4. fundur 20. júlí 2010

Hreppsnefnd Rangárþings ytra

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra kjörtímabilið 2010 – 2014,

haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, þriðjudaginn 20. júlí 2010, kl. 13:00.

 

Mætt voru: Guðfinna Þorvaldsdóttir, Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir, Magnús Jóhannsson, Steindór Tómasson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Þorgils Torfi Jónsson og Anna María Kristjánsdóttir. Einnig Örn Þórðarson sem ritaði fundargerð.

 

Auk þess mættu á fundinn Gunnsteinn R. Ómarsson undir lið 1, og Þröstur Sigurðsson og Indriði Indriðason fyrir stjórn Suðurlandsvegar 1-3 ehf. undir lið 4.

  1. Ráðning sveitarstjóra.

Tillaga um að oddvita verði falið að ganga frá ráðningarsamningi við Gunnstein R. Ómarsson á grundvelli upplýsinga sem liggja fyrir fundinum. Fram kom að Gunnsteinn hefur störf 1. september nk.

Samþykkt samhljóða.

Guðfinnu Þorvaldsdóttur er falið að gegna starfi sveitarstjóra fram til 1. september nk. Hún óskar eftir leyfi frá störfum oddvita fyrir sama tímabil. Varaoddviti, Magnús Hrafn Jóhannsson gegnir embætti oddvita á meðan.

Samþykkt samhljóða.

  1. Innheimtumál, endurskoðun innheimtuferla.

Tillaga um að fela sveitarstjóra að taka saman yfirlit yfir innheimtumál og leggja greinargerð fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

  1. Verslunarrekstur Kaupáss á Hellu.

Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Kaupáss varðandi verslunarrekstur Krónubúðar á Hellu.
Tillaga um að sveitarstjóri svari erindi Kaupáss í samræmi við gerðan samning og umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

  1. Suðurlandsvegur 1-3 ehf., staða mála.

Formaður og framkvæmdastjóri stjórnar Suðurlandsvegar 1-3 ehf. mættu á fundinn og gerðu grein fyrir stöðu mála. Tillaga um að fela sveitarstjóra að skoða málið nánar í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt með sex atkvæðum. Einn situr hjá (ÞTJ).

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30.