Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, fimmtudaginn 27. mars. 2008, kl. 13.00.
Mætt voru: Sigurbjartur Pálsson, Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Guðfinna Þorvaldsdóttir og Þorgils Torfi Jónsson sat fundin undir lið 11.4. Að auki sátu fundinn Örn Þórðarson, sveitarstjóri, og Indriði Indriðason, fjármálastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður lagði til eftirfarandi breytingar á auglýsti dagskrá. Við bætast eftirtaldir liðir: 11.8., Erindi frá kvenfélaginu Unni, og liður 11.9. Styrkbeiðni vegna kartöfluballs í Þykkvabæ.
Samþykkt samhljóða.
- Umsóknir um iðnaðar- og athafnalóðir:
1.1. Rangárstígur 9, með vísan í lið 9.2 frá 23. fundi hreppsráðs.
Erindi barst frá Sláturhúsinu Hellu;
,, Í ljósi þess að tvær umsóknir eru um lóðina að Rangárstíg 9, þá dregur Sláturhúsið Hellu hf. umsókn sína til baka. Sláturhúsið Hellu hf. vill með því að draga umsókn sína til baka liðka fyrir uppbyggingu hér á Hellu og fagnar því að áhugi annarra sé fyrir því að starfa í nágrenni við sláturhúsið.
Þorgils Torfi Jónsson fh. Sláturhússins Hellu hf.”
Bókun fulltrúa B- lista.
,,Áður en úthlutað verður lóð að Rangárstíg 9, legg ég undirrituð fram eftirfarandi bókun:
Það er skýrt tekið fram í reglum um lóðaúthlutanir að auglýsa beri lóðir þegar þær eru tilbúnar til úthlutunar hjá sveitarfélaginu. Nefndarmenn og sveitarstjóri segja að svo hafi verið gert á sínum tíma og að farið sé að vinnureglum sveitarfélagsins varðandi umrædda lóð.
Ég vil benda á það sem ég tel að betur mætti fara varðandi vinnubrögð við lóðaúthlutanir:
- Byggingalóðir ætti að auglýsa reglulega til að allir íbúar séu vel upplýstir um lausar lóðir, en það hefur ekki verið gert hingað til.
- Í ljósi þessa sem rakið hefur verið, þá get ég ekki annað en samþykkt að úthluta lóðinni og treysti því að farið sé að reglum um lóðaúthlutanir hjá sveitarfélaginu.”
Guðfinna Þorvaldsdóttir fulltrúi B-lista
Í ljósi þess að Sláturhúsið Hellu hf hefur dregið umsókn sína til baka samþykkir hreppsráð samhljóða að úthluta umræddri lóð til Rauðáss ehf. kt. 640506-0910.
- Fundargerðir til staðfestingar eða kynningar:
2.1. Byggingarnefnd grunn- og leikskóla á Hellu, 3. fundur, 19 mars 2008.
Eftirfarandi bókun kom fram frá fulltrúa B lista:
,,Ég undirrituð tek undir tillögu og bókun í 3. lið og get því ekki samþykkt fundargerðina af þeim sökum.” Guðfinna Þorvaldsdóttir
Fundargerð vísað til hreppsnefndar.
2.2. Búfjáreftirlitsnefnd, fundur frá 8. febrúar 2008.
Til kynningar.
- Landskipti og sala á landi og landskikum, stofnun lögbýla og tengd erindi:
3.1. Heiði, landskipti.
Óskað er umsagnar sveitarstjórnar um landskipti úr landi Heiðar, landnr. 164503, í nýja spildu í landnr. 215976. Ekki er gerð athugasemd við landskiptin.
Samþykkt samhljóða.
3.2. Orrustuhóll, landhlutaverkefni í skógrækt.
Til kynningar.
- Umsagnir vegna leyfisveitinga sýslumanns á Hvolsvelli:
4.1. Hrafntinnusker, gististaður II.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við veitingu ofangreinds leyfis, með fyrirvara um samþykki annarra aðila er málið varða.
Samþykkt samhljóða.
