3. fundur 05. október 2026 kl. 16:00 - 18:10 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
  • Tómas Haukur Tómasson
  • Klara Viðarsdóttir
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri

1.Viðhalds og framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 2408032Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárfestinga- og viðhaldsáætlun.

Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram frekari gögn á næsta fundi nefndarinnar.

2.Ljósastaurar og reiðvegir í nýju hesthúsahverfi

Málsnúmer 2610003Vakta málsnúmer

Lagt er fram erindi frá Óðni Erni Jóhannssyni varðandi lýsingu og reiðvegi í nýju hesthúsahverfi.

Framkvæmda- og eignanefnd þakkar fyrir erindið.

Lagt til að setja upp lágmarks lýsingu með vegi frá Sleipnisflötum að hverfinu til þess að tryggja öryggi vegfarenda. Einnig lagt til að útvega rör í ræsi. Framkvæmdin fari fram fyrir áramót 2026.

Samþykkt samhljóða.

3.Skólalóð við nýbyggingar á Hellu

Málsnúmer 2209059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs um frágang skólalóðar við Grunnskólann á Hellu.

4.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi

Málsnúmer 2402047Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs um uppbyggingu leikskólans á Hellu.

Næsti fundur framkvæmda- og eignanefndar fer fram fimmtudaginn 22. október kl. 08:15.

Fundi slitið - kl. 18:10.