Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu,
fimmtudaginn 12. ágúst 2010, kl. 13.00.
Mættir: Margét Ýrr Sigurgeirsdóttir, formaður hreppsráðs, Steindór Tómasson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson. Að auki Guðfinna Þorvaldsdóttir, sveitarstjóri og Indriði Indriðason, fjármálastjóri sem ritaði fundargerð .
Formaður setti fundinn.
Tillaga er að eftirtaldir liðir bætist við dagskrá:
Að við bætist liðir 1.8 og 1.9. ,fundargerðir samgöngu- hálendis og umhverfisnefndar , 1 og 2. fundur. , 2.1 leyfi fyrir skotelda, 2.2., leyfi fyrir brennu á Töðugjöldum., 21. Suðurlandsvegur 1-3 ehf. minnisblað frá stjórn og minnisblað frá KPMG. 22., Erindi frá Bergi Sveinbjörnssyni. 23., Íbúafundur
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar eða kynningar:
- Félagsmálanefnd, 1. fundur frá júlí 2010.
Til kynningar.
- Atvinnu-og menningarmálanefnd, 1. fundur frá 3. ágúst 2010.
Til kynningar.
- Íþrótta- og tómstundanefnd 1 fundur frá 28. júlí. 2010.
Sveitarstjórn tekur undir bókun í lið 3. Sveitarstjórn mun hafa fullt samráð við allar nefndir sveitarfélagsins, en í þessu tiltekna máli gafst ekki ráðrúm til þess.
Fundargerðin er staðfest.
Samþykkt samhljóða.
- Fræðslunefnd Rangárþings ytra 2 fundur frá 11 ágúst 2010.
Liður 1 í fundargerð fræðslunefndar:
Sveitarstjórn felur fræðslunefnd að móta tillögu að samræmdum reglum um tónlistarnám utan sveitarfélagsins áður en gengið verður frá samningum við Tónsmiðju Suðurlands eða aðra aðila.
Samþykkt samhljóða.
Liður 2 .1 í fundargerð fræðslunefndar :
Erindi frá sveitarstjóra um stöður aðstoðarleikskólastjóra við leikskóla. Í álit fræðslunefndar kemur fram eftirfarandi:
„Í ljósi þess að starf aðstoðarleikskólastjóra er ekki lögbundið og að deildum Heklukots hefur verið fækkað, telur fræðslunefnd að ekki sé lengur þörf á aðstoðarleikskólastjóra í Heklukoti“.
Niðurstaða sveitarstjórnar er að fara eftir niðurstöðu fræðslunefndar og gera viðeigandi skipulagsbreytingar á stjórnun leikskólans.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá starfslokum við aðstoðarleikskólastjóra í samræmi við gildandi kjarasamninga, vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga.
Samþykkt samhljóða.
Liður 2 .2 í fundargerð fræðslunefndar :
Sveitarstjórn tekur undir ábendingu fræðslunefndar um gerð reglna um námsstyrki til réttinda- og framhaldsnáms til kennslu og bendir á að hreppsráð er með þetta mál í vinnslu.
Sveitarstjóra falið að senda áður kynnt drög að reglum um námstyrki til skólastjórnenda og fræðslunefndar og kalla eftir ábendingum um þetta mál. Einnig er sveitarstjóra falið að kanna hvaða reglur gilda í nágrannasveitarfélögum.
Samþykkt samhljóða.
Liður 3 í fundargerð fræðslunefndar:
Þá vill sveitarstjórn benda á að formaður fræðslunefndar og sveitastjóri svari umræddu erindi. Hvað varðar tillögu um að nýtingu skólahúsnæðis í Þykkvabæ þá er sveitarstjóra falið að óska eftir frekari útskýringum á tillögu um uppbyggingu fjarnámssetur frá fræðslunefnd og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Liður 5 í fundargerð fræðslunefndar :
Björg Kvaran leikskólastjóri Heklukots hefur sagt starfi sínu lausu með bréfi, dags 11. ágúst 2010. Tekur uppsögnin gildi frá og með 1. september n.k.
Sveitarstjórn þakkar Björgu vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og að auglýsa starf leikskólastjóra við Heklukot og í framhaldinu að endurmeta starfsmannahald leiksskólans Heklukots í samráði við fræðslunefnd og fagaðila og skila áliti til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 8 í fundargerð fræðslunefndar :
Bent er á að samningur sem er í vinnslu milli skólans og Meðferðarheimilisins Lækjarbakka á Geldingarlæk um kennslu barna á meðferðarheimilinu, þarf að leggja fyrir sveitarstjórn til samþykktar þegar hann er tilbúinn.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Samþykkt samhljóða.
- Stjórnarfundur Suðurlandsvegar 1-3 ehf. fundur frá 10 ágúst 2010.
Til kynningar.
- fundur Skipulagsnefndar Rangárþins ytra, frestuð mál frá 29. júlí 2010.
