34. fundur 27. nóvember 2003

Hreppsráð Rangárþings ytra

Fundargerð

 

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 27. nóvember 2003, kl. 13:00.

 

Mætt: Sigurbjartur Pálsson, Valtýr Valtýsson, Viðar H. Steinarsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri og Sigrún Sveinbjarnardóttir, sem ritar fundargerð.

 

Sigurbjartur setti fundinn og stjórnaði honum.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:
  2. a) Atvinnu- og ferðamálanefnd - 14. fundur 13/11´03, sem er í 5 liðum.

 

Samþykkt samhljóða að fresta afgreiðslu fundargerðarinnar og vísað til hreppsnefndar til umfjöllunar og gerðar fjárhagsáætlunar.

 

  1. b) Fræðslunefnd - 25. fundur 19/11´03, sem er í 4 liðum.

Fræðslunefnd leggur til að samið verði við Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri um úttekt á rekstri grunnaskólanna sbr. liður 1.2.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. c) Skipulags- og bygginganefnd - 17. fundur 20/11´03, sem er í 15 liðum.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
  2. a) Fræðslunefnd - 23. fundur 30/10´03, sem er í 6 liðum.
  3. b) Fræðslunefnd - 24. fundur 10/11´03, sem er í 5 liðum.
  4. c) Bókasafnsnefnd Laugalands - 6/6´02, sem er í 1 lið.
  5. d) Bókasafnsnefnd Laugalands - 3/9´02, sem er í 1 lið.
  6. e) Bókasafnsnefnd Laugalands - 23/10´02, sem er í 1 lið.
  7. f) Bókasafnsnefnd Laugalands - 30/5´03, sem er í 2 liðum.
  8. g) Fjallskilanefnd Landmannaafréttar - 11/9´03, sem er í 1 lið.
  9. h) Fjallskilanefnd Landmannaafréttar - 7/10´03, sem er í l lið.
  10. i) Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga - 93. fundur 28/2´03, sem er í 5 liðum.
  11. j) Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga - 95. fundur 20/8´03, sem er í 5 liðum.
  12. k) Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga - 96. fundur 11/11´03, sem er í 6 liðum.
  13. l) Sorpstöð Suðurlands - 108. fundur 7/11´03, sem er í 4 liðum.
  14. m) Bygingarnefnd íþróttahúss FSu. - 8. fundur 7/10´03, sem er í 3 liðum.
  15. n) Byggingarnefnd íþróttahúss FSu. - 9. fundur 21/10´03, sem er í 2 liðum.
  16. o) Byggingarnefnd íþróttahúss FSu. - 10. fundur 11/11´03, sem er í 2 liðum.
  17. p) SASS - 371. stjórnarfundur 13/11´03.
  18. q) SASS - 34. aðalfundur 14.-15/11´03.
  19. r) Heilbrigðisnefnd Suðurlands - 59. fundur 19/11´03.
  20. s) Sameiginleg barnaverndarnefnd - 16. fundur 19/11´03, sem er í 4 liðum.

 

  1. Tilboð í sveitarstjórnartryggingar - opnun 18/11´03 - ákvörðun um framhald:

1) Tilboð frá Sjóvá-Almennum hf., dagsett 18/11´03, að upphæð kr. 1.180.946.- með opinberum gjöldum. Frávik um ágóðahlutdeild ef samið er til sex ára eða lengur.

2) Tilboð frá Vátryggingafélagi Íslands hf., dagsett 18/11´03, að upphæð kr. 1.652.833.- með opinberum gjöldum.

 

Samþykkt samhljóða að gengið verði til samninga við Sjóvá-Almennar hf. á grundvelli tilboðsins. Frávikstilboði Sjóvá-Almennra hf. til 6 ára er ekki tekið.

 

  1. Túnfótur hf. - ósk um meðmæli með nauðasamningum:

Lagt fram bréf frá Túnfæti hf., dagsett 11/11´03, þar sem óskað er eftir meðmælum með nauðasamningatilraunum Túnfótar hf., áður Reykjagarðs hf., kt. 430272-0719.

 

Samþykkt samhljóða að mæla með nauðasamningum Túnfótar hf., en sveitarfélagið áskilur sér allan rétt til að fylgja eftir kröfum sínum.

 

  1. Skógræktarfélag Rangæinga:

Lagt fram bréf frá Skógræktarfélagi Rangæinga, móttekið 10/11´03, þar sem rætt er um aðgengi að svæði Aldamótaskóga í landi Gaddstaða, merkingu, umgengni o.fl..

 

Lagt er til að námusvæði í landi Gaddstaða verði girt og aðgengi að Aldamótaskógum verði opnað. Einnig að gengið verði frá moldarhaugum í landi Gaddstaða. Fulltrúum frá Skógræktarfélagi Rangæinga verði boðið til viðræðna.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Opnunartími sundlaugar:

Lagt fram erindi frá Þórhalli J. Svavarssyni, forstöðumanni íþróttamiðstöðvar, dagsett 19/11´03, um opnunartíma sundlaugarinnar á Hellu.

 

Samþykkt samhljóða.

 

  1. Atvinnu- og ferðamálaverkefni - greinargerð um athugun varðandi lágvöruverðsverslun:

Lögð fram greinargerð frá atvinnu- og ferðamálafulltrúa Rangárþings og Mýrdalshrepps, Eymundi Gunnarssyni, móttekið 19/11´03, varðandi athugun á mögulegri lágvöruverðsverslun í Rangárvallasýslu.

Samþykkt samhljóða að fela atvinnu- og ferðamálafulltrúa að vinna áfram að málinu.

