82. fundur 26. janúar 2006

Hreppsráð Rangárþings ytra

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 26. janúar 2006, kl. 13:00.

 

Mætt: Ingvar P. Guðbjörnsson, formaður, Viðar H. Steinarsson, Sigurbjartur Pálssonar, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri og Ingibjörg Gunnarsdóttir, sem ritar fundargerð.

 

Formaður setti fund og stjórnaði honum.

 

Lögð fram tillaga að breytingu á dagskrá; nýir liðir nr. 14, 15, 16, 17.7, 17.8 og 17.9 bætast við og færast aðrir liðir aftur sem þessu nemur. Einnig færist liður nr. 2.1 og verður nr. 1.1 og færast aðrir liðir í lið 2 sem þessu nemur.

 

Samþykkt samhljóða.

 

1 Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:

1.1 Atvinnu- og ferðamálanefnd - 27. fundur 23/1´06 í 4 liðum.

 

Samþykkt að vísa fundargerðinni til hreppsnefndar Rangárþings ytra.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:

2.1 Stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands - 254. fundur 9/12 í 6 liðum og

  1. fundur 13/1´06 í 6 liðum.

2.2 Heilbrigðisnefnd Suðurlands - 82. fundur 11/1´06 í 6 liðum.

 

  1. Reglur um niðurgreiðslu dagvistargjalda hjá dagforeldrum:

Lagðar fram gildandi reglur frá desember 2003 um niðurgreiðslu dagvistargjalda hjá dagforeldrum.

 

Samþykkt samhljóða að uppreikna gjaldið m.v. vísitölu neysluverðs frá des. 2003

og síðan tvisvar á ári, þ.e. 1. janúar og 1. júlí ár hvert.

 

  1. Heimir Hafsteinsson - aðilaskipti vegna lóðanna Baugöldu 5 - 7:

Lögð fram umsókn frá Heimi Hafsteinssyni, dagsett 15/1´06, um aðilaskipti vegna lóðanna Baugöldu 5 - 7. Hlymdalir ehf. kt. 440106-1290 yfirtaki réttindi og skyldur varðandi lóðirnar af Heimi Hafsteinssyni.

Meðfylgjandi er jákvæð umsögn Ólafs Júlíussonar, skipulags- og byggingafulltrúa, dagsett 16/1´06.

 

Samþykkt samhljóða.

  1. Umsókn um lóð:

Lögð fram umsókn frá Lázló Czenek, dagsett 16/1´06, um lóð fyrir einbýlishús á svæði ÍB11 á aðalskipulagi.

 

Afgreiðslu frestað þar til deiliskipulag verður tilbúið og lóðir verða auglýstar í reit ÍB11.

  1. Hugmyndir um fyrirkomulag Töðugjalda 2006:

Lagðar fram hugmyndir frá Haraldi Valsteinssyni, mótteknar 19/1´06, um fyrirkomulag Töðugjalda 2006.

 

Til kynningar.

  1. Philippe Patay og Sigríður Arnarsdóttir - hugmyndir um Hellubíó:

Lagt fram bréf frá Philippe Patay og Sigríði Arnarsdóttur, móttekið 18/1´06, varðandi hugmyndir þeirra um kaup á Hellubíói.

 

Til kynningar.

Hreppsráðið beinir þeim tilmælum til stjórnar Eignaumsjónar að flýta umfjöllun og afgreiðslu málsins eins og kostur er.

 

  1. Guðrún Adda Maríusdóttir - eftirgjöf af leigu á Laugalandi:

Lagt fram bréf frá Guðrúnu Öddu Maríusdóttur, dagsett 13/1´06, þar sem fram kemur ósk um eftirgjöf af leigu á íbúð á Laugalandi vegna vatnsskorts í íbúðinni.

Lögð fram greinargerð varðandi málið frá Bjarna Jóni Matthíassyni, starfsmanns Eignaumsjónar, dagsett 17/1´06.

 

Hreppsráðið telur að ekki komi fram nægjanleg rök til stuðnings umsóknar um lækkun leigu og sér þ.a.l. sér ekki fært að verða við henni.

 

  1. Óskar Sigurðsson hdl - tilmæli um uppgjör innheimtumáls:

 

Mál vegna innheimtu gatnagerðargjalda vegna Dynskála 9.

Hreppsráðið samþykkir samhljóða að lækka dráttarvexti um helming og uppgjör verði að öðru leyti samkvæmt tilmælum í bréfi Óskars Sigurðssonar.

 

  1. Sighvatur Hafsteinsson - aukavatnsgjald:

10.1 Sighvatur Hafsteinsson 9/1´06 - tilmæli um skilgreiningu á "stórnotanda" á

vatni.

 

10.2 Sighvatur Hafsteinsson 9/1´06 - mótmæli vegna reiknings fyrir aukavatnsgjaldi.

 

Lögð fram tillaga að svari til Sighvats Hafsteinssonar, fh. Garðávaxta ehf. vegna fyrirspurnar skv. 10.1 og mótmæla skv. 10.2 við álagningu aukavatnsgjalds á Garðávexti ehf.

 

Tillagan að svari samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að leita lausna vegna álagðs aukavatnsgjalds í samráði við fyrirtækið.

 

  1. KSÍ - tilboð um gervigras á sparkvelli:

Lagt fram bréf frá KSÍ, dagsett 10/1´06, varðandi tilboð um gervigras á sparkvöll.

 

Samþykkt samhljóða að vísa erindinu til íþrótta- og æskulýðsnefndar.