Umsókn frá Bergi Sveinbjörnssyni kt. 150643-2959, um stöðuleyfi fyrir um 1850m2 húsnæðis sem staðið hefur á Nesjavöllum um nokkurra ára skeið. Óskað er eftir að fá að setja húsin niður á gatnamótum Dómadalur/Sigalda/Ljóti Pollur /Landmannalaugar.
Borist hefur bréf frá Umhverfisstofnun, dags 11 ágúst 2010. en þar kemur eftirfarandi fram:
„Niðurstaða:
Stöðuleyfi er skilgreint í byggingarreglugerð nr. 441/1998 sem heimild til að staðsetja hjólhýsi,gáma og báta á tilteknum stað um takmarkaðan tíma og getur gilt mest í eitt ár. Í 71.gr byggingarreglugerðar segir að gámar skuli ekki standa utan skipulagðra gámasvæða. Byggingarnefnd getur í sérstökum tilfellum, svo sem vegna byggingarframkvæmda, þjónustu eða sorpsöfnunar veitt tímabundið leyfi í allt að eitt ár í senn.
Umhverfisstofnun telur að ekki séu forsendur til að veita stöðuleyfi fyrir umrædda hálendismiðstöð, enda um umfangsmikið mannvirki að ræða og kallar á samráð og ítarlegri umfjöllun um málið. Samkvæmt skipulagsreglugerð nr.400/1998 þá skal gera grein fyrir hvaða landnotkun er fyrirhuguð á náttúruverndarsvæðum og hvernig hún fellur að þeim reglum sem gilda fyrir hvert svæði fyrir sig. Fyrirhuguð mannvirkjagerð á náttúruverndarsvæðum skal gera grein fyrir í deiliskipulagi.
Umhverfisstofnun bendir á að sveitarfélagið hafi rætt um gerð rammaskipulags fyrir svæðið sem stofnunin telur vera forsendur fyrir áframhald verkefnisins. Stofnunin bendir einnig á að ekki liggur fyrir verndaráætlun fyrir friðlandið.“
Í ljósi ofangreindar niðurstöðu Umhverfisstofnunar, hafnar sveitarstjórn veitingu stöðuleyfis samkvæmt framangreindri umsókn Bergs Sveinbjörnssonar.
Samþykkt samhljóða.
- Lóðaframkvæmdir við Suðurlandsveg 1-3. frestun frá 3. fundi hreppsráðs.
Umræða var um yfirstandandi framkvæmdir og sveitarstjóra er falið að útvega gögn vegna málsins .
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerð Samgöngu- hálendis og umhverfisnefndar 1. fundur. frá 12 júlí 2010.
Fundargerðin er staðfest.
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerð Samgöngu- hálendis og umhverfisnefndar, 2. fundur frá 10 ágúst 2010.
Hvað varðar lið 1 í umræddri fundargerð þá vísar sveitarstjórn til afgreiðslu á lið 1.6 hér að ofan.
Hvað varðar 4 lið þá samþykkir sveitarstjórn að heimila kaup á verðlaunum fyrir 60. þús. kr.
Að öðru leiti er afgreiðslu fundargerðarinnar frestað.
Samþykkt samhljóða.
- Umsagnir um veitingaleyfi og tengd erindi:
- Sýslumaður beiðni um umsögn vegna skoteldaleyfis.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umsótt leyfi verði veitt.
Samþykkt samhljóða.
- Sýslumaður beiðni um umsögn vegna brennuleyfis á Töðugjöldum.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umsótt leyfi verði veitt.
Samþykkt samhljóða.
- Umsóknir um skólavist og tengd erindi:
- Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags.
Sótt erum að nemandi fái námsvist í Grunnskóla Vestmannaeyja.
Samþykkt samhljóða að greiða viðmiðunarkostnað.
- Landskipti og tengd erindi:
- Beiðni um umsögn vegna umsóknar um lögbýli. Bréf dagsett 26. júní 2010.
Óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis að Hlymhólum Landsveit, landspildur úr landi Litla-Klofa lnr. 191976 og lnr. 209901.
Afgreiðslu frestað og sveitarstjóra falið að afla frekari gagna sbr. deiliskipulag svæðisins ásamt umræddu mati frá Byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða.
- Skipulagsmál og tengd erindi:
- Skipulag ferðamannaaðstöðu í landi Heysholts. Bréf dags 30. júlí 2010.
Erindinu er vísað til Skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
- Erindi frá Trausta Tómssyni um malarvinnslu við Reynifell, dagsett 9. ágúst 2010
Skipulag-og byggingarfulltrúa falið að kynna sér málið og leggja niðurstöðu fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
- Umhverfismál, erindi frá Íslenska gámafélaginu, dagsett 5. ágúst 2010:
Sveitarstjóra falið að ræða við bréfritara og koma á fundi.
Samþykkt samhljóða.
- Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, breytingar á lögum og reglugerðum um Jöfnunarsjóð, bréf dagsett 28 júlí 2010:
Til kynningar
- Ráðningarsamningur sveitarstjóra:
Undirritaður ráðningarsamningur við Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóra, lagður fram.
