2. fundur 21. september 2026 kl. 08:15 - 11:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
  • Tómas Haukur Tómasson
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri

1.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi

Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við 2. áfanga viðbyggingar Grunnskólans á Hellu frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs.

Þar kemur fram að kostnaðaráætlun hönnuða vegna framkvæmdarinnar hljóðaði uppá 1615 m.kr. á verðlagi í mars 2023. Fyrir liggur að endanlegur framkvæmdakostnaður er 1670 m.kr sem gerir samtals 602.888 kr/m2. Smávægilegur lokafrágangur er í vinnslu og verður unnið á næstu vikum.

Kostnaður við lóð er áætlaður 220 m.kr. Frágangi við lóð verður áfangaskipt og unnið að hluta samhliða frágangi á leikskólalóð. Áætlað er að ráðstafa 15 m.kr. í 1. áfanga lóðar milli grunnskólabyggingar og íþróttahús haustið 2026.

2.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi

Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við nýbyggingu leikskóla frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs. Unnið er að reisingu burðarvirkis nýs leikskóla og eru áætluð verklok í lok október 2026. Í framhaldi af því verður húsinu lokað.

Áætlaður framkvæmdakostnaður leikskóla er 1410 m.kr. eða um 920.000 kr/m2. Það er fyrir utan lóðafrágang. Gengið var til samninga við Steypustöðina um framleiðslu og reisingu burðarvirkis og Stórverk um jarðvinnu og lagnir í grunni.

Gert var ráð fyrir 760 m.kr. á fjárfestingaráætlun þessa árs í leik- og grunnskóla. Ljóst er að auki þurfi við fjárheimildir í fjárfestingaráætlun ársins ef ljúka á við þær framkvæmdir sem stefnt var að.

3.Íþróttavallarsvæðið á Hellu

Málsnúmer 2404137Vakta málsnúmer

Töluvert hefur verið unnið í umhverfi íþróttavallar og gerðar úrbætur fyrir frjálsar íþróttir þar sem útbúin hafa verið kastsvæði ásamt því að vinna með að tyrfa svæðið og snyrta.

Einnig er búið að smíða tvö vegleg varamanna skýli fyrir knattspyrnuvöllinn.

Knattspyrnuvöllurinn var tekinn út af óháðum skoðunaraðila og kom sú úttekt vel út.

Lausu kennslustofurnar sem notaðar voru fyrir verknám og myndlist losnuðu í vor. Þar hefur nú verið byrjað að innrétta búningsklefa og snyrtingar fyrir íþróttasvæðið. Búið er að klæða húsið að utan. Millivegur eru komnir en eftir er að ganga frá sturtum, mála og ganga frá gólfefnum. Búð er að leggja frárennsli utan með húsi fyrir sturtur og snyrtingar.

Kallað var eftir upplýsingum frá verktaka gervigrasvallarins varðandi áhrif vetraraðstæðna á völlinn. Samkvæmt skriflegu svari verktaka eru fæstir vellir af þessari gerð upphitaðir og það þá gert til þess að auka nýtingu en hefur ekki áhrif á endingu og gæði.

Gervigrasvöllurinn hefur staðist allar úttektir og fengið alþjóðlega FIFA vottun.

Hitalagnir undir vellinum voru vatnstæmdar. Áfram verða skoðaðar mögulegar leiðir til að koma hitun á völlinn.

Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi frjálsíþróttavallar í landi Helluvaðs. Deiliskipulagið fer í formlegt deiliskipulagsferli á næstu vikum.

Lagt fram til kynningar.

4.Fjárfestingar- og viðhaldsverkefni

Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu fjárfestingar- og viðhaldsverkefna sem áætluð eru á árinu 2026.

Lagt til að fjármálastjóri verði boðaður á næsta fund framkvæmda- og eignanefndar þar sem farið verður yfir stöðu verkefna og endanlega fjármögnun.

Samþykkt samhljóða.

5.Erindi frá íbúum fyrir framkvæmda- og eignanefnd

Málsnúmer 2609034Vakta málsnúmer

Farið yfir erindi sem hafa borist.

Erindin fjalla um:
1) Slátt og viðgerð á heimkeyrslu
2) Fjölgun skemmdarverka í Rangárþingi ytra
3) Erindi um ruslatunnur og hundagerði
4) Mýri við Laufskála 12-22
5) Göngustígur milli Eyjasands og Heiðvangs, akstur ökutækja
6) Erindi vegna vöntun á bekkjum við göngustíg að Ytri-Rangá
7) Gangstétt-ítrekun
8) Bílastæði við íþróttamiðstöð
9) Ósk um kostnaðarþátttöku vegna girðingar

Sveitarstjóra falið að svara erindum.

Samþykkt samhljóða.

6.Úttekt á göngustíg við Ytri-Rangá

Málsnúmer 2607048Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Næsti fundur framkvæmda- og eignanefndar verður haldinn mánudaginn 5. október kl. 13:00.

Fundi slitið - kl. 11:30.