11. fundur 17. mars 2011

Hreppsráð Rangárþings ytra

 

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu,

fimmtudaginn 17. mars 2011, kl. 16.00

 

Mætt eru Margét Ýrr Sigurgeirsdóttir, formaður hreppsráðs, Steindór Tómasson og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson. Að auki Gunnsteinn R. Ómarsson, sem ritar fundargerð.

Formaður setur fund.

Fundargerðir fastanefnda:

  1. fundur atvinnu- og menningarmálanefndar Rangárþings ytra, dags. 3. mars 2011.

Varðandi lið 1 í fundargerðinni lýst hreppsráði vel á hugmyndir Víglundar og lýsir vilja til þess að leggja verkefninu lið svo koma megi því af stað. Hreppsráð leggur til að sveitarstjóri og oddviti ræði við Víglund um framhald verkefnisins og mögulega aðkomu sveitarfélagsins.

Varðandi lið 3 í fundargerðinni er nauðsynlegt að öll leyfi liggi fyrir áður en lagt er af stað í verkefnið og einnig að þetta fái rými í endurskoðaðri fjárhagsáætlun sé um fjárútlát að ræða.

Varðandi lið 7 í fundargerðinni tekur hreppsráð undir með nefndinni en leggur til að kannað verði með skörun við hugmynd sem fram kemur í lið 1 í fundargerðinni og möguleg samlegðaráhrif hugmyndanna tveggja verði skoðuð með jákvæðum hug.

Varðandi lið 8 í fundargerðinni tekur hreppsráð undir með nefndinni og telur það óviðunandi þjónusta við íbúa og ferðafólk að ekki sé Vínbúð á Hellu. Hreppsráð skorar á forsvarsmenn ÁTVR að endurskoða málin varðandi Vínbúð á Hellu. Sveitarstjóra er falið að koma á fundi með forsvarsmönnum ÁTVR um stöðu málsins.

Varðandi lið 12 í fundargerðinni er nauðsynlegt að fá breytt erindisbréf til yfirlestrar áður en afstaða er tekin til þess.

Að öðru leyti er fundargerðin samþykkt samhljóða.

Skipulagsmál og tengd erindi til staðfestingar:

  1. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs., dags. 10. mars 2011.

195 2011 Breyting á deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra.

Deiliskipulag fyrir Búðarhálsvirkjun og Búðarhálslínu 1 var samþykkt 19. júní 2001 og hefur framkvæmdin farið í mat á umhverfisáhrifum. Deiliskipulagið er dagsett 14. febrúar 2001 og var unnið af Landmótun sf.

Gerð er breyting á nokkrum þáttum í deiliskipulagi fyrir Búðarhálsvirkjun og Búðarhálslínu 1 í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 og Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 og er deiliskipulagsbreytingin í samræmi við þær breytingar. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á deiliskipulaginu og vísa númerin í deiliskipulagsuppdrátt:

  1. Afmörkun skipulagssvæðisins er breytt til að ná yfir breytta legu Búðarhálslínu 1 og nýtt tengivirki við Langöldu.
  2. Iðnaðarsvæði minnkar verulega og eru afmörkuð 4 minni iðnaðarsvæði. Gert er ráð fyrir nýju tengivirki á iðnaðarsvæði norðan við Langöldu.
  3. Námur E1 - E3 færast til og stærð þeirra breytist.
  4. Búðarhálslína 1 er færð um 3 km til norðausturs, þar sem hún þverar Tungnaá.
  5. Landnotkunarflokkurinn „almennt verndarsvæði“ er felldur út, enda á hann sér ekki skírskotun í lögum.Sveitarfélagamörk, örnefni og aðrir kortagrunnar eru uppfærðir til samræmis við ný grunngögn. Að öðru leyti gildir deiliskipulag sem dagsett er 14. febrúar 2001. Þar er gerð grein fyrir forsendum ásamt skipulags- og byggingarskilmálum.

Skipulagsnefnd vill með breytingu á bókun árétta að deiliskipulagsbreytingin nær til beggja sveitarfélaganna.

Skipulagsnefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar, og mælist til að hún verði auglýst lögum samkvæmt.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

  1. Beiðni Jónu Sveinsdóttur kt. 270244-5139 um staðfestingu landsskipta í landi Meiri-Tungu 3. landnr. 15131. Frestað erindi frá fundi sveitarstjórnar 10. feb. 2011, tl. 3, ml. 4.

