29. fundur 30. apríl 2026 kl. 16:30 - 17:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Viðar M. Þorsteinsson formaður
  • Magdalena Przewlocka aðalmaður
  • Sóley Margeirsdóttir aðalmaður
  • Lárus Jóhann Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ragnar Ævar Jóhannsson embættismaður
  • Jóhann G. Jóhannsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Jóhannsson

1.Myndataka stjórna, nefnda og ráða

2505020

Myndataka af Heilsu-,íþrótta- og tómstundanefnd.
Myndataka af Heilsu-,íþrótta- og tómstundanefnd.

2.Opnunartímar sundlauga

2603014

Endurskoðun opnunartíma sundlaugarinnar á Laugalandi sumarið 2026.
Nefndin beinir því til næstu sveitarstjórnar að við fjárhagsáætlunargerð næsta árs og áranna þar á eftir verði auknu fjármagni beint til reksturs sundlaugarinnar á Laugalandi. Markmiðið með þessu væri að skapa möguleika á auknum opnunartíma sundlaugarinnar með það fyrir augum að sundlaugin á Laugalandi verði ákjósanlegt val fyrir hina ýmsu hópa samfélagsins, allt árið um kring. Breytingar gerast ekki á einni nóttu og því lykilatriði að stilla verkefnið til langs tíma, sinna markaðssetningu sem skyldi og fylgjast gaumgæfilega með árlegri notkun laugarinnar. Í heilsueflandi samfélagi líkt og Rangárþingi ytra væru tvær vel reknar sundlaugar eitthvað sem gætum hreykt okkur af.

Tillaga nefndarinnar að opnunartíma:
Stytta opnunartíma um helgar og bæta við opnun tvo daga í miðri viku
Gæti litið svona út:
föstudagar 15:00 - 21:00
laugardagar 11:00 - 18:00
sunnudagar 10:00 - 15:00

þriðjudagar 16:00 - 20:00*
fimmtudagar 16:00 - 20:00*

Ef þessi leið er farin þá þarf óska eftir viðauka fyrir annan daginn.

* með þeim fyrirvara að það fáist starfsfólk til að vinna á þessum tíma
Nefndin þakkar starfsmönnum nefndarinnar fyrir góð störf og gott samstarf.

Fundi slitið - kl. 17:15.