1.Kosning varaformanns Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar.
2606064
Kjör varaformanns. Í 2. gr. erindisbréfs nefndarinnar er kveðið á um að nefndarfólk kjósi varaformann á fyrsta fundi nefndarinnar.
Kjör varaformanns. Í 2. gr. erindisbréfs nefndarinnar er kveðið á um að nefndarfólk kjósi varaformann á fyrsta fundi nefndarinnar.
Tillaga formanns um varaformann: Erla Sigríður Sigurðardóttir
Samþykkt samhljóma.
Tillaga formanns um varaformann: Erla Sigríður Sigurðardóttir
Samþykkt samhljóma.
2.Opnunartímar sundlaugar Laugaland 2025
2502001
Yfirferð forstöðumanns íþróttamiðstöðva á stöðu sundlaugarinnar á Laugalandi.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva fór yfir stöðu sundlaugarinnar á Laugalandi.
Bókun:
Nefndin telur óásættanlegt að annað sumarið í röð hafi ekki verið unnt að tryggja opnun sundlaugarinnar á Laugalandi í júní vegna bilana í tækjabúnaði. Tryggja þarf nauðsynlegt fjármagn til viðhalds og endurnýjunar búnaðar svo rekstraröryggi laugarinnar verði bætt og hægt verði að opna hana á áætluðum tíma. Nefndin óskar eftir að ástandsskoðun á tækja-, hreinsi- og lagnabúnaði sundlaugarinnar liggi fyrir eigi síðar en 1. okt 2026. Í framhaldi verði lögð fram tímasett og kostnaðarmetin áætlun um nauðsynlegar úrbætur eigi síðar en 1. nóvember 2026, þannig að unnt verði að taka afstöðu til fjármögnunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Samhliða verði kannað hvort hagkvæmt og raunhæft sé að innleiða aðrar viðurkenndar hreinsi- og sótthreinsilausnir sem geti dregið úr klórnotkun og aukið rekstraröryggi. Niðurstaða þeirrar skoðunar liggi fyrir samhliða kostnaðarmetinni áætlun. Nauðsynlegum úrbótum verði lokið eigi síðar en 15. maí 2027 svo tryggt verði að sundlaugin geti opnað samkvæmt áætlun í júní 2027. Nefndin vísar jafnframt til bókunar sinnar frá 30. apríl um að auknu fjármagni verði beint til reksturs sundlaugarinnar á Laugalandi og að unnið verði markvisst að auknum opnunartíma og heilsársnotkun hennar. Forsenda þeirrar uppbyggingar er að grunnbúnaður laugarinnar sé öruggur, traustur og í góðu ástandi. Nefndin leggur til að unnin verði viðbragðsáætlun vegna skólasunds á Laugalandi ef ekki er unnt að tryggja opnun sundlaugarinnar.

3.Leikfimi 60
2411026
Fyrirkomulag vegna leikfimi 60 .
Nefndin felur íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að afla frekari gagna og hefja samtal við þartilbæra aðila vegna leikfimi 60 .
ÁJR vék af fundi
4.Samstarfssamningur akstursíþróttadeild Umf Hekla
2511010
Endurskoðun á "þjónustu- og lóðaleigusamnings vegna útbreiðslu á íþrótta- og tómstundarstarfi í Rangárþingi ytra" vegna akstursíþróttadeildar Heklu.
Nefndin vísar málinu til byggðarráðs/sveitarstjórnar.
ÁJR kemur á fund
5.Íþróttafélög - 2025 ársreikningar og skýrslur
2606053
Kynning á ársreikningum íþróttafélaga.
Ársreikningar íþróttafélaga voru kynntir, fyrir utan ársreikning Geysis sem hefur ekki borist.
Nefndin fagnar blómlegum rekstri íþrótta- og ungmennafélaga í sveitarfélaginu.
Nefndin fagnar blómlegum rekstri íþrótta- og ungmennafélaga í sveitarfélaginu.
6.Samstarf, fjölíþróttaiðkun og árekstrar í íþróttastarfi í Rangárþingi ytra
2606063
Ungmennafélagið Hekla leggur til að komið verði á formlegra og reglulegra samráði milli félaganna við skipulagningu æfinga og starfsemi, bæði fyrir sumar- og vetrarstarf. Markmiðið með slíku samráði væri að lágmarka árekstra þar sem það er mögulegt og skapa þannig sem best skilyrði fyrir börn og unglinga til að taka þátt í fjölbreyttu íþróttastarfi innan sveitarfélagsins. Væri æskilegt ef t.d. Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúi sveitarfélagsins gæti tekið þátt í slíku samtali.
Nefndin felur íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að koma á samtali milli íþrótta- og ungmennafélaga í sveitarfélaginu.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Fulltrúar D lista í heilsu- íþrótta og tómstundanefnd hlakka til fyrsta fundar nefndarinnar á kjörtímabilinu og hlakka til samstarfsins framundan. Fulltrúar D lista vilja þó halda því til haga að forsenda árangursríkrar vinnu eru fagleg vinnubrögð. Það að erindisbréf nefndarinnar sé ekki til umfjöllunar á fyrsta fundi hennar sem og að það vanti ýmist hluta af eða öll gögn undir ýmsum dagskrárliðum er ekki góður jarðvegur til faglegrar ákvarðanatöku. Forsenda þess að geta tekið upplýsta ákvörðun er að geta lesið sér til í fundargögnum, sem vantar í of mörgum tilfellum. Fulltrúar D lista mælast til þess að í framtíðinni fylgi öll viðeigandi gögn fundarboðum til þess að tryggja faglega umfjöllun og afgreiðslu.