Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 22. júlí 2004, kl. 8:30.
Mætt: Ingvar P. Guðbjörnsson, formaður, Sigurbjartur Pálsson, Viðar H. Steinarsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri og Sigrún Sveinbjarnardóttir, sem ritar fundargerð.
Ingvar Pétur setti fund og stjórnaði honum.
Lögð fram tillaga að breytingu á dagskrá; við bætast nýir liðir nr. 9 og 10 og færast aðrir liðir aftur sem því nemur.
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:
1.1 Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 19. fundur 12/7´04, sem er í 6 liðum.
Samningur sem vísað er til í 4. lið fundargerðarinnar er sérstakur efnisliður á dagskrá fundarinns.
Samþykkt samhljóða.
1.2 Héraðsnefnd - 11. fundur 13/7´04, sem er í 6 liðum.
Einnig er lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Byggðasafnsins í Skógum, ársskýrsla fyrir Byggða- og héraðsskjalasafnið í Skógum, ferðaþjónustu og Samgöngusafnið í Skógum, ársreikningar héraðssjóðs og Tónlistarskóla Rangæinga.
Samþykkt samhljóða.
1.3 Nefnd um minnisvarða um Ingólf Jónsson - fundargerð 19/7´04, sem er í 2 liðum.
Einnig er lagt fram erindi frá nefndinni, dagsett 19/7´04, þar sem óskað er eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra hlutist til um að koma umhverfi bakka Ytri-Rangár í það horf að hægt sé að koma fyrir og afhjúpa minnisvarðann í september 2004.
Lagt er til að sveitarstjóri feli skipulags- og byggingarfulltrúa að gera kostnaðaráætlun og verkslýsingu og bjóða verkið út.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
1.4 Atvinnu- og ferðamálanefnd - 18. fundur 19/7´04, sem er í 5 liðum.
Lagt er til að 3. lið fundargerðarinnar verði vísað til samgöngunefndar.
Lagt er til að formanni hreppsráðs og sveitarstjóra verði falið að útbúa umsóknir og senda til EBÍ, sbr. 4. lið fundargerðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
2.1 Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 18. fundur 7/6´04, sem er í 2 liðum og 20. fundur
20/7´04, sem er í 2 liðum.
2.2 Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga - 99. fundur 12/7´04, sem er í 1 lið.
2.3 Stjórn Hitaveitu Rangæinga - 16. fundur 8/7´04, sem er í 3 liðum.
2.4 Bygginganefnd íþróttahúss FSu., 19. fundur 24/6´04, sem er í 1 lið og 20. fundur
6/7´04, sem er í 6 liðum.
2.5 Vinnuhópur um framtíð hesthúsahverfis á Hellu, 1. fundur 12/7´04, sem er í 1 lið.
- Verksamningar til staðfestingar:
2.1 Lögð fram drög að verksamningi milli Rangárþings ytra og Árna Pálssonar, um
fráveitulögn meðfram Þrúðvangi, dagsett 12/7´04.
Samþykkt samhljóða.
2.1 Lögð fram drög að verksamningi milli Eignaumsjónar Rangárþings ytra og Ásahrepps og Grafvéla ehf., um framkvæmdir við lóðafrágang og gatnagerð á Laugalandi, dagsett 13/7´04.
Samþykkt samhljóða.
- Samstarfssamningur við KFR til staðfestingar:
Lögð fram drög að samstarfssamningi milli Rangárþings ytra og Knattspyrnufélags Rangæinga um eflingu íþróttastarfs í sveitarfélaginu.
Lagt er til að breyting verði gerð á 12. grein samningsins þannig að fram komi að það séu börn frá Rangárþingi ytra sem tryggja á.
Samningsdrögin samþykkt með áorðnum breytingum.
- Umsóknir um beitarafnot:
2.1 Lögð fram umsókn um afnot af beitarhólfi frá Steini og Magnúsi Inga Mássonum,
dagsett 8/7´04.
2.2 Lögð fram umsókn um afnot af beitarhólfi frá Friðþjófi Erni Vignissyni, dagsett
8/7´04.
Lag er til að sveitarstjóra verði falið að ræða við umsækjendur og ganga frá samningum við þá um afnot af beitarhólfum sumarið 2004.
Samþykkt samhljóða.
- A little trip to heven - umsókn um afnot:
Lagt fram bréf frá Little trip ehf., dagsett 15/7´04, þar sem sótt er um leyfi til að gera tímabundnar útlistsbreytingar við garðávaxtageymslu í eigu sveitarfélagsins og vatnstank í Þykkvabæ vegna fyrirhugaðrar kvikmyndatöku.
Samþykkt samhljóða.
- Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellsýslu:
Lagt fram bréf frá Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu, dagsett 6/7´04, þar sem óskað er eftir að sveitarstjóri Rangárþings ytra mæti á fund með nefndinni 24/8´04, til viðræðna um launamál nefndarinnar.
Samþykkt að sveitarstjóri sæki fundinn.
- Sorpstöð Suðurlands bs.
Lagt fram bréf frá Sorpstöð Suðurlands bs., móttekið 6/7´04, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort stöðinni verði falið að gera sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á starfssvæði hennar.
Samþykkt samhljóða að Sorpstöð Suðurlands bs. geri tillögu að svæðisáætlun.
- Um lausagöngu búfjár við vegi - erindi frá Ólafi Dýrmundssyni og Sigurði Sigurðarsyni:
Lagt er fram bréf frá Ólafi Dýrmundssyni, landnýtingarráðunauti og Sigurði Sigurðarsyni, dýralækni, dagsett 15/7´04, varðandi lausagöngu búfjár.
Tekið er jákvætt í erindið og gert ráð fyrir aðgerðum ef tilefni verða.
- Eikarás ehf. - umsókn um lóðir:
Lögð er fram umsókn um lóðirnar Bogatún 1 og 2, dagsett 21/7´04, frá Eikarási ehf.
Afgreiðslu frestað og óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaða húsagerð.
- Fundir hreppsráðs í júlí og ágúst:
Rætt um mögulega fundardaga hreppsráðs í ágúst 2004.
- Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
12.1 Klúbburinn Strókur, 14/6´04 og 8/7´04 - umsókn um styrk.
Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 80.000.-.
Vísað til ýmissa styrkja í félagsmálakafla fjárhagsáætlunar.
12.2 Frumkvöðlafræðslan ses., 12/7´04 - umsókn um styrk.
Hreppsráð sér sér ekki fært að verða við umsókninni.
- Annað efni til kynningar:
13.1 Bréf sveitarstjóra Rangárþings ytra til stjórnar ÁTVR, 6/7´04 og svar forstjóra
ÁTVR, 13/7´04.
13.2 Samband íslenskra sveitarfélaga 5/7´04 - um viðmiðunarreglur vegna nemenda
sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags.
13.3 Umhverfisráðuneytið 6/7´04 - um staðfestingu á samþykkt um meðhöndlun
úrgangs, um staðfestingu á samþykkt um hreinsun fráveituvatns og reglubundna
losun, vinnslu eða förgun seyru, um staðfestingu á samþykktum um holræsi og holræsagjöld og um staðfestingu á samþykkt um hundahald.
13.4 Úrvinnslusjóður 30/6´04 - um söfnun og endurvinnslu á heyrúlluplasti.
13.5 Umhverfisnefnd 22/7´04 - tilnefningar til umhverfisverðlauna fyrir árið 2004.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:00.
Sigrún Sveinbjarnardóttir, ritari.