24. fundur
06. nóvember 2025 kl. 16:30 - 18:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
Viðar M. Þorsteinssonformaður
Magdalena Przewlockaaðalmaður
Sóley Margeirsdóttiraðalmaður
Lárus Jóhann Guðmundssonaðalmaður
Brynhildur Sighvatsdóttirvaramaður
Starfsmenn
Ragnar Ævar Jóhannssonembættismaður
Jóhann G. Jóhannssonembættismaður
Fundargerð ritaði:Jóhann G. Jóhannssonembættismaður
1.Öryggisúttekt á íþróttamiðstöðinni Hellu
2508025
Öryggisúttektarskýrslur fyrir íþróttahús sveitarfélagsins rýndar.
Nefndin fagnar skýrslunum og þakkar fyrir þær. Nefndin ásamt Valtý Valtýssyni sveitastjóra Ásahrepps fóru yfir skýrslurnar og rýndu.
Bókun nefndarinnar:
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar BSI fyrir ítarlegar skýrslur um ástand íþróttamannvirkja í Rangárþingi ytra. Skýrslurnar undirstrika mikilvægi reglubundinna öryggisúttekta þar sem betur sjá augu en auga og benda jafnframt á fjölmörg smærri viðhaldsatriði sem starfsmenn hafa ítrekað bent á en ekki fengist unnin vegna anna hjá Þjónustumiðstöð. Nefndin leggur ríka áherslu á að laga framkvæmdahlið úrbóta: skýrar valdheimildir, ábyrgð og verkferlar þurfa að liggja fyrir þannig að ekki sé vísað milli embættismanna mánuðum og árum saman né vísað stöðugt til skorts á mannafla eða fjárheimildum; verkefni sem þegar liggja fyrir skulu kláruð í réttri forgangsröð. Jafnframt telur nefndin nauðsynlegt að rýmka heimildir forstöðumanna íþróttamannvirkja til að ráðstafa smærri viðhaldsverkefnum og kalla til viðeigandi löggilta verktaka án óþarfa tafa. Nefndin vonar að skýrslurnar verði hvatning til ráðamanna sveitarfélagsins um að viðhalda snyrtilegu og öruggu umhverfi fyrir íbúa og gesti en fyrst og fremst að tryggja öruggt umhverfi fyrir börnin okkar í öllu íþrótta- og tómstundastarfi. Nefndin ákveður að funda að nýju eftir þrjár vikur og kallar þá sérstaklega eftir mætingu forstöðumanns eignaumsjónar, forstöðumanns íþróttamannvirkja og framkvæmdastjóra sveitarfélagsins til að gera grein fyrir þeim atriðum sem hafa verið kláruð og leggja fram skriflega, tímasetta áætlun með ábyrgðaraðilum og forgangsröðun um lok annarra tilgreindra atriða.
Bókun forstöðumanns íþróttamannvirkja:
Til að bregðast við ábendingum í skýrslu BSI og sinna samhliða viðhaldi og endurbótum á íþróttamannvirkjum leggur forstöðumaður íþróttamannvirkja til að hann taki að sér verkefni er varðar viðhald og endurbætur á íþróttamannvirkjum í samstarfi við forstöðumann eigna- og framkvæmdasviðs. Breyta mætti vaktaskipulagi hans þannig að vinnan nýtist betur í þessi verkefni, án teljandi kostnaðarauka fyrir sveitarfélagið.

Vísað áfram á sveitastjórn og Húsakynni BS.