Hreppsnefnd Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra kjörtímabilið 2006 - 2010, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, miðvikudaginn 7. febrúar 2007, kl. 16:00.
Mætt: Þorgils Torfi Jónsson, oddviti, Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Gísli Stefánsson, Helga Fjóla Guðnadóttir, Þorbergur Albertsson, Guðfinna Þorvaldsdóttir og Kjartan G. Magnússon. Að auki sitja fundinn Örn Þórðarson, sveitarstjóri og Óli Már Aronsson sem ritar fundargerð.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna, setti fund og stjórnaði honum.
Borin upp tillaga um breytingu á dagskrá, við bætast:
Liður 1.4; 17. samráðsfundur um Holtamannaafrétt, haldinn að Laugalandi 7. febrúar, 2007, liður 9; Byggðasamlag um byggingarfulltrúaembætti í Rangárvallasýslu, liður 10; Kostnaðaráætlun vegna flutnings hitaveitulagnar vegna færslu hringvegar um Hellu, liður 12.10; Alþingi; umsögn um frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð, 12.11; Alþingi; umsögn um þingsályktunartillögu um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum, liður 12.12; Samband íslenskra sveitarfélaga; námsferðir á vegum sambandsins.
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar eða kynningar:
- Hreppsráð, 10. fundur, 25. janúar 2007.
Fundargerðin er staðfest. Samþykkt samhljóða. - Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu, 5. fundur, 17. janúar 2007.
Til kynningar. - Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, 263. fundur, 8.12.2006 og 264. fundur 12.1.2007.
Til kynningar. - samráðsfundur um Holtamannaafrétt, haldinn að Laugalandi 7. febrúar, 2007.
Til kynningar. Afgreiðslu frestað. Samþykkt samhljóða.
- Hreppsráð, 10. fundur, 25. janúar 2007.
- Landskipti, sala á landi og landskikum, breytingar á landnýtingu og stofnun lögbýla:
- Hvammur í Holtum, vegna skógræktar og skjólbeltaræktunar.
Óskað er umsagnar sveitarstjórnar um að taka hluta af landi Hvamms undir skóg- og skjólbeltarækt skv. umsókn um slíkt til Suðurlandsskóga.
Erindinu er vísað til skipulags- og byggingarnefndar. Samþykkt samhljóða. - Ólöf Rún Tryggvadóttir, stofnun lögbýlis í jörð Stóru Valla.
Óskað er eftir meðmælum sveitarstjórnar við að stofna lögbýlið Fögruvelli, sem er á landskikum sem var skipt út úr landi Stóru Valla.
Ekki er gerð athugasemd við stofnun lögbýlisins. Samþykkt samhljóða.
- Hvammur í Holtum, vegna skógræktar og skjólbeltaræktunar.
- Ferðafélag Íslands; umsókn um bráðabirgðastöðuleyfi fyrir skálavarðarhúsi í Landmannalaugum.
Óskað er eftir bráðabirgðastöðuleyfi fyrir 88 fm. skálavarðarhús á móti verða 2 hús sem fyrir eru flutt á brott.
Erindinu er vísað til skipulags- og byggingarnefndar. Samþykkt samhljóða. - Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu; endurskoðun nefndarlaun
Nefndin óskar eftir endurskoðun á launum fyrir nefndarstörf og vinnu sem tengist setu í nefndinni.
Fram komnar tillögur barnaverndarnefndar skv. bréfi dags. 29. janúar, 2007 eru samþykktar. Samþykkt samhljóða. - Landmótun ehf.; samningur um ráðgjafaþjónustu í skipulagsmálum.
Lagður fram samningur við Landmótun ehf., undirritaður af sveitarstjóra með fyrirvara um staðfestingu.
Samningurinn er staðfestur. Samþykkt samhljóða. - Kostnaðaráætlun vegna lagfæringa á slökkvistöð, Laufskálum 2.
Til kynningar. Sveitarstjórn mælir með framkvæmdinni. Samþykkt samhljóða. - Viðar Þór Ástvaldsson, erindi vegna heimæðar.
Til kynningar. - Eyjólfur Guðmundsson, erindi vegna fundar um manngerða hella.
Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til atvinnu- og menningarmálanefndar. Samþykkt samhljóða. - Byggðasamlag um byggingarfulltrúaembætti í Rangárvallasýslu.
Fyrir liggja frumdrög að stofnsamningi og samþykktum fyrir byggðasamlagið.
Til kynningar. Oddvita falið að vinna áfram að málinu. Samþykkt samhljóða. - Kostnaðaráætlun vegna flutnings hitaveitulagnar vegna færslu hringvegar um Hellu.
Til kynningar. - Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
- Barnaheill, umsókn um styrk til greiðslu fasteignagjalda.
Lagt er til að veita styrk sem nemur allt að 40% af álögðum fasteignaskatti á fasteignir Barnaheilla að Geldingalæk.
Samþykkt samhljóða. - Golfklúbbur Hellu, beiðni um samstarf við vinnuskólann.
Tekið er jákvætt í erindið og sveitarstjóra falið að ljúka málinu. Samþykkt samhljóða. - Félag þjóðfræðinga, umsókn um styrk vegna landsbyggðaráðstefnu.
Erindinu er hafnað. Samþykkt samhljóða.
- Barnaheill, umsókn um styrk til greiðslu fasteignagjalda.
- Annað efni til kynningar:
- South Iceland ehf. aðfalfundur félagsins og breytingar á samþykktum.
- Forvarnarhópur Rangárvallasýslu, minnisblað frá fundi 28. nóvember 2006.
- Landsvirkjun, kynningarbréf til landeigenda, ábúenda og hagsmunaaðila við Neðri Þjórsá.
- Félagsmálaráðuneytið, breytingar á reglum reikningsskila- og upplýsinganefndar.
- Menntamálaráðuneytið, niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2006 og skýrsla um framkvæmd skólahalds í grunnskólum.
- Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, beiðni um umsögn um takmarkanir á tóbaksreykingum.
- Lánasjóður sveitarfélaga, tilkynning um hækkun vaxta.
- Sigurður Kr. Sigurðsson, vegna Gilsbakka.
- Þorkell Guðnason, vegna brúar við Þjórsárós.
- Alþingi; umsögn um frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð
- Alþingi; umsögn um þingsályktunartillögu um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum
- Samband íslenskra sveitarfélaga; námsferðir á vegum sambandsins
- Sýslumaðurinn á Hvolsvelli - tilkynningar um afsöl, kaupsamninga og yfirlýsingar varðandi eignir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00
Óli Már Aronsson, fundarritari.