28. fundur 19. mars 2026 kl. 16:30 - 18:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Viðar M. Þorsteinsson formaður
  • Magdalena Przewlocka aðalmaður
  • Sóley Margeirsdóttir aðalmaður
  • Lárus Jóhann Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ragnar Ævar Jóhannsson embættismaður
  • Jóhann G. Jóhannsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Jóhannsson

1.Félagsmiðstöðin Hellirinn - skýrsla 2025

Málsnúmer 2508024Vakta málsnúmer

Umsjónarmaður félagsmiðstöðvar fer yfir árið 2025 og fleira.
Umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar fór yfir skýrslu og ræddi starfsemina. Nefndin þakkar yfirferðina.

2.Skipulag íþróttahúsa vegna þorrablóta

Málsnúmer 2603016Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamannvirkja leggur til skipulag íþróttahúsa vegna þorrablóta
Forstöðumaður íþróttamannvirkja fór yfir nýja tillögu skipulags vegna þorrablóta í íþróttahúsum.

3.Aðsóknartölur íþróttamiðstöðva

Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamannvirkja leggur fyrir nefndina aðsóknartölur íþróttamiðstöðva 2025.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði fyrir nefndina aðsóknartölur íþróttamiðstöðva 2025.

4.Opnunartímar sundlauga

Málsnúmer 2603014Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamannvirkja leggur til opnunartíma sundlauga sumarið 2026.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja lagði til opnunartíma sundlauga sumarið 2026.
Lögð er til breyting fyrir sundlaugina á Laugalandi, að sumaropnun verði frá 5.júni ? 16. ágúst í stað 9. ágúst.
Nefndin hvetur forstöðumann til að setja myndir og færslur reglulega á Facebook og Instagram síður íþróttamiðstöðva og deila á íbúasíður.

5.Öryggisúttekt á íþróttamiðstöðinni Hellu

Málsnúmer 2508025Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamiðstöðva fer yfir stöðu lagfæringa á íþróttamiðstöðvum.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva fór yfir stöðu lagfæringa á íþróttamiðstöðvum. Það stendur til að yfirfara rennibrautir á Hellu og Laugalandi. Unnið verður áfram að tryggja öryggi í íþróttamiðstöðvum.

6.Gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2026

Málsnúmer 2511247Vakta málsnúmer

Hugmynd að breytingum á gjaldskrá íþróttamiðstöðva.
Hugmynd að breytingum á gjaldskrá íþróttamiðstöðva er samþykkt.

7.Skipulag sundlaugabakka á Hellu

Málsnúmer 2603019Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamiðstöðva kynnir hugmynd að breytingu á sundlaugarbakka.
Nefndin þakkar fyrir tillögurnar, ljóst er að endurnýjunnar er þörf á innrauðaklefanum á Hellu en vegna mikillar ásóknar er mikil viðhaldsþörf og núverandi klefi annar ekki slíkri notkun. Hugmyndin styður vel við þróun skipulags íþróttamiðstöðvarinnar og nefndin leggur til að ráðist verði í að kostnaðargreina verkefnið.
Nefndin leggur til að sambærileg tillaga verði unnin fyrir Laugaland og lögð fyrir á næsta fundi.

8.Leikfimi 60

Málsnúmer 2411026Vakta málsnúmer

Minnisblað vegna samnings leikfimi 60 til kynningar
Lagt var fram minnisblað vegna samnings leikfimi 60 og samanburður við önnur sveitarfélög. Nefndin þakkar fyrir yfirferðina og óska eftir að málið verði unnið áfram.

9.Ungmennaþing 2025

Málsnúmer 2504068Vakta málsnúmer

Ungmennaþing sem haldið var 19. febrúar síðastliðinn.
Ungmennaþing sem haldið var 19. febrúar síðastliðinn rætt. Heildarniðurstöður kynntar.

10.Sumarnámskeið

Málsnúmer 2601060Vakta málsnúmer

Yfirlit Garps vegna leikjanámskeiða 2024.
Yfirlit Garps vegna leikjanámskeiða 2024 lagt fram frá formanni.

11.Vígsla gervigrasvallar

Málsnúmer 2603018Vakta málsnúmer

Fyrirhuguð vígsla gervigrasvallar 23.apríl sumardaginn fyrsta.
Fyrirhuguð vígsla gervigrasvallar 23.apríl sumardaginn fyrsta rædd.

Fundi slitið - kl. 18:45.