1.Kjör formanns og varaformanns Framkvæmda- og eignanefndar
Málsnúmer 2607051Vakta málsnúmer
2.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024-2026
Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála.
Framkvæmdir í Freyvangi hafa tafist en lögð er áhersla á að ljúka þeim sem fyrst.
Önnur verkefni eru í eðlilegum farvegi.
Framkvæmdir í Freyvangi hafa tafist en lögð er áhersla á að ljúka þeim sem fyrst.
Önnur verkefni eru í eðlilegum farvegi.
3.Framkvæmdir á Laugalandi
Málsnúmer 2601068Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu framkvæmda á Laugalandi.
Verktakar hafa verið að störfum á undanförnum vikum og miðar framkvæmdinni vel áfram. Stefnt er að því að vinnu verði að mestu lokið áður en skóli hefst en reikna má með því að lokafrágangur teygi sig eitthvað inn í haustið.
4.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi
Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu framkvæmda.
Að undanförnu hefur verið unnið að úrbótum sem komu fram við úttektir samhliða lokafrágangi innanhúss á áfanga 2. Stefnt er að því að þessari vinnu verði lokið áður en skólastarf hefst.
5.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi
Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu framkvæmda.
Framkvæmdum við sökkla er lokið og reising eininga í 1. hluta er hafin.
Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar er falið að kalla eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.
Stefnt er að því að húsið verði fokhelt um næstu áramót.
Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar er falið að kalla eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.
Stefnt er að því að húsið verði fokhelt um næstu áramót.
6.Íþróttavöllur Hellu
Málsnúmer 2404137Vakta málsnúmer
Farið yfir tillögur að staðsetningu á frjálsíþróttavelli og áframhaldandi uppbyggingu á íþrótta- og útivistarsvæði.
Nefndin leggur til að farið verði í deiliskipulagsvinnu á afmörkuðu svæði fyrir íþrótta- og útivistarsvæði.
Sveitarstjóra falið að boða til fundar með Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd og Framkvæmda- eignanefnd ásamt hönnuði þar sem endanleg útfærsla svæðisins verði lögð til.
Sveitarstjóra falið að boða til fundar með Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd og Framkvæmda- eignanefnd ásamt hönnuði þar sem endanleg útfærsla svæðisins verði lögð til.
7.Bjargshverfi
Málsnúmer 2311062Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu gatnahönnunar
Verkfræðistofan Efla vinnur að lagna- og gatnahönnun í samræmi við deiliskipulags Bjargshverfis. Ræddur var möguleiki á að auglýsa lóðir í hluta hverfisins í haust.
8.Erindi vegna göngustígs meðfram Ytri-Rangá.
Málsnúmer 2607048Vakta málsnúmer
Erindi frá Loga Harðarsyni vegna göngustígs meðfram Ytri-Rangá frá Hellu að Ægissíðufossi.
Nefndin þakkar fyrir erindið og tekur undir nauðsyn þess að lagfæra stíginn og að hann verði aðgengilegur sem flestum. Þjónustumiðstöð er falið að lagfæra varasama staði sem allra fyrst.
Í framhaldinu er lagt til að fjármagn verði sett í verkefnið í fjárhagsáætlun næsta árs.
Í framhaldinu er lagt til að fjármagn verði sett í verkefnið í fjárhagsáætlun næsta árs.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Samþykkt