.

Stjórn samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Verkval, og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi.

Fundi slitið - kl. 11:30.