5. fundur 03. nóvember 2026 kl. 17:00 - 18:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Viðar M. Þorsteinsson formaður
  • Erla Sigríður Sigurðardóttir aðalmaður
  • Auður Erla Logadóttir aðalmaður
  • Sóley Margeirsdóttir aðalmaður
  • Ástþór Jón Ragnheiðarson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jóhann G. Jóhannsson
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
  • Ragnar Ævar Jóhannsson
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Jóhannsson embættismaður

1.Félagsmiðstöðin Hellirinn - skýrsla 2026

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar Hellisins gefur skýrslu um starfsemina.
Umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar Hellisins boðaði forföll.

2.Íþróttamaður ársins

Málsnúmer 2305044Vakta málsnúmer

Yfirfara reglur um íþróttamann og íþróttakonu ársins og ákveða dagsetningu, staðsetningu og framkvæmd viðburðar.
Nefndin leggur til að hátíðaleg athöfn vegna útnefningar íþróttamanns ársins 2026 fari fram laugardaginn 9. janúar 2027 í nýjum hátíðarsal Grunnskólans Hellu. Verðlaunahóf verði með sama sniði og undanfarin ár, þar sem íþróttafólki sveitarfélagsins verði veitt viðurkenning fyrir árangur sinn og framlag til íþróttastarfs á liðnu ári.

Nefndin samþykkir tillögu Á-listans um breytingu á reglum um Íþróttamann ársins.

3.Frístundastyrkur

Málsnúmer 2411004Vakta málsnúmer

Tillaga fulltrúa D lista, breytingar á reglum um frístundastyrk:

Fulltrúar D lista í Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggja til að nefndin samþykki að leggja til við sveitarstjórn að gerðar verði eftirfarandi breytingar á reglum Rangárþings ytra um frístundastyrk og bætt við 3.gr varðandi skilyrði:



1. Forgangur frístundastarfs innan sveitarfélagsins

Frístundastyrkur verði að meginreglu nýttur til þátttöku í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi innan Rangárþings ytra.

Heimilt verði að nýta styrkinn vegna starfsemi utan sveitarfélagsins þegar sambærileg starfsemi er ekki í boði innan Rangárþings ytra. Jafnframt verði heimilt að veita undanþágu frá þeirri meginreglu þegar sérstakar aðstæður mæla með því.

2. Skýrara skilyrði um reglubundið frístundastarf

Til þess að starfsemi teljist styrkhæf verði gerð krafa um að um sé að ræða skipulagt og reglubundið íþrótta-, tómstunda-, lista- eða æskulýðsstarf undir stjórn eða leiðsögn hæfs aðila og að þátttaka nái að jafnaði til að minnsta kosti sex vikna.



Lagt er til að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.

Nefndin samþykkir að fresta afgreiðslu tillögunnar og felur íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að afla upplýsinga um fyrirkomulag frístundastyrkja í öðrum sveitarfélögum, með sérstakri áherslu á eftirfarandi atriði:
1.
Hvort og með hvaða hætti sveitarfélög forgangsraða frístundastarfi innan eigin sveitarfélags við úthlutun frístundastyrkja.
2.
Hvaða skilyrði eru gerð um reglubundna þátttöku, tímalengd og skipulag þeirrar starfsemi sem telst styrkhæf.
3.
Hvaða undanþágur eru heimilaðar frá almennum skilyrðum og á hvaða forsendum þær eru veittar.

Jafnframt óskar nefndin eftir að tekin verði saman gögn til greininga.

4.Landsmót 50 á Hellu 2027

Málsnúmer 2606031Vakta málsnúmer

Tillaga fulltrúa D lista, Landsmót 50 á Hellu 2027:

Fulltrúar D lista í Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggja til að sveitarfélagið beiti sér fyrir því að íþrótta- og tómstundafélög í sveitarfélaginu bjóði upp á starfsemi, undirbúning og æfingar fyrir vænta þátttakendur á landsmót UMFÍ 50 árið 2027 sem búsettir eru í sveitarfélaginu.
Nefndin tekur vel í framkomna tillögu og eru sammála því að mikilvægt sé að hvetja íbúa sveitarfélagsins til þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50 árið 2027. Nefndin leggur til að beina erindinu til íþrótta- og tómstundafélaga í sveitarfélaginu og hvetja þau til að skoða möguleika á að bjóða upp á undirbúning og æfingar fyrir áhugasama þátttakendur. 

5.Úttekt og efling leikvalla sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2607057Vakta málsnúmer

Leikvellir í sveitarfélaginu, úrbætur og uppbygging.
Nefndin leggur til að hafin verði vinna við heildstæða framtíðaráætlun um uppbyggingu og endurbætur á leikvöllum í öllu sveitarfélaginu. Við þá vinnu verði stuðst við fyrirliggjandi ástandskýrslu um leikvelli sveitarfélagsins sem gerð var sumarið 2026, farið verði í úrbætur, endurnýjun og frekari uppbyggingu og haft verði til hliðsjónar sú fjölgun íbúa og þróun byggðar. Nefndin leggur einnig áherslu á að mótuð verði skýr forgangsröðun verkefna og tímasett framkvæmdaáætlun til næstu ára sem höfð verði til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
Markmið nefndarinnar með þessu er að tryggja börnum og fjölskyldum örugg, aðgengileg og fjölbreytt leiksvæði í sveitarfélaginu.

6.Fjölgun bekkja í sveitarfélaginu

Málsnúmer 2610125Vakta málsnúmer

Fjölgun bekkja við gönguleiðir í sveitarfélaginu.
Nefndin leggur til að fjölgað verði bekkjum við gönguleiðir í og við þéttbýlið, enda telur nefndin að þörf sé á að bæta aðstöðu fyrir gangandi vegfarendur og ítrekar líka þá nauðsyn að farið verði í lagfæringar á gangstéttum og göngustígum þorpsins. Nefndin leggur til að unnin verði áætlun um staðsetningar og forgangsröðun nýrra bekkja og að tekið verði mið af henni við gerð fjárhagsáætlunar, þörf er á að horft verði til þeirra stækkunar sem orðið hefur á byggðinni og auknar þarfar fyrir áningarstaði meðfram gönguleiðum. Jafnframt óskar nefndin eftir því að leitað verði eftir ábendingum og hugmyndum frá íbúum sveitarfélagsins um hvar helst sé þörf á að koma fyrir bekkjum.

7.Myndataka stjórna, nefnda og ráða

Málsnúmer 2505020Vakta málsnúmer

Myndataka af Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd
Ljósmynd tekin af Heilsu-íþrótta og tómstundarnefnd 2026-2030

Fundi slitið - kl. 18:30.