1.Öryggisúttekt á íþróttamiðstöðinni Hellu
Málsnúmer 2508025Vakta málsnúmer
Uppfærðar öryggisúttektir á íþróttamannvirkjum.
Forstöðumaður íþróttamannvirkja fór yfir stöðu öryggisúttekta á íþróttamannvirkjum.
Nefndin fagnar því sem hefur verið lagfært í samræmi við öryggisúttektir.
Nefndin leggur áherslu á:
Laugaland - súlur og steyptir kantar við áhorfendasvæði verði klædd með viðeigandi efni.
Hella - viðeigandi geymsla fyrir búnað sem getur valdið slysahættu. Nauðsynlegt er að veggir sem klæddir hafa verið með spónarplötum verði klæddir með viðurkenndu dempandi efni eins og bent er á í skýrslunni.
Nefndin beinir því til sveitarstjórnar við fjárhagsáætlun næsta árs að gert verði ráð fyrir fjármagni í viðeigandi viðhald og úrbætur.
Einnig beinir nefndin því til stjórnar Húsakynna að ráðist verði í skoðun á raflögnum af faggildri skoðunarstofu eins og nefnt er í skýrslunni.

2.Samráðsfundur íþróttafélaga í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2609050Vakta málsnúmer
Haldin var samráðsfundur íþróttafélaga í Rangárvallasýslu 26.ágúst kl. 17.15.
Mætt voru: Íþrótta og tómstundafulltrúi Rangárþing eystra, formaður Garps (í fjarfundarbúnaði), formaður Heklu, formaður Skyttna, varaformaður Geysis, forstöðumaður íþróttamannvirkja RY, Formaður KFR, formaður Dímons og Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúi RY.

Nefndin þakkar fyrir kynninguna á samráðsfundi íþróttafélaga í Rangárvallasýslu 26.ágúst kl. 17.15.
Nefndin leggur til að samráðsfundir séu haldnir tvisvar á ári hið minnsta, fyrir lok apríl að vori og fyrir 10. ágúst að hausti til að samræma og ræða íþróttastarf og forðast óþarfa árekstra í starfi.

3.Heilsueflandi samfélag 2026-2030
Málsnúmer 2608010Vakta málsnúmer
Heilsueflandi stýrihópur, tillögur.
Nefndin samþykkir Ástþór Jón Ragnheiðarson, Eydís Hrönn Tómasdóttir og Karen Eva Sigurðardóttir í stýrihóp Heilsueflandi samfélags.
4.Ungmennaráð Rangárþings ytra - 2026-2030
Málsnúmer 2607059Vakta málsnúmer
Ungmennaráð tillögur. Tveir fulltrúar og tveir til vara sem Heilsu, íþrótta og tómstundanefnd Rangárþings Ytra velur úr hópi þeirra sem eru ekki á grunnskólaaldri. Kjörnir eru einn og tveir aðal- og varamenn til skiptis í eitt ár og hinir í tvö ár. Nefndin skal við valið hafa að leiðarljósi að þessir fulltrúar endurspegli sem breiðastan hóp þessa aldurshóps í Rangárþingi Ytra.
Ungmennaráð tillögur.
Grunnskólinn á Hellu -
Aðalmaður er Hafdís Laufey (10. Bekk)
Varamaður Bóas Óli (9. Bekk)
Laugalandsskóli
Aðalmaður: Eldey Eva (10.bekk)
Varamaður: Hákon Þór (10.bekk)
Einn fulltrúi úr Félagsmiðstöðinni Hellinum og einn til vara sem valinn er árlega.
Hellirinn
Aðalmaður: Magnús Steingrímur (10.bekkur)
Varamaður: Dóra María (9.bekk).
HÍT nefnd
Tveir fulltrúar og tveir til vara sem Heilsu, íþrótta og tómstundanefnd Rangárþings Ytra velur úr hópi þeirra sem eru ekki á grunnskólaaldri. Kjörnir eru einn og tveir aðal- og varamenn til skiptis í eitt ár og hinir í tvö ár. Nefndin skal við valið hafa að leiðarljósi að þessir fulltrúar endurspegli sem breiðastan hóp þessa aldurshóps í Rangárþingi Ytra.
Eitt ár: Aðalmaður: Ómar Azfar Valgerðarson Chattha, Varamaður: Helga Fjóla Erlendsdóttir.
Flytjast frá því í fyrra
Valin í tvö ár: Aðalmaður: Jóhanna Gerður Hrannarsdóttir, Varamaður: Emilija Obrycka.