Sveitarstjórn staðfestir framlagaðan ráðningarsamning.
Samþykkt samhljóða.
- Skipan fulltrúa í vinnuhóp um friðlýsingu Þjórsárvera bréf dagsett 28. júlí 2010:
Sveitarstjórn tilnefnir Magnús H. Jóhannsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í vinnuhóp um friðlýsingu Þjórsárvera.
Samþykkt með tveimur atkvæðum, einn situr hjá (GIG).
- Umsókn um launalaust leyfi, bréf frá Svandísi Þorhallsdóttur, dagsett 15 júlí 2010:
Vísað er til liðar 1.4. í ofangreindri fundargerð.
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúar í samráðsnefnd um Holtamannaafrétt:
Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir aðilar verði fulltrúar í samráðsnefnd um Holtamannaafrétt:
Aðalmenn eru: Sigfús Davíðsson og Sigurbjartur Pálsson og varamenn Kjartan G. Magnússon og Helga Fjóla Guðnadóttir.
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúar Rangárþings ytra í stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps:
Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir aðilar verði fulltrúar í stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Aðalmenn eru Guðmundur Jónasson og Ingvar Pétur Guðbjörnsson og varamenn Sigfús Davíðsson og Þorgils Torfi Jónsson.
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúi Rangárþings ytra í stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu:
Tilnefndur er sem aðalmaður Sigfús Davíðsson og til vara Anna María Kristjánsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
- Kapalkerfi Hellu, bréf dagsett 28. júlí 2010:
Sveitarstjóra falið að ræða við bréfritara.
Samþykkt samhljóða.
- Útfall Hólsár, bréf dagssett 4. ágúst 2010:
Erindinu vísað til Héraðsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
- Ferðamálastofa, styrkir til ferðaþjónustu 2005-2010, bréf dagsett 5. ágúst 2010:
Sveitarstjóra falið svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.
- Þjóðarátak um rafbílávæðingu, bréf dagsett 4. ágúst 2010:
Til kynningar.
- Þrúðvangur, frestað mál frá 3. fundi hreppsráðs:
Lagt er fram tilboð í eftirlitsbúnað.
Samþykkt samhljóða og er kostnaði vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
- Samræmdar reglur um kjör og hlunnindi:
Rætt var um akstursstyrki hjá sveitarfélaginu og var sveitarstjóra falið leggja fram kostnaðartölur vegna greiddra akstursstyrkja og afla upplýsinga hvernig viðkomandi málum er háttað hjá nágranna sveitarfélögum.
Samþykkt samhljóða.
- Suðurlandsvegur 1-3 ehf. minnisblöð:
Sveitarstjóra er falið að koma á samráðsfundi með eignaraðilum Suðurlandsvegar 1-3 ehf. um aðgerðir til að halda áfram byggingarframkvæmdum.
Samþykkt samhljóða.
- Erindi frá Bergi Sveinbjarnarsyni um stöðuleyfi dagsett 12 ágúst 2010.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 1080 fm. húsnæði að Lyngási II og 240 fm. húsnæði að Birkiflöt. Afstöðumynd og önnur gögn liggja ekki fyrir.
Umsóknunum er vísað til byggingarnefndar.
Samþykkt samhljóða.
- Íbúafundur:
Íbúafundur til upplýsingar um helstu mál sveitarstjórnar verður haldinn fyrir lok ágúst.
Sveitarstjóra er falið að boða hlutaðeigandi aðila á fundinn.
Samþykkt samhljóða.
- Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
- Stúlknakórinn Hekla, umsókn um styrk vegna utanlandferðar bréf dags.29.júlí 2010.
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir og Steindór Tómasson víkja af fundi vegna vanhæfis.
Guðfinna Þorvaldsdóttir tók sæti á fundinum sem varamaður.
Lagt er til að veita styrk að upphæð 100 þús. kr.
Samþykkt samhljóða.
Guðfinna Þorvaldsdóttir vék af fundi og tekur sæti sem sveitarstjóri og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir og Steindór Tómasson taka sæti á fundinum að nýju.
- Erindi frá Þuríði H. Aradóttur markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings eystra dags. 10. ágúst 2010.
Þuríður leggur til að Rangárþing ytra haldi áfram þátttöku í Suðurlandsbæklingnum.
Sveitarstjóra falið að kanna hver kostnaður er við þátttöku í verkefninu og leggja það fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
- Fundarboð landsfundur jafnréttisnefnda, 10- 11 september 2010.
Til kynningar.
- Fiskeldisstöðin Fellsmúla.
Sveitarstjóri upplýsti fundarmenn um stöðu mála, von er á minnisblaði frá lögmanni sveitarfélagsins vegna málsins.
- Annað efni til kynningar:
- Sundlaug Hellu bréf dags. 2 ágúst 2010.
- Umhverfisstofnun, eftirlit með urðun, bréf dags. 14. júlí 2010.
- ÁTVR bréf dags. 4. ágúst 2010.
Fleira ekki gert fundi slitið kl 19.20.