15. fundur 10. ágúst 2011

Hreppsráð Rangárþings ytra

 

Fundargerð

 

  1. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu,

miðvikudaginn 10. ágúst 2011, kl. 16.00

 

Mætt eru Steindór Tómasson, varaformaður hreppsráðs, Guðfinna Þorvaldsdóttir, í fjarveru Margrétar Ýrr Sigurgeirsdóttir, formanns hreppsráðs og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson. Að auki Gunnsteinn R. Ómarsson sveitarstjóri, sem ritar fundargerð og Rúnar Guðmundsson skipulