32. fundur 23. október 2003

Hreppsráð Rangárþings ytra

Fundargerð

 

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 23. október 2003, kl. 13:00.

 

Mætt: Sigurbjartur Pálsson, Valtýr Valtýsson, Viðar H. Steinarsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson og Sigrún Sveinbjarnardóttir, sem ritar fundargerð.

 

Sigurbjartur setti fundinn og stjórnaði honum.

 

Lögð fram tillaga að breytingu á dagskrá: Nýr 13. liður, 14. liður og 15. liður og færast aðrir liðir aftur sem þessu nemur.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:
  2. a) Atvinnu- og ferðamálanefnd - 13. fundur 9/10´03, sem er í 5 liðum.

 

Fundargerðin samþykkt samhljóða og óskað er eftir greinagerð frá atvinnu- og ferðamálafulltrúa varðandi 3. lið fundargerðarinnar um lágvöruverslun.

 

  1. b) Nefnd um málefni veitna - 5. fundur 8/10´03, sem er í 3 liðum.

 

Hreppsráð mælist til þess að framtíðarlagnaleið frá Hellu í Þykkvabæ verði skoðuð mjög nákvæmlega með hliðsjón af öryggissjónarmiðum. Kannað verði sérstaklega hvort lega lagnar í Ytri-Rangá sé of áhættusöm með tilliti til afhendingaröryggis neysluvatns í Þykkvabæ.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. c) Hluti ritnefndar um byggðasögu, fundur 15/10´03, sem er í 2 liðum.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
  2. a) Nefnd um málefni veitna, 1. fundur 30/4´03, sem er í 1 lið, 2. fundur 5/5´03, sem er í 1 lið, 3. fundur 18/5´03, sem er í 2 liðum og fundur 15/9´03, sem er í 2 liðum.
  3. b) Heilbrigðisnefnd Suðurlands, 58. fundur 15/10´03.
  4. c) Sorpstöð Rangárvallasýslu bs., 82. fundur 17/10´03.

 

  1. Reykjagarður hf. (eldri) / Túnfótur hf. - staða mála.

Samþykkt samhljóða að sveitarstjóri feli Málflutningsskrifstofunni ehf. að taka við innheimtu og meðferð fyrirliggjandi krafna á hendur Reykjagarði hf. og Túnfæti hf.

 

  1. Samkomulag við Oíuverslun Íslands hf. - kaup á hreinsiefnum og skyldum vörum - staðfesting:

Lögð fram drög að samkomulagi milli Olíuverslunar Íslands hf. og Rangárþings ytra, f.h. nokkurra stofnana, um kaup á vörum og þjónustu.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Landgræðsla ríkisins - umsókn um leyfi til gróðurtöku í Þóristungum:

Lagt fram bréf frá Landgræðslu ríkisins, dagsett 10/10´03, þar sem sótt er um leyfi til að flytja gróðurtorfur frá Þóristungum í listaverk við Vatnsfellsvirkjun að beiðni Landsvirkjunar.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fasteignamiðstöðin og Eignaval - umsóknir um samþykki við kauptilboð um spildur úr landi Svínhaga.

Lagt fram bréf frá Fasteignamiðstöðinni, dagsett 8/10´03, þar sem óskað er eftir samþykki fyrir sölu á landspildu með landnúmer 196013 úr landi Svínhaga. Seljandi er Grettir Rúnarsson, kt. 050274-3499 og kaupandi er Benedikt Benediktsson, kt. 280158-7399.

 

Lagt fram bréf frá Eignavali, dagsett 14/10´03, þar sem óskað er eftir samþykki fyrir sölu á 2 landspildum með landnúmerunum 196022 og 196046 úr landi Svínhaga. Seljandi beggja spildnanna er Grettir Rúnarsson, kt. 050274-3499 og kaupandi þeirra er Viðar Helgi Guðjónsson, kt. 140158-4299.

 

Hreppsráð fellur frá forkaupsrétti og gerir ekki athugasemd við söluna.

  1. Landgræðsla ríkisins - minnisblað um skoðunarferð um Landmannaafrétt:

Lagt fram minnisblað frá Landgræðslu ríkisins, dagsett 10/10´03, um skoðunarferð um Landmannaafrétt vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt.

 

Hreppsráð óskar eftir afstöðu fjallskilanefndar Landmannaafréttar á málinu.

 

  1. Oddaverjar - umsókn um aðgang að fréttabréfi:

Lagt fram bréf frá Oddaverjum, dagsett 2/10´03, þar sem óskað er eftir aðgangi að fréttabréfi Rangárþings ytra.

