1.Fundartími Heilsu-, íþrótta- og tómstundarnefndar 2026-2030
Málsnúmer 2607058Vakta málsnúmer
Fundartími Heilsu-, íþrótta- og tómstundarnefndar 2026-2030. Fastur fundartími valinn.
Fastur fundartími Heilsu-, íþrótta- og tómstundarnefndar 2026-2030 verður fyrsti miðvikudagur í mánuði kl. 16:30
2.Úttekt og efling leikvalla sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2607057Vakta málsnúmer
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd óskar eftir heildstæðri úttekt á stöðu leikvalla í sveitarfélaginu. Markmiðið er að fá skýra yfirsýn yfir ástand þeirra, fyrirhugaðar úrbætur og möguleika á frekari uppbyggingu.
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd fagnar því að það sé þegar búið að gera úttekt á stöðu leikvalla í sveitarfélaginu.
Nefndin leggur til að við fjárhagsáætlun verði gert forgangsáætlun í samræmi við áherslur úttektaraðila.
Nefndin leggur til að við fjárhagsáætlun verði gert forgangsáætlun í samræmi við áherslur úttektaraðila.
3.Leikfimi 60
Málsnúmer 2411026Vakta málsnúmer
Frekari gögn og niðurstaða samtals við þartilbæra aðila vegna leikfimi 60 .
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gerður verði þjónustusamningur við FEBRANG líkt og er gert við önnur félagasamtök sem hafa starfsemi í sveitarfélaginu.
4.Heilsueflandi samfélag 2022 - 2026
Málsnúmer 2208039Vakta málsnúmer
Skipun stýrihóps Heilsueflandi samfélags 2026-2030.
Tillaga Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa er að skipun stýrihóps Heilsueflandi samfélags 2026-2030 haldi áfram með sama hætti. Einnig er lagt til að sömu aðilar haldi áfram enda hefur stýrihópurinn aðeins verið við störf í rúmt eitt og hálft ár.
Nefndin felur Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að ræða við viðkomandi aðila um áframhaldandi setu í hópnum.
Nefndin felur Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að ræða við viðkomandi aðila um áframhaldandi setu í hópnum.
5.Ungmennaráð Rangárþings ytra - 2026-2030
Málsnúmer 2607059Vakta málsnúmer
Val í Ungmennaráð veturinn 2026-2027.
Nefndin felur Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að hafa samband við skólana og félagsmiðstöðina og kalla eftir tilnefningum í Ungmennaráð.
Fundi slitið - kl. 18:30.