16. fundur 05. september 2024 kl. 16:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Viðar M. Þorsteinsson formaður
  • Sóley Margeirsdóttir aðalmaður
  • Lárus Jóhann Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Ragnar Ævar Jóhannsson embættismaður
  • Jóhann G. Jóhannsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Viðar M. Þorsteinsson formaður

1.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026

2208039

Val í ráð heilsueflandi samfélags. Staða verkefnis og framtíð.
Skólar og leikskólar hafa verið hvattir til að sækja um í að verða Heilsueflandi, gulur september er hafinn og allar stofnanir komnar með veggspjöld til að styðja við það og verið sendur póstur til stuðnings um hvernig hægt sé að taka þátt og styðja við. Gulur september er til að auka meðvitund um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Guli dagurinn er 10. sept.
Eins hafa verið pantaðir fánar, standar og veggspjöld sem styðja við heilsueflandi samfélag og var farið í gegnum efnið.

Að tillögu verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarmála verður stýrihópur heilsueflandi samfélags með 3 meðlimi. Sá hópur verður svo studdur af stærri samráðsvettvangi.

Listinn verður birtur eftir næsta fund nefndarinnar.

2.Félagsmiðstöðin Hellirinn

2405077

Rakel kynnir starfsemi Hellisins og nýjan opnunartíma og áherslur.
Góð yfirferð forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Hellisins. Farið var yfir opnunartíma sem áætlaður er mánudaga og miðvikudaga ásamt uppákomum annan hvern föstudag. Samstarf með félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli er í skoðun.
Það verður tiltekt og endurnýjun á húsgögnum og græjum ásamt því að mála húsnæðið.
Klúbbastarf verður prófað og skerping á reglum og umgengni.
Þökkum Rakel kærlega fyrir.

3.Erindisbréf ungmennaráðs

2401060

Val á einstaklingum í Ungmennaráð.

"Tveir fulltrúar og tveir til vara sem Heilsu, íþrótta og tómstundanefnd Rangárþings ytra velur úr hópi þeirra sem eru ekki á grunnskólaaldri. Kjörinn er einn aðal- og varamaður til skiptis í eitt ár og hinir í tvö ár. Nefndin skal við valið hafa að leiðarljósi að þessir fulltrúar endurspegli sem breiðastan hóp þessa aldurshóps í Rangárþingi ytra"
Kallað var eftir tilnefningum.

4.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026

2208039

Heilsu- og íþróttavika 23. september - 30. september 2024.
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningamála fór yfir aðdraganda iþróttaviku, 500.000kr styrks sem var úthlutað og dagskránna sem er í þróun. Samvinna við RE vegna þessarar viku var einnig rædd. Íþróttavikan endar á 40. ára afmælishátíð sundlaugarinnar laugardaginn 22. september.

5.Aldamótaskógur - skipulag útivistarsvæðis

2408044

Áform um nýtingu svæðisins, Töðugjaldahlaup 2024 ofl.
Verkefnisstjóri íþrótta og fjölmenningarmála fór yfir hugmyndir að stígagerð og betri nýtingu aldamótaskógar til útivistar. Samráðsfundur sem haldinn verður með skógræktinni og tengdum aðilum, áætlaður 25.september.

6.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026

2208039

Hjólagarður og hundagarður - hugmynd frá íbúa.
Farið var yfir tillögur frá íbúa varðandi hjólagarð og hundagarð.

Nefndinni leist vel á hugmyndirnar og vísar málinu til sveitastjórnar til nánari skoðunar.

7.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026

2208039

Hugmynd frá íbúa - hugleiðsla fyrir ófrískar konur - mindfulness for pregnant women
Farið var yfir hugmynd íbúa að hugleiðslu fyrir ófrískar konur. Umsókn í menningarsjóð og beiðni um styrk til kaupa á búnaði, kubbadýnur og yoga kodda og leigu á safnaðarheimili: 258.600kr

Nefndin tók hugmyndina til skoðunar en vísar málinu frá.

8.Foreldrakönnun Umf. Heklu 9.-13. ágúst 2024

2409021

Foreldrakönnun Umf Heklu
Farið var yfir foreldrakönnun Umf. Heklu frá því í ágúst og niðustöður ræddar.

Fundi slitið.