 

Umsóknininni hafnað. 1 atkvæði með og 2 á móti.

Afgreiðsla hreppsráðs er ekki samhljóða og erindinu þ.a.l. vísað til hreppsnefndar.

 

  1. Deiliskipulagstillaga - ósk um heimild til auglýsingar:

Ósk um heimild til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Svínhaga lögð fram.

 

Samþykkt samhljóða að heimila auglýsinguna og samhliða verði auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra.

 

  1. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli - umsókn um afskriftir á eftirstöðvum gjalda:

Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Hvolsvelli, dagsett 3/10´03, þar sem óskað eftir samþykkt á afskriftum opinberra gjalda tveggja eignalausra dánarbúa að upphæð kr. 314.297.-.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Bifreiðastöð Lyngáss - tilboð um almennan þjónustusamning um hópferðaakstur:

Lagt fram tilboð frá B.S.L., dagsett 6/10´03, um almennan þjónustusamning um hópferðaakstur sem til fellur hjá Rangárþingi ytra.

 

Samþykkt samhljóða að vísa erindinu til stjórnenda stofnana í sveitarfélaginu og hvetja þá til að nota þjónustu í heimabyggð að öðru jöfnu.

 

  1. Ungmennafélagið Framtíðin - umsókn um greiðslu vegna 17. júní hátíðahalda og ruslatínslu:

Lagt fram bréf frá Ungmennafélaginu Framtíðinni, dagsett 1/10´03, þar sem sótt er um greiðslu fyrir 17. júní hátíðahöld og ruslatínslu meðfram vegum.

Samþykkt samhljóða að greiða kr. 100.000.- sem bókað verði á liðinn hátíðahöld í bókhaldi sveitarfélagsins.

  1. KRS heildverslun - skil á lóð og umsókn um frest til að hefja framkvæmdir:

Lagt fram bréf frá KRS heildverslun, dagsett 17/10´03, þar sem byggingarétti á lóðinni Sigöldu 1 er skilað. Einnig er í sama bréfi sótt um, fyrir hönd Sigurbjörns E.

Logasonar, frest fram í maí 2004 til að hefja framkvæmdir á lóðinni Hraunöldu 2.

Samþykkt samhljóða.

  1. Lögmenn Eiðistorgi - boðun fundar um kröfur á Kaupfélag Árnesinga:

Lagt fram bréf frá Lögmönnum Eiðistorgi, dagsett 17/10´03, þar sem boðað er til fundar með kröfuhöfum Kaupfélags Árnesinga 27/10´03.

 

Til kynningar.

 

  1. ESK ehf. - umsókn um útgáfu lóðarleigusamninga áður en framkvæmdir hefjast:

Lagt fram bréf, sent í tölvupósti 22/10´03, þar sem þess er óskað að gefnir verði út lóðaleigusamningar til ESK ehf. fyrir lóðunum Laufskálar 20-22, Bogatún 18-20 og Bogatún 22-24.

 

Samþykkt samhljóða með þeim fyrirvara að í lóðaleigusamningum verið ákvæði um að framkvæmdir hefjist innan 12 mánaða frá úthlutun lóða og frágangi lóða sé lokið innan 24 mánaða frá úthlutun.

 

  1. Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
  2. a) Alnæmissamtökin á Íslandi 9/10´03 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 10.000.-.

 

  1. b) Upplýsingamiðstöð Suðurlands 10/10´03 - umsókn um styrk vegna vetrarþjónustu.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 30.000.-.

 

  1. c) Ævintýraklúbburinn 8/10´03 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 7.000.-.

 

  1. d) LAUF 16/10´03 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 7.000.-.

 

  1. e) Skátahreyfingin á Íslandi 17/10´03 - umsókn um styrk við verkefnið "Látum ljós okkar skína".

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 7.000.-.

 

  1. Annað efni til kynningar:
  2. a) Fulltrúar K og Ó lista - beiðni um umsögn umhverfisnefndar og atvinnu- og ferðamálanefndar um upplýstan gosbrunn í Ytri-Rangá við Hellu og um að lýsa upp brúna yfir Ytri-Rangá við Hellu.
  3. b) FOSS 13/10´03 - tilkynning um trúnaðarmenn hjá Rangárþingi ytra.
  4. c) Varasjóður húsnæðismála 15/10´03 - staða framlaga vegna sölu félagslegra íbúða og lækkun framlags sveitarfélaga.
  5. d) Úrvinnslusjóður 14/10´03 - skipulag við söfnun og förgun hjólbarða.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30.

 

Sigrún Sveinbjarnardóttir, ritari.