9. fundur 10. október 2002

Hreppsráð Rangárþings ytra

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 10. október 2002, kl. 13:00.

 

Mættir: Sigurbjartur Pálsson, Valtýr Valtýsson og Viðar H. Steinarsson, varamaður Heimis Hafsteinssonar. Auk þeirra sitja fundinn Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri og Sigrún Sveinbjarnardóttir, sem ritar fundargerð.

 

Sigurbjartur Pálsson setti fundinn og stjórnaði honum.

 

Sigurbjartur kynnti breytingar á áður útsendri dagskrá. Við bætist 1 fundargerð í 1. lið og 3 fundargerðir í 2. lið. Nýir 11. og 12. liðir bætast við, þannig að dagskráin verður í 14. liðum. Einnig bætist við efni í 13. lið.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda til staðfestingar:
  2. a) Menningarmálanefnd 5/10´02.

Liður 1: Merki sveitarfélagsins; nefndin leggur til að merki Rangárvallahrepps verði tekið upp óbreytt sem merki Rangárþings ytra.

Lið 4. vísað til fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. b) Atvinnu- og ferðamálanefnd 8/10´02.

Afgreiðslu á lið 2 frestað og vísað til Héraðsnefndar til umsagnar.

Afgreiðslu á lið 3 frestað og atvinnu- og ferðamálanefnd falið að móta stefnu varðandi styrkveitingar til atvinnumála.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda til kynningar:
  2. a) Menningarmálanefnd 12/8´02.
  3. b) Menningarmálanefnd 13/8´02.
  4. c) Menningarmálanefnd 28/9´02.

 

  1. Breytingar á húsnæði að Laufskálum 2 og tímabundin ráðning aðstoðar á skrifstofu:

Lögð er fram kostnaðaráætlun, dags. 3/10´02, vegna breytinga á neðri hæð húsnæðis að Laufskálum 2 til að útbúa geymslurými fyrir skrifstofu hreppsins, frá Ingólfi Rögnvaldssyni. Kostnaður Brunavarna b/s yrði kr. 1,108.532.- og hreppsins kr. 705.148.-. Að auki er gert ráð fyrir minni breytingum á skrifstofuhæðinni.

Fundarmenn skoðuðu aðstæður og samþykkt var samhljóða að ráðist yrði í framkvæmdir.

Einnig var samþykkt samhljóða að tímabundin ráðning aðstoðar á skrifstofu yrði til 6 mánaða eða þar til nýtt skipurit skrifstofu verður tilbúið.

Kostnaði vegna breytinga á húsnæði og vegna ráðningar aðstoðar á skrifstofu er vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Gatnagerð og þátttaka í plani hjá Reykjagarði hf:

Lagt fram bréf frá Reykjagarði hf, dags. 3/10´02, þar sem óskað er eftir þátttöku hreppsins í gerð plans norðan við hús Reykjagarðs hf. við Dynskála.

 

  1. Dynskálar, austan og norðan við Reykjagarð hf: Uppbygging og malbikun, áætlaður kostnaður: kr. 6,300.000.- til 7,300.000.-.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Þátttaka í uppbyggingu og malbikun plans við Reykjagarð hf. Áætlaður kostnaður 1,542.400.-.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Tilboð í uppbyggingu og lagnir á Dynskálum, Sigöldu, Brúnöldu og Eyjasandi:

 

  1. a) Jöfnun ehf: 14,847.750.-,

 

  1. b) Guðmundur Skúlason: 15,146.297.-.

 

Kostnaðaráætlun: 16.989.300.-.

 

Tilboðsupphæðir geta lækkað um allt að 3.000.000.- vegna skörunar við malbiksframkvæmdir Reykjagarðs hf.

 

Tilboð Jöfnunar ehf. samþykkt samhljóða.

 

Kostnaði vegna framkvæmdanna er vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.

 

  1. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli:

Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Hvolsvelli, dags. 1/10´02, varðandi nauðungarsölu á eigninni Árbakka.