 

  1. Flugmálastjórn Íslands - Helluflugvöllur:

Lögð fram beiðni um umsögn, móttekin 12/1´06, vegna rekstrarleyfis flugöryggissviðs Flugmálsstjórnar Íslands fyrir Helluflugvöll í núverandi mynd.

 

Hreppsráðið gerir ekki athugasemd við að Flugmálastjórn reki flugvöllinn við Hellu í núverandi mynd.

 

  1. Erna G. Jóhannesdóttir og Ólafur Ö. Þórðarson - beiðni um umsögn:

Lögð fram beiðni Ernu G. Jóhannesdóttur og Ólafs Ö. Þórðarsonar um umsögn um stofnun lögbýlis á spildu í landi Brekkna og um heimild til skráningar lögheimilis í frístundahúsi.

Lagt fram afrit af bréfi skipulags- og bygginganefndar til umsækjenda dags. 29. des. 2005 vegna húsnæðisins sem sótt er um að skrá lögheimili í.

 

Hreppsráðið gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis á spildu í landi Brekkna en varðandi lögheimilisflutning í frístundahús er umsækjendum bent á að hafa samráð við skipulags- og byggingafulltrúa Rangárþings ytra um það hvort húsnæðið uppfyllir kröfur Byggingareglugerðar um íbúðarhúsnæði sbr. bréf frá skipulags- og bygginganefnd dagsett 29. desember.

 

  1. Ástríður Guðjónsdóttir og Margeir Þorgeirsson - beiðni um umsögn:

Lögð fram beiðni um umsögn um stofnun lögbýlis á spildu úr landi Snjallsteinshöfða II.

Meðfylgjandi er umsókn um stofnun lögbýlis til landbúnaðarráðuneytisins.

 

Hreppsráðið gerir ekki athugsemd við stofnun lögbýlis úr landi Snjallsteinshöfða II samkvæmt framlögðum gögnum. Umsækjendum er bent á að hafa samband við Örnefnanefnd varðandi heiti á lögbýlinu.

 

  1. Uppsögn leikskólastjóra Leikskólans á Laugalandi.

Herdís Styrkársdóttir leikskólastjóri á Laugalandi segir starfi sínu lausu frá og með

  1. mars 2006 með þriggja mánaða fyrirvara.

 

Sveitarstjóra falið að huga að ráðningu í starfið í samráði við oddvita Ásahrepps.

 

  1. Tillaga frá Umhverfissviði um kaup á mælingabúnaði skv. tilboði frá Afstöðu ehf.

Samþykkt samhljóða að festa kaup á umræddum búnaði samkvæmt tilboði að upphæð kr. 2,6 mkr. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2006.

  1. Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:

17.1 Sjónarhóll 14/1´06 - dagskrá málþings um þjónustu við fjölskyldur með

sérþarfir 10/2´06.

 

17.2 Kvennakórinn Ljósbrá 13/1´06 - umsókn um styrki.

 

  1. a) Umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 50.000.-

 

  1. Umsókn um endurgjaldslausa aðstöðu á Laugalandi vegna tónleika 29. apríl n.k.

 

Samþykkt samhljóða að veita kórnum styrk sem nemur hlut Rangárþings ytra í húsaleigu að Laugalandi vegna tónleika 29. apríl n.k.

 

17.3 Samband sunnlenskra kvenna 12/1´06 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 7.500.- vegna hvers þátttakanda frá Rangárþingi ytra.

 

17.4. Regnbogabörn 14/1´06 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 7.000.-

 

17.5 Körfuboltalið Dímonar 20/1´06 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk á móti húsaleigu.

 

17.6 SÁÁ 20/1´06 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að kaupa DVD pakka að upphæð kr. 12.000.-

 

17.7 Stjórn Kirkjukórs Odda- og Þykkvabæjarkirkna 18/1´06 - umsókn um styrk.

 

Samþykkt samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 100.000.- vegna tónleikaraðarinnar “Sumar í Odda” 2006.

 

17.8 Skólablað Landbúnaðarháskóla Íslands 23/1´06 - umsókn um styrk.

 

Hreppsráðið sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

17.9 Íþróttasamband lögreglumanna 25/1 2006 - umsókn um styrk.

 

Hreppsráðið sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

  1. Annað efni til kynningar:

18.1 Heilbrigðisnefnd Suðurlands 11/1´06 - vegna gjaldskrár um hundahald 2006 -

frestun afgreiðslu.

18.2 Heilbrigðisnefnd Suðurlands 11/1´06 - samþykki við gjaldskrá um sorphirðu og

meðhöndlun úrgangs 2006.

18.3 Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili 20/1´06 - fjárhagsáætlun 2006.

18.4 Skipulags- og byggingafulltrúi 18/1´06 - afrit af bréfi til Anders Hansen vegna

breytinga á aðalskipulagi á Leirubakka.

18.5 Bæjarráð Hornafjarðar 19/1´06 - frestun á þátttöku í "Green Globe 21".

18.6 Vinnueftirlitið 17/1´06 - um vinnuverndarátak í grunnskólum 2006.

18.7 Þjónustumiðstöð Breiðholts 12/1´06 - boð til eldri borgara um þátttöku í

menningarhátíð í Breiðholti.

18.8 Sýslumaðurinn á Hvolsvelli - tilkynningar um afsöl, kaupsamninga og

yfirlýsingar varðandi eignir.

 

Vísað er til fundargagna til upplýsingar um viðkomandi eignir.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30.

Ingibjörg Gunnarsdóttir, ritari.