  1. Lúðvík Bergmann - tilmæli um gáma fyrir landbúnaðarplast:

Lögð fram tilmæli frá Lúðvík Bergmann, dagsett 19/11´03, um uppsetningu og rekstur gáma fyrir landbúnaðarplast.

 

Samþykkt samhljóða að fjölga gámum fyrir landbúnaðarplast.

Þeir verði á eftirtöldum stöðum: á gámasvæðum við Bakkabæi, við Þingskálaveg og við Þúfu á Landi. Einnig á gámavöllum á Hellu, í Þykkvabæ og við Landvegamót.

 

 

 

  1. Atvinnu- og ferðamálaverkefni - húsnæðismál atvinnu- og ferðamálafulltrúa:

Lagt fram bréf frá Lúðvík Bergmann, dagsett 19/11´03, varðandi húsnæðismál atvinnu- og ferðamálafulltrúa Rangárþings og Mýrdalshrepps.

 

Samþykkt samhljóða að fela Húsakynnum bs. að kanna kaup á húsnæði sem leigt yrði atvinnu- og ferðamálafulltrúa tímabundið.

 

  1. Eignaumsjón - gámahúsnæði:

Lagt fram minnisblað frá starfsmanni eignaumsjónar, Bjarna J. Matthíassyni, dagsett 11/11´03, varðandi mögulegan flutning á gámahúsnæði frá Þykkvabæjarskóla að Hellum á Landi til íbúðanota á meðan endurbygging bæjarins stendur yfir.

 

Til kynningar.

Valtý falið að ræða við ábúanda að Hellum um mögulegar lausnir.

 

  1. Magnús Guðmundsson, Uxahrygg - hreinsun á markaskurði:

Lögð fram umsókn frá Magnúsi Guðmundssyni á Uxahrygg, dagsett 19/11´03, um hreinsun upp úr markaskurði milli Uxahryggjar og Skeiðar.

 

Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að ræða við fulltrúa Rangárþings eystra varðandi málið.

 

  1. Hellismenn ehf. - umsókn um lóðaleigusamning og sorphreinsun:

Lagt fram bréf frá Hellismönnum ehf., dagsett 11/11´03, þar sem sótt er um lóðaleigusamning vegna húsa við Landmannahelli og um sorphirðu þaðan.

 

Ekki er unnt að gera lóðaleigusamninga á þessu svæði að svo stöddu vegna meðferðar þjóðlendumála.

 

Samþykkt samhljóða að afgreiðsla sorpmála við Landmannahelli á árinu 2003 verði með sama hætti og árið 2002. Hellismönnum ehf. og öðrum rekstraraðilum á afréttum verði boðið til viðræðna um breytingar á fyrirkomulagi sorpmála á afréttum, sbr. ákvæði nýrra reglugerðar.

 

  1. Lögmenn Borgartúni 18 - sala á landspildu úr landi Galtalækjar:

Lagt fram bréf frá Lögmönnum, Borgartúni 18, þar sem óskað er eftir afstöðu til sölu á landspildu úr landi Galtalækjar. Kaupandi er Júlíus Ævarsson, kt. 110372-3299 en seljandi Páll Sigurjónsson, 170744-8109.

 

Samþykkt samhljóða að fresta afgreiðslu erindisins og óska eftir að kaupsamningur verði lagður fram.

 

  1. Alsherjarnefnd Alþingis - sala á hlutafé í Landssímanum:

Lagt fram bréf frá alsherjarnefnd Alþingis, dagsett 13/11´03, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

 

Til kynningar.

 

  1. Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
  2. a) Samband íslenskra sveitarfélaga 11/11'03 - málþing um húsaleigubætur 28/11'03.

 

Til kynningar.

 

  1. b) Umhverfisstofnun 10/11'03 - kynning á vákorti af suður- og vesturströnd Íslands 28/11'03.

 

Til kynningar.

 

  1. c) Idega software 18/11'03 - ráðstefna um rafræna stjórnsýslu 4/12'03.

 

Til kynningar.

 

  1. d) Fræðslunet Suðurlands 18/11'03 - hátíðarfundur 12/12'03.

 

Til kynningar.

 

  1. e) Mál og mynd sf. 17/11'03 - tabula gratulatoria vegna bókar um 100 ára sögu stjórnarráðs Íslands.

 

Til kynningar.

 

  1. f) Suðurland á aðventu 10/11'03 - umsókn um styrki.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk á móti húsaleigu og að auki styrk að upphæð kr. 25.000.-.

 

  1. g) Fjölbrautaskóli Suðurlands 13/11'03 - umsókn um styrk vegna nemendaskipta.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 15.000.- pr. nemenda frá Rangárþingi ytra.

 

  1. h) Gigtarfélag Íslands 17/11'03 - umsókn um styrk.

 

Hafnað.

 

  1. i) Fræðslumiðstöð í fíknivörnum 17/11'03 - umsókn um styrk.

 

Hafnað.

 

  1. j) MND félagið á Íslandi 13/11'03 - umsókn um styrk.

 

Hafnað.

 

  1. k) Umhyggja, tímarit langveikra barna 11/11'03 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 5.000.-.

 

 

  1. Annað efni til kynningar:
  2. a) Landgræðsla ríkisins 7/11'03 - ástand gróðurs á Rangárvallaafrétti.
  3. b) Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili 12/11'03 - um fjölgun hjúkrunarrýma á Hellu.
  4. c) Lögmenn Eiðistorgi 14/11'03 - um greiðslustöðvun KÁ.
  5. d) Rangárþing eystra 17/11´03 - staðfesting á samþykktum og stofnsamningi atvinnu- og ferðamálaverkefnis.
  6. e) Eyjólfur Guðmundsson 12/11´03 - um þjóðlendumál.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:00.

 

Sigrún Sveinbjarnardóttir, ritari.