Hreppsnefnd Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laugalandi í Holtum, þriðjudaginn 11. júní 2002, kl. 16:30.
Mætt: Valtýr Valtýsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Engilbert Olgeirsson, Sigurbjartur Pálsson, Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Heimir Hafsteinsson, Elísabet St. Jóhannsdóttir, Lúðvík Bergmann og Viðar H. Steinarsson.
Í krafti lengsta starfsaldurs í sveitarstjórn boðaði Viðar H. Steinarsson þennan fund og stjórnar honum fram að kosningu oddvita.
- Frá yfirkjörstjórn
Farið var yfir niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna 25. maí 2002 og skoðanakönnunar um nafn nýja sveitarfélagsins. Kjörbréf kynnt.
Til kynningar.
- Kosningar
Kosning oddvita:
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson leggur til að Valtýr Valtýsson verði kosinn oddviti til eins árs.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 4 sátu hjá.
Valtýr Valtýsson, oddviti tók þá við fundarstjórn.
Kosning varaoddvita:
Valtýr Valtýsson leggur til að Engilbert Olgeirsson verði kosinn varaoddviti til eins árs.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 4 sátu hjá.
Kosning hreppsráðs til eins árs:
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson leggur til að Valtýr Valtýsson og Sigurbjartur Pálsson verði aðalmenn af hálfu meirihluta hreppsnefndar og varamenn þeirra verði Engilbert Olgeirsson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson. Heimir Hafsteinsson leggur til að Heimir Hafsteinsson verði aðalmaður og Viðar H. Steinarsson verði varamaður af hálfu minnihluta hreppsnefndar.
Samþykkt með 7 atkvæðum, 2 sátu hjá.
Kosning formanns og varaformanns hreppsráðs:
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson leggur til að Sigurbjartur Pálsson verði formaður hreppsráðs og að Valtýr Valtýsson verði varaformaður hreppsráðs, hvorttveggja til eins árs.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 4 sátu hjá.
Kosning kjörstjórna:
- Yfirkjörstjórn:
Tillaga um Val Haraldsson, Sigrúnu K. Sveinbjarnardóttur og Óla Ágúst Ólafsson sem aðalmenn og Braga Gunnarsson, Ólaf Helgason og Skúla Jónsson sem varamenn.
Samþykkt samhljóða.
Undirkjörstjórnir:
Fyrir kjördeild á Hellu:
Tillaga um Boga Thorarensen, Svavar Bjarnhéðinsson og Pál Ísleifsson sem aðalmenn og Knút Scheving, Gyðu Guðmundsdóttur og Þórunni Sigurðardóttir sem varamenn.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir kjördeild í Þykkvabæ:
Tillaga um Einar Hafsteinsson, Guðjón Ármannsson og Óskar Kristinsson sem aðalmenn
og Markús Ársælsson, Guðjón Guðnason og Ágúst Gíslason sem varamenn.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir kjördeild að Laugalandi:
Tillaga um Sigríði Theodóru Sæmundsdóttur, Þórð Matthías Sigurjónsson og Pál Sigurjónsson sem aðalmenn og Jón Benediktsson, Þórhöllu Guðrúnu Gísladóttur og Sigríði Jónasdóttur sem varamenn.
Samþykkt samhljóða.
Kosning skoðunarmanna:
Tillaga um að Skúli Jónsson og Björgúlfur Þorvarðarson verði skoðunarmenn kjörtímabilið 2002 til 2006. Varamenn verði Valmundur Gíslason og Halldóra Þorvarðardóttir.
Samþykkt samhljóða.
- Tillaga að samþykkt um stjórn og fundarsköp hreppsnefndar - fyrri umræða:
Oddviti leggur fram og kynnir tillögu að stjórn og fundarsköpum hreppsnefndar.
Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni til síðari umræðu.
Oddviti leggur til undir þessum lið að fundargerðir hreppsnefndar verði ritaðar í tölvu samkvæmt heimild í ákvæðum 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Samþykkt samhljóða.
- Ráðning sveitarstjóra:
Oddviti leggur til að Guðmundur Ingi Gunnlaugsson verði ráðinn sveitarstjóri.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 4 sátu hjá.
Oddviti leggur til að sér verði falið að ganga frá ráðningarsamningi við sveitarstjórann.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 4 sátu hjá.
- Ráðning fundarritara hreppsnefndar og hreppsráðs:
Oddviti leggur til að Ingibjörg Gunnarsdóttir og Sigrún K. Sveinbjarnardóttir verði ráðnar fundarritarar hreppsnefndar og hreppsráðs fyrst um sinn.
Samþykkt samhljóða.
- Ákvörðun um nafn sveitarfélagsins:
Fyrir liggur niðurstaða skoðanakönnunar sem fram fór samhliða sveitarstjórnarkosningum
þ. 25. maí 2002. Flest atkvæði fékk nafnið "Rangárþing ytra". Næst á eftir kom nafnið "Rangárbyggð".
Oddviti leggur til að það nafn sem flest atkvæði fékk, Rangárþing ytra, verði samþykkt sem nafn hins nýja sveitarfélags.
Samþykkt samhljóða.
- Tillaga um fundartíma hreppsnefndar og hreppsráðs:
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að fundir hreppsnefndar verði að jafnaði fyrsta mánudag í hverjum mánuði kl. 16.00. Gert er ráð fyrir að fundartímar að sumarlagi geti orðið á öðrum dögum eftir því hvernig hreppsnefndin hagar sumarhléi.
Lagt er til að fundir hreppsráðs verði að jafnaði annan og fjórða fimmtudag í hverjum mánuði kl. 13.00. Gert er ráð fyrir að þessum fundatíma verði haldið að mestu allt árið, en smávægileg frávik geta orðið um hátíðar og vegna sumarhlés.
