Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsráðs Rangárþings ytra kjörtímabilið 2006 - 2010, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, fimmtudaginn 24. janúar, 2008, kl: 13:00.
Mætt eru fulltrúar í hreppsráði: Sigurbjartur Pálsson, formaður, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Guðfinna Þorvaldsdóttir. Auk þeirra sitja fundinn Indriði Indriðason og Örn Þórðarson sem ritar fundargerð.
Tillaga um breytingu á dagskrá; við bætast liður 2.5. Uxahryggur 2, landskipti og liður 12. Hótel Rangá, vegna uppbyggingar.
Formaður setti fund og gekk til dagskrár.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar eða kynningar:
- Byggingarnefnd Rangárþings bs., 9. fundur, 10. jan. 2008.
Samþykkt samhljóða.
- Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu, 18. fundur, 9. jan. 2008, með framkvæmdaáætlun.
Til kynningar.
- Hnit verkfræðistofa, vinnufundur 3, Öldur III, 9. jan. 2008.
Til kynningar.
- Hnit verkfræðistofa, vinnufundur 4, Öldur III, 9. jan. 2008.
Til kynningar
- SASS, 410. fundur, 9. jan. 2008.
Til kynningar.
- Skólaskrifstofa Suðurlands, 101. fundur, 14. jan. 2008.
Til kynningar.
- Sorpstöð Suðurlands, 153. fundur, 20. des. 2007.
Til kynningar.
- Launanefnd sveitarfélaga, 224. fundur, 15. jan. 2008.
Til kynningar.
- Landskipti og sala á landi og landskikum og tengd erindi:
- Önnupartur, landskipti.
Önnupartur land, lóð 8,9 ha., landnúmer 212135 úr upprunalandi landnúmer 165447.
Önnupartur, land B, 34 ha., landnúmer 215344 úr upprunalandi 165457.
Lögbýlisréttur fylgir áfram jörðinni Önnuparti.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd ofangreind landskipti.
Samþykkt samhljóða.
- Berangur, samruni.
Lóðirnar Berangur, landnúmer 196037 og lóðir HS14, landnúmer 210534, renna saman og verða samtals 203,8 ha. Landnúmer samrunalóðar verður 196037.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd ofangreindan samruna.
Samþykkt samhljóða.
- Gaddstaðir, samruni.
Landnúmer upprunalands eru 214947 og 214948 verða 214948, samtals 5399,1 m2.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd ofangreindan samruna.
Samþykkt samhljóða.
- Vörður og Heysholt.
Farið er fram á sameiningu jarðanna Vörður 179774 og Heysholt 164974 í eitt lögbýli.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við sameiningu jarðanna.
Samþykkt samhljóða.
- Uxahryggur 2.
Uxahryggur 2, lóð 3, landnúmer 212278 úr upprunalandi 164562, stærð 7.902 m2.
Uxahryggur 2, lóð 4, landnúmer 212279 úr upprunalandi 164562, stærð 8.887 m2.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við landskiptin.
Samþykkt samhljóða.
- Dómur héraðsdóms Suðurlands í máli Rangárþings ytra gegn Ásahrepp.
Til kynningar.
- Samstarf í vatnsmálum, erindi frá Flóahrepp.
Erindinu vísað til Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
- Útgáfa þjónustukorts Rangárþings og Mýrdals.
Tillaga um að heimila prentun á 25 þúsund eintökum af kortinu og greiða hlutdeild sveitarfélagsins í kostnaði. Sveitarstjóra falið að skoða hvort gera þurfi breytingar á kortinu.
Samþykkt samhljóða
- Íslandsbókin 2008, auglýsing.
Tillaga um að hafna þátttöku í auglýsingu
Samþykkt samhljóða.
- Eldvarnareftirlit – slökkvilið, tilkynning frá Skaftárhreppi.
Til kynningar.
- Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2007.
Til kynningar.
- Kaup á ríkisjörðinni Gröf, erindi frá Landgræðslu ríkisins.
Til kynningar.
- Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
- Fjallskilanefnd Landmannaafréttar, kvikmyndasýning.
Sveitarstjórn samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 31.350 vegna salarleigu á Laugalandi.
Samþykkt samhljóða.
- Námskeið í skipulagsgerð sveitarfélaga.
Til kynningar.
- Aðalfundur veiðifélags Eystri Rangár
Til kynningar.
- Ráðstefna um Staðardagskrá 21
Til kynningar.
- Ráðstefna um snjóflóðavarnir, skipulagsmál og samfélagsmál.
Til kynningar.
- unlingalandsmót UMFÍ 2010.
Til kynningar.
- Fundargerðir launanefndar sveitarfélaga og viðræðuaðila.
Til kynningar.
- Annað efni til kynningar:
- Fornleifavernd ríkisins, vegna Litla Klofa.
- Félagsmálaráðuneytið, vegna húsaleigubóta.
- Félagsmálaráðuneytið, vegna félagslegra leiguíbúða.
- Fundargerðir launanefndar sveitarfélaga og viðræðuaðila.
- Hótel Rangá, vegna uppbyggingar.
Sveitarstjóra falið að afgreiða erindið.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.30
Örn Þórðarson.