10. september 2002

Hreppsráð Rangárþings ytra

Fundargerð

 

Aukafundur hreppsráðs Rangárþings ytra, kjörtímabilið 2002 - 2006, haldinn að Laufskálum 2 á Hellu, fimmtudaginn 10. september 2002, kl. 13:30.

 

Mætt: Sigurbjartur Pálsson, Heimir Hafsteinsson og Valtýr Valtýsson. Að auki situr fundinn Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritar fundargerð.

 

Sigurbjartur Pálsson, formaður hreppsráðs, setti fundinn og stjórnaði honum.

 

Sigurbjartur skýrði frá því að ekki hefði verið unnt að boða fundinn með fullum 2ja sólarhringa fyrirvara og óskaði eftir athugasemdum við lögmæti fundarins ef einhverjar væru. Engar athugasemdir komu fram og var samþykkt samhljóða að fundurinn teldist fullgildur.

 

  1. Fulltrúi Rangárþings ytra á aukafundi Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands 11/9'02:

Lögð fram tillaga um að Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri fari með atkvæðisrétt Rangárþings ytra á aukafundi Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands sem haldinn verður á Hótel Örk í Hveragerði, miðvikudaginn 11. september 2002 kl. 15.00. Öllum hreppsnefndarfulltrúum er heimilt að sitja fundinn þó þeir fari ekki með atkvæðisrétt.

 

Samþykkt samhljóða.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.55.