Í ljósi innsendra gagna gerir hreppsráð ekki athugasemd við landskiptin.

Erindi til umsagnar og afgreiðslu:

  1. Hugmyndagátt – listi yfir innkomnar hugmyndir/skráningar.

Til kynningar.

  1. CISV á Íslandi; Greiðsla fyrir afnot af húsnæði grunnskóla og íþróttamiðstöðvar á Hellu vegna unglingabúða 1. – 23. júlí 2011.

CISV eru alþjóðleg samtök sjálfboðaliða sem með samstarfi sínu hafa þróað tækifæri fyrir fólk á öllum aldri að kynnast menningu fjölmargra landa í gegnum kennslutengda starfsemi. CISV starfa í þeirri trú að friður í heiminum sé mögulegur í gegnum vinskap - og að raunverulegt skref til þess sé hægt að taka í gegnum starf með börnum. CISV eru sjálfstæð samtök, óháð pólitískum og/eða trúarlegum skoðunum, sem byggja starf sitt á því að stuðla að friði í gegnum vinskap og samstarf ólíkra menningarbrota og starfa í rúmlega 60 þjóðlöndum um heim allan.

CISV verða með unglingabúðir á Hellu 1. – 23. júlí 2011 og hafa óskað eftir afnotum af húsnæði grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og munu greiða fyrir aðstöðuna.

Með vísun í bókun sveitarstjórnar frá fundi dags. 10. feb. 2011, tl. 6, að höfðu samráði við skólastjóra og forstöðumann íþróttamiðstöðvar samþykkir hreppsráð að verða við beiðni CISV um afnot af húsnæði sveitarfélagsins.

  1. Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra; Þjónustukort Rangárþings og Mýrdals.

Í bréfinu kemur fram að komið er að árlegri endurskoðun á þjónustukorti Rangárþings og Mýrdals. Þjónustukortið hefur verið gefið út árlega frá árinu 2004 af sveitarfélögunum innan svæðisins. Kortið nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna sem fara um svæðið en jafnframt hafa ferðaþjónustuaðilar og upplýsingamiðstöðvar allt í kringum okkur óskað reglulega eftir upplagi til dreifingar. Árlega hafa iðulega verið prentuð út 25.000 eintök og hefur lagerinn klárast. Kortið fyrir árið 2010 var hins vegar prentað út s.l. sumar í 20.000 eintökum þar sem það kom ekki út fyrr en á miðju sumri. Jafnframt kemur fram að leitað hefur verið tilboða í prentun frá einum aðila.

Hreppsráð samþykkir að taka þátt í útgáfu og prentun kortsins fyrir árið 2011 og er gert ráð fyrir slíkum kostnaði í fjárhagsáætlun fyrir árið. Hreppsráð hvetur til þess að leitað verði tilboða frá fleiri aðilum í prentun og er sérstaklega hvatt til að horft verði til fyrirtækja á Suðurlandi. Sé lagerstaða þannig sér hreppsráð ekki ástæðu til að prenta kortið í 25 þús. eintökum og leggur til að prentuð verði 20 þús. eintök.

Hreppsráð leggur til að fyrirkomulag þessarar útgáfu verði tekið til gagngerrar endurskoðunar fyrir árið 2012 og vísar þessari umræðu til atvinnu- og menningarmálanefndar til upplýsinga.

  1. Specialisterne; Boð til Rangárþings ytra um að gerast stofnfjáraðili að samtökunum, mótt. 10. mars 2011.

Sjálfseignarstofnunin Sérfræðingarnir er félag sem stofnað var í ársbyrjun 2010. Að stofnun þess stóðu nokkrir einstaklingar ásamt Umsjónarfélagi einhverfra á Íslandi. Í samstarfi við Specialisterne í Danmörku er það markmið félagsins að koma af stað starfsemi hérlendis til að nálgast einstaklinga á einhverfurófinu, greina styrkleika þeirra og síðan kenna þeim og þjálfa til virkrar atvinnuþátttöku.

Í erindi stofnunarinnar kemur fram beiðni um að Rangárþing ytra gerist stofnfjáraðili með fjárframlagi sem nemur 50 krónum á hvern íbúa sveitarfélagsins.

