21. fundur 07. maí 2025 kl. 16:30 - 18:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Viðar M. Þorsteinsson formaður
  • Sóley Margeirsdóttir aðalmaður
  • Lárus Jóhann Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Jóhann G. Jóhannsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Jóhannsson embættismaður

1.Svæðisfulltrúi UMFÍ og ÍSÍ

2504029

Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir svæðisstjóri UMFÍ og ÍSÍ á Suðurlandi kynnir starfsvið sitt, svæðisstöðvar íþróttahéraða og tekur við spurningum.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir svæðisstjóri UMFÍ og ÍSÍ á Suðurlandi kynnti starfsvið sitt, svæðisstöðvar íþróttahéraða og tók við spurningum. Áhugaverðar umræður. Nefndin þakkar Bryndísi Láru kærlega fyrir kynninguna.

2.Sumarnámskeið 2025

2412034

Sumarnámskeið og leikjanámskeið - staða

Kynningadagur fyrir sumarnámskeið 16.maí.
Sumarnámskeið og leikjanámskeið - staðan kynnt fyrir nefndinni af íþrótta-og fjölmenningarfulltrúa.
Kynningadagur fyrir sumarnámskeið verður 16.maí kl. 16.00

3.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026

2208039

Fundagerð stýrihóps Heilsueflandi samfélags til kynningar.
Fundagerð stýrihóps Heilsueflandi samfélags var kynnt fyrir nefndinni.

Fundi slitið - kl. 18:00.