Fundir hreppsnefndar verði fyrst um sinn að Laugalandi í Holtum og fundir hreppsráðs verði fyrst um sinn á skrifstofunni að Laufskálum 2 á Hellu.
Vegna sérstakra aðstæðna og sumarorlofstöku er lagt til að fundir hreppsnefndar sumarið 2002 verði eftirfarandi:
- júní 2002, kl. 16.00.
- ágúst 2002, kl. 16.00.
- september kl. 16.00.
Framangreindir fundatímar verði auglýstir í "Búkollu" og á tilkynningastöðum á Hellu, Þykkvabæ og að Laugalandi.
Valtýr Valtýsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Sigurbjartur Pálsson, Engilbert Olgeirsson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson.
Tillagan samþykkt samhljóða.
- Fasteignamat ríkisins - númer sveitarfélagsins og hverfaheiti í fasteignaskrá:
Bréf frá FMR dagsett 21. maí 2002 liggur fyrir. Í bréfinu er lagt til að númer sveitarfélagsins verði 8614 og að hverfaheiti verði eftirfarandi:
8614-01 Hella
8614-02 Rangárvellir
8614-03 Þykkvibær
8614-04 Þykkvibær
8614-05 Landsveit
8614-06 Landsveit
8614-07 Holtasveit
8614-08 Holtasveit
Fyrrverandi hreppsnefnd fyrir Holta- og Landsveit hefur þegar gert tillögu um að í stað Landsveitar verði Land og í stað Holtasveitar verði Holt.
Lagt er til að flokkarnir verði 6, þ.e. Hella, Rangárvellir, Þykkvibær, Þykkvibær dreifbýli,
Land og Holt.
Samþykkt samhljóða.
- Kosning nefnda:
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að kosningu nefnda verði frestað til annars fundar hreppsnefndar þ. 24. júní 2002.
Umboð fráfarandi nefnda fyrri sveitarfélaga framlengist til sama tíma til þess að taka á brýnum málum sem ekki þola bið.
Valtýr Valtýsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Sigurbjartur Pálsson, Engilbert Olgeirsson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson.
Tillagan samþykkt samhljóða.
- Fyrirkomulag sameiningar bókhalds, launabókhalds, fjárreiða og skjalasafns:
Fyrir liggur samantekt í tillöguformi frá Auðunni Guðjónssyni, starfsmanni KPMG, löggilts endurskoðanda fyrri sveitarfélaga.
Lagt er til að eftirfarandi verði í stórum dráttum ferli við samruna bókhalds, fjárhags og skjalasafna Djúpárhrepps, Holta- og Landsveitar og Rangárvallahrepps:
- Fylgt verði "minnisatriðum", dags. 10. júní 2002, frá KPMG um
samrunaferlið.
- Fengin verður kennitala og sveitarfélagsnúmer fyrir nýja sveitarfélagið eins fljótt
og hægt er.
- Prókúra og umsjón bankareikninga flytjist til nýs sveitarstjóra 12. júní 2002.
- Skil milli bókhalds eldri sveitarfélaga og þess nýja verði 30. júní 2002.
- Laun fyrir júní greiðast með eldri kerfum en laun fyrir júlí verða reiknuð og greidd
í kerfi nýja sveitarfélagsins frá skrifstofunni að Laufskálum 2 á Hellu.
- Framkvæmdastjórar hreppsnefnda Djúpárhrepps og Holta- og Landsveitar verði í
starfi hjá nýja sveitarfélaginu til og með 31. ágúst 2002 og vinni að skilum á
bókhaldi og skjölum þeirra sveitarfélaga. Reiknað er með fullu stöðugildi hjá
báðum. Tekið verði tillit til orlofsréttar þeirra aðila.
- Samstarfsstofnanir og fyrirtæki sem rekin hafa verið sjálfstætt að Laugalandi svo
sem, MML, Holtaveitan, Leikskólinn að Laugalandi og byggingareikningur fyrir
nýju íbúðarhúsin að Laugalandi, verða rekin í óbreyttu formi fyrst um sinn frá
skrifstofunni að Laugalandi, þ.m.t. launabókhald.
- KPMG Endurskoðun hf. verði leiðandi við samrunaferlið og hafi umsjón með því
að bókhaldið verði afstemmt og í réttu horfi miðað við 30. júní 2002. Jafnframt
vinni KPMG að uppsetningu nýrra bókhaldslykla og nýrrar fjárhagsáætlunar skv.
nýju uppgjörsformi sem taka ber upp skv. ákvæðum laga um bókhald og
fjárreiður sveitarfélaga í samráði við sveitarstjóra og bókara. Kostnaður við
þennan verkþátt greiðist af liðnum ,,endurskoðun" og stefnt er að því að hann komi
nánar fram við endurskoðun á fjárhagsáætlun í haust.
Valtýr Valtýsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Sigurbjartur Pálsson, Engilbert Olgeirsson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson.
Tillagan samþykkt samhljóða með breytingum.
- Viljayfirlýsing um sölu og kaup húseigna og aðstöðu í Hvanngili, til kynningar:
Fram er lögð viljayfirlýsing undirrituð af sveitarstjóra Rangárvallahrepps, formanni Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, formanni Búnaðarfélags Rangárvallahrepps og forseta
og stjórnarmanni Ferðafélags Íslands um sölu á húseignum í Hvanngili til FÍ.
Fyrir liggur að sveitarstjórn Rangárvallahrepps hafði samþykkt sölu húseigna í Hvanngili til FÍ.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:00
Fundargerðina ritaði: Ingibjörg Gunnarsdóttir.