Hreppsráð fagnar stofnun samtakanna á Íslandi en sér ekki færi á að verða við beiðni um fjárstuðning að þessu sinni.

  1. Trúnaðarmál.

Fært í trúnaðarmálabók.

Fundargerðir til umsagnar og kynningar:

  1. Stjórnarfundur Sorpstöðvar Suðurlands bs., dags. 5. jan. 2011.
  2. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. feb. 2011.
  3. fundur Barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu, dags. 2. mars 2011.
  4. fundur í stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs., dags. 3. mars 2011.
  5. Samráðsnefnd um Holtamannaafrétt, dags. 3. mars 2011.

Fundargerðin staðfest af hálfu Rangárþings ytra.

  1. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 4. mars 2011.
  2. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands, dags. 7. mars 2011.

Fundaboð, styrkumsóknir og kynningarefni:

  1. Fornleifavernd ríkisins; Haukadalur – Álfaskeið í Rang. ytra – umsögn um deiliskipulag, dags. 10. jan. 2011.
  2. Fornleifavernd ríkisins; Hjarðarbrekka – í Rang. ytra – umsögn um deiliskipulag, dags. 16. feb. 2011
  3. Ásahreppur; Afrit af bréfi til Orkustofnunar vegna beiðni um umsögn um rannsóknaleyfi vegna falls úr Hágöngulóni á Holtamannaafrétti, dags. 18. feb. 2011.
  4. Juris – Almenna lögfræðistofan; Afrit af bréfi til Byggingar- og skipulagsfulltrúa Rangárþings bs. vegna auglýsingar um skipulagsmál í Rangárþingi ytra – 186 2011 Álfaskeið í Haukadal (landnr. 195201), dags. 22. feb. 2011.

Til kynningar.

Í bréfinu kemur fram sá misskilningur, hjá viðkomandi lögmanni eða hans skjólstæðingum, að sveitarfélagið hafi á einhvern hátt tekið þátt í mótun og tilurð þessarar deiliskipulagstillögu sem til umfjöllunar er. Þrátt fyrir þann misskilning er réttilega bent á í bréfinu að við gerð tillögu sem þessarar þurfa höfundar hennar að kynna sín áform til allra sem hagsmuna kunna að eiga. Ef efni athugasemdarinnar er rétt virðist það ekki hafa verið gert fyrr en með auglýsingu frá skipulagsfulltrúa.

  1. Vegagerð; Svarbréf til Jennýjar Ásmundsdóttur vegna erindis um ástand Þingskálavegar, dags. 25. feb. 2011.
  2. Umboðsmaður barna; Niðurskurður sem bitnar á börnum, tölvubréf dags. 2. mars 2011.
  3. Upplýsingar um brúarkosti yfir Þverá við Odda og Hólsá við Djúpós, skv. tölvubréfi frá Vegagerð dags. 4. mars 2011.

Í bréfinu eru skýrslur vegna framkvæmda við brúargerð yfir Þverá við Odda og Hólsá við Djúpós. Í skýrslunum koma fram kostnaðarupplýsingar við mismunandi kosti brúargerðar á stöðunum tveimur.

Hreppsráð óskar eftir að leitað verði til Vegargerðarinnar um fund um málið.

  1. Samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um göngubrú yfir Markarfljót, 432. mál, skv. tölvubréfi dags. 7. mars 2011.
  2. Menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, 533. mál, skv. tölvubréfi dags. 7. mars 2011.
  3. Menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um ljóðakennslu og skólasöng, 284. mál, skv. tölvubréfi dags. 8. mars 2011.
  4. Þjóðskrá Íslands; Þjóðaratkvæðagreiðsla 9. apríl 2011, bréf dags. 9. mars 2011.
  5. Menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um aukna fræðslu í skólum um skaðsemi áfengis, 274. mál, skv. tölvubréfi dags. 11. mars 2011.
  6. Stýrihópur sóknaráætlunar fyrir Suðurland, dags. 11. mars 2011.

Óskað hefur verið eftir því að einn fulltrúi frá hverju aðildarsveitarfélagi SASS taki sæti í stýrihópi ,,Sóknaráætlunar Suðurlands” en auk þessa mun stjórn SASS starfa með hópnum.

Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri, er tilnefndur fyrir hönd Rangárþings ytra í stýrihópinn.

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin yfir og fundi slitið kl. 17.15