50. fundur 21. apríl 2010

Hreppsráð Rangárþings ytra

 

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, kjörtímabilið 2006 – 2010,

haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, miðvikudaginn 21. apríl 2010, kl. 13:00.

 

Mættir: Sigurbjartur Pálsson, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir. Að auki Örn Þórðarson sem ritaði fundargerð. Forföll boðaði Ólafur E. Júlíusson.

 

Við bætist liðir 6 og 7. Samþykkt samhljóða.

 

  1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar eða kynningar:
    • Öldur III, 21. verkfundur, 14. apríl 2010.

Til kynningar.

  • Suðurlandsvegur 1-3, II áfangi, 17. fundur, 30. mars 2010.

Til kynningar.

  • Suðurlandsvegur 1-3, II áfangi, 18. fundur, 9. apríl 2010.

Til kynningar.

  • Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, 125. fundur 8. apríl 2010.

Til kynningar.

  • Skólaskrifstofa Suðurlands, 120. fundur, 12. apríl 2010.

Til kynningar.

  • Eignarhaldsfélag Suðurlands, aðalfundur, 26. mars 2010.

Til kynningar.

  • Samband íslenskra sveitarfélaga, 733. fundur 26. mars 2010.

Til kynningar.

  1. Landskipti, stofnun lögbýla og tengd erindi:
    • Stúfholt 4, landskipti.

Hreppsráð gerir ekki athugasemd við að skipt verði úr jörðinni Stúfholti 4 (lnr. 194719) lóð með landnúmeri 219303 (10.000 fm.). Engin afstaða er tekin til eignarhalds eða landamerkja.

Samþykkt samhljóða.

  1. SASS, tilnefning fulltrúa í starfshóp um mat á sameiningarkostum sveitarfélaga.

Afgreiðslu vísað til hreppsnefndar.

Samþykkt samhljóða.

  1. Hestamannafélagið Geysir, beitarhólf.

Lagðar fram tillögur um beitarhólf í landi sveitarfélagsins í nágrenni Hellu, (í landi Gaddstaða, Ness og Bjargs) til afnota fyrir hestamannafélagið Geysi. Hreppsráð fellst á að hestamannafélaginu verði veitt afnot af umræddum beitarhólfum gegn því að samningur um afnot af beitarhólfi við Gaddstaðaflatir, sunnan þjóðvegar falli niður. Samþykkt að fela Rangárbökkum ehf. umsjón með beitarhólfi við þjóðveg. Sveitarstjóra falið að ganga frá samkomulagi er byggi á framangreindri samþykkt hreppsráðs og gera ráð fyrir að samkomulagið verði til fjögurra ára með ákvæði um framlengingu, ekki skal gera ráð fyrir greiðslu, heldur skulu umráðaaðilar skila umræddum hólfum í betra ástandi en tekið er við þeim. Hestamannafélagið skal sjá um girðingar umhverfis beitarhólfin. Sveitarfélagið skal hafa fortakslausan rétt, án bóta, til að afturkalla samkomulag þetta, með þriggja mánaða fyrirvara, gerist þess þörf. Önnur notkun en til beitar skal háð samþykki sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

  1. Útfall Hólsár, Landgræðsla ríkisins.

Hreppsráð fellst á aðkomu að verkefninu, gegn því að aðrir hlutaðeigandi aðilar komi að því. Sveitarstjóra falið að kanna kostnaðarþátttöku opinberra aðila vegna verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.

  1. Trúnaðarmál.

Fært í trúnaðarmálabók.

  1. Þjónustukort, Rangárvallasýsla og Mýrdalshreppur.

Hreppsráð fellst á þátttöku í verkefninu, gegn því að aðrir hlutaðeigandi aðilar komi að því.

Samþykkt samhljóða.

  1. Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
    • Rangárhöllin ehf., beiðni um styrk á móti álögðum fasteignaskatti.

Hreppsráð fellst á að veita umbeðinn styrk.

Samþykkt samhljóða.

 

  • Rangárbakkar hestamiðstöð Suðurlands, beiðni um styrk á móti álögðum fasteignaskatti.

Hreppsráð fellst á að veita umbeðinn styrk.

Samþykkt samhljóða.

  1. Annað efni til kynningar:
    • Héraðssambandið Skarphéðinn, tillögur til sveitarstjórna.
    • Skipulagsstofnun, listi yfir skipulagsfulltrúa.
    • Fornleifavernd ríkisins; Landmannahellir, Skammbeinsstaðir, Mið Sel, Þjóðólfshagi, Múli, Kvíarholt.
    • Tún vottunarstofa, fundargerð aðalfundar 19. mars 2010 og ársreikningar 2009.
    • Drög að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:30.