4.2. Álftavatn, gististaður II.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við veitingu ofangreinds leyfis, með fyrirvara um samþykki annarra aðila er málið varða.
Samþykkt samhljóða.
4.3. Landmannalaugar, gististaður II.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við veitingu ofangreinds leyfis, með fyrirvara um samþykki annarra aðila er málið varða.
Samþykkt samhljóða.
4.4. Hvanngil, gististaður II.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við veitingu ofangreinds leyfis, með fyrirvara um samþykki annarra aðila er málið varða.
Samþykkt samhljóða.
- Markaðsstofa Suðurlands, samstarfssamningur:
Til kynningar.
- Hella fráveita, kostnaðaráætlun:
Til kynningar.
- Sorpmeðhöndlun eftir lokun Kirkjuferjuhjáleigu:
Til kynningar.
- Breytingar á lögum um orku- og iðnaðarsvið:
Til kynningar.
- Skólamálastefna Sambandsíslenskra sveitarfélaga:
Til kynningar.
- Lánasjóður sveitarfélaga ohf., aðalfundur:
Hreppsráð samþykkir samhljóða að Þorgils Torfi Jónsson fari með umboð sveitarfélagsins á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. þann 4 apríl n.k.
- Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
11.1. Húsakynni bs., aðalfundur.
Til kynningar
11.2. Vegahandbókin, þátttaka.
Erindinu er hafnað. Samþykkt samhljóða.
11.3. Flugbjörgunarsveitin Hellu, styrkur á móti álögðum fasteignaskatti.
Hreppsráð samþykkir samhljóða að veita Flugbjörgunarsveitinni styrk að upphæð 293.700 kr. á móti álögðum fasteignaskatti.
11.4. Rangárbakkar ehf., styrkur á móti álögðum fasteignaskatti.
Ingvar Pétur Guðbjörnsson lýsti yfir vanhæfi og vék af fundi. Þorgils Torfi Jónsson tók sæti í hans stað.
Hreppsráð samþykkir samhljóða að veita Rangárbökkum styrk að upphæð 289.054 kr. á móti álögðum fasteignaskatti.
Þorgils Torfi Jónsson vék af fundi og Ingvar Pétur Guðbjörnsson tók sæti að nýju.
11.5. Unicef Ísland, Barnasáttmálinn.
Til kynningar.
11.6. Andre Bachman, hljómdiskur.
Erindinu er hafnað.
11.7. Laugalandskóli 50 ára, afmælisgjöf.
Hreppsráð samþykkir samhljóða að greiða hlut sveitarfélagsins í gjöf til Laugalandsskóla, að upphæð 75.000 kr.
11.8. Erindi frá kvenfélaginu Unni.
Hreppsráð samþykkir samhljóða að veita kvenfélaginu Unni 50.000 kr. styrk vegna fundar Sambands sunnlenskra kvenna þann 3. maí n.k.
11.9. Styrkbeiðni vegna kartöfluballs í Þykkvabæ.
Hreppsráð samþykkir samhljóða að veita styrk á móti húsaleigu í íþróttahúsi Þykkvabæjar vegna Kartöfluballs þann 5. apríl n.k.
- Annað efni til kynningar:
12.1. Húsakynni bs. skoðunarskýrsla Fossalda 1.
12.2. Samgönguráðuneytið, jöfnunarsjóður, uppgjör framlaga 2007.
12.3. Samgönguráðuneytið meðferð og afgreiðsla ársreikninga sveitarfélaga.
12.4. Héraðssambandið Skarphéðinn, þakkir til héraðsnefnda og sveitarfélaga.
12.5. Landbúnaðarsýning á Hellu, upplýsingar.
12.6. Tónlistarskóli Rangæinga, skólanámskrá og – stefna.
12.7. Fræðslunet Suðurlands, ársskýrsla og – reikningur 2007.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 14.30.
Sigurbjartur Pálsson
Formaður hreppsráðs
Ingvar Pétur Guðbjörnsson Guðfinna Þorvaldsdóttir
Örn Þórðarson Indriði Indriðason,
sveitarstjóri fjármálastjóri