Samkvæmt þinglýsingarbókum nýtur sveitarfélagið veðréttinda í umræddri eign.

Samþykkt samhljóða að fylgjast með framvindu mála.

 

  1. Þór I. Vilhjálmsson:

Lagt fram bréf frá Þór I. Vilhjálmssyni, dags. 1/10´02, þar sem óskað er eftir niðurfellingu á fasteignagjöldum á sumarhúsi hans fyrir árið 2002. Húsið var rifið 28/3´02 skv. vottorði byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða að fella niður gjöldin.

 

  1. Vegagerðin:

Lagt fram bréf frá Vegagerðinni, dags. 1/10´02, þar sem athugasemd er gerð við uppsetningu auglýsingaskiltis við Lyngás.

Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að rita Birni B. Jóhannssyni bréf og benda á leiðir til þess að fá heimild fyrir staðsetningu skiltisins. Birni verði sent afrit af erindi Vegagerðarinnar.

 

  1. Minningartónleikar:

Lagt er fram bréf frá Sigurði Jónssyni, þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af fjölnotahúsi í Þykkvabæ fyrir minningartónleika um Ásmund Jón Pálsson til skyrktar ekkju hans og börnum, sem áformaðir eru 9/11´02.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Smíði og uppsetning hurða og skilrúma í fjölnotahúsi í Þykkvabæ:

Lagðar fram teikningar frá Vinnustofunni Vesturvör, dags. 3/10´02, af hurðum og skilrúmum til að stúka af rými fyrir líkamsræktartæki í fjölnotahúsi í Þykkvabæ.

Samþykkt samhljóða að láta smíða hlið og hurðir. Áætlaður kostnaður kr. 200.000.- til 300.000.-.

Kostnaði vísað til endurskoðunnar á fjárhagsáætlun.

 

  1. Fasteignamiðstöðin:

Lagt er fram bréf frá Fasteignamiðstöðinni, dags. 7/10´02, þar sem óskað er eftir afstöðu hreppsráðs til sölu á íbúðarhúsi og ca 2ha. lóð úr landi Brautartungu.

Salan samþykkt samhljóða og fallið frá forkaupsrétti.

 

  1. Sverrir Kristinsson og Gunnar Örn Gunnarsson:

Lagt fram bréf frá Sverri og Gunnari Erni, dags. 4/10´02 þar sem þeir óska eftir að gerð verði könnun á mögulegri tengingu bæjanna við Eystra-Gíslholtsvatn við Hitaveitu Rangæinga.

Samþykkt samhljóða að vísa erindinu til Hitaveitu Rangæinga til ahugunnar.

 

  1. 1 Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur:

Lagt fram bréf frá Bifreiðíþróttaaklúbbi Reykjavíkur, mótt. 9/10´02, með endurnýjaðri umsókn um leyfi fyrir akstri á vegi frá Skjólkvíum að Fjallabaksleið syðri, Hekluvegi eystri (á sérleið nr. 2 og 3) í fyrirhuguðu ralli 12/10´02.

Samþykkt samhljóða að leyfa aksturinn að því tilskyldu að vegur verði lagfærður í samræmi við áform í umsókn, enda samþykki Bifreiðaíþróttaklúbburinn að verkið verði tekið út og samþykkt af fulltrúa sveitarfélagsins.

 

  1. Fundarboð og umsóknir um styrki:
  2. a) SASS - fundur með fulltrúum sveitarstjórna og þingmönnum 21/10´02.

Til kynningar.

 

  1. b) Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili. Málþing.

Samþykkt að styrkja málþingið um kr. 25.000.-.

 

  1. b) Æskulýðsnefnd Rangárvallaprófastsdæmis.Beiðni um fjárstyrk.

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Annað efni til kynningar:

Sorpstöð Suðurlands bs. – endurskoðuð fjárhagsáætlun 2002.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.17:00.

 

Fundarritari: Sigrún Sveinbjarnardóttir.