8. fundur 30. nóvember 2010

Hreppsráð Rangárþings ytra

 

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu,

þriðjudaginn 30. nóvember 2010, kl. 16.00

 

Mætt eru Margét Ýrr Sigurgeirsdóttir, formaður hreppsráðs, Steindór Tómasson og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson. Að auki Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri, sem ritar fundargerð.

Formaður setur fund.

Erindi til umsagnar og afgreiðslu:

  1. Ákvörðun útsvarshlutfalls 2011.

Hreppsráð samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.

Samþykkt samhljóða.

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin yfir og fundi slitið kl. 16.05