5.Frístundastyrkur
Málsnúmer 2411004Vakta málsnúmer
Minnisblað um fjölgun árganga fyrir frístundastyrk.
Nefndin þakkar fyrir samantektina og óskar eftir kortlagningu á íþrótta- og tómstundarstarfi í RY á leik-, grunn-, og framhaldsskólastigi.
6.Gönguleið að Ægisíðufossi
Málsnúmer 2608058Vakta málsnúmer
Ástand gönguleiðar að Ægisíðufossi frá Hellu
Kynning á ástandi gönguleiðar að Ægisíðufossi frá Hellu. Nefndin leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu gönguleiðarinnar og fjölgun bekkja á leiðinni.
7.Töðugjaldahlaupið
Málsnúmer 2608059Vakta málsnúmer
Töðugjaldahlaupið 2026
Nefndin þakkar fyrir frábæra umgjörð á viðburðinum og það er mikil ánægja með Töðugjaldahlaupið.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Fulltrúar D lista óska eftir því að tillaga D lista um frístundastyrk og tillaga D lista um Landsmót 50 á Hellu 2027 sem send var nefndinni 5.október verði tekin inn á dagskrá fundarins og verði nr. 4 og 5 og aðrir liðir færast sem því nemur.
Tillagan felld með þremur atkvæðum (VMÞ, ESS, AEL) gegn tveimur (ÁJR, SM)
Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista harma að ekki hafi verið fallist á að taka fyrir með afbrigðum tillögur fulltrúanna um breytingar á reglum um frístundastyrk og Landsmót UMFÍ 50 á Hellu 2027.
Sú framkvæmd að mál séu tekin inn á dagskrá með afbrigðum er vel þekkt í stjórnsýslu Rangárþings ytra og hefur ítrekað verið beitt á fundum sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda. Við yfirferð fundargerða frá 1. júní 2022 hafa fulltrúar D-lista fundið að minnsta kosti 53 einstök mál sem tekin hafa verið inn á dagskrá funda með afbrigðum.
Fundarboð þessa fundar var sent 5. október kl. 15:10 vegna fundar 7. október kl. 16:30, eða 49 klukkustundum og 20 mínútum fyrir fund. Tillögur fulltrúa D-lista voru sendar sama dag kl. 22:12. Frá því fundarboð barst og þar til tveggja sólarhringa fyrir fund voru því einungis 1 klukkustund og 20 mínútur.
Fulltrúar D-lista telja óraunhæft að ætlast til þess að nefndarfulltrúar hafi á þeim tíma lokið yfirferð fundargagna, tekið afstöðu til þess hvort tilefni sé til að leggja fram sérstakar tillögur, mótað þær og komið þeim á framfæri.
Verði sú framkvæmd viðhöfð að erindi nefndarfulltrúa þurfi undantekningarlaust að berast eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund telja fulltrúar D-lista nauðsynlegt að fundarboð og fundargögn berist með nægilegum fyrirvara til þess að allir nefndarfulltrúar hafi raunhæft tækifæri til að nýta þann rétt.
ÁJR
SM
Bókun Á-lista:
Mál eru aðeins tekin inn með afbrigðum ef þau þola enga bið, sem er ekki raunin hér. Líkt og fulltrúa D- lista hefur verið sagt verður næsti fundur nefndarinnar í síðasta lagi 4. nóvember og verða þessi mál á dagskrá þar.
Beiðnir um að nefndin taki fyrir mál þurfa að berast með að minnsta kosti tveggja sólarhringa fyrirvara sem var ekki í þessu tilfelli þar sem að tölvupóstur frá fulltrúa D-lista berst kl 22:12 mánudaginn 5. október.
Fulltrúar Á-lista telja því hvorki ástæðu né málefnalega nauðsyn til að víkja frá hefðbundnu verklagi nefndarinnar í þessu tilviki.
VMÞ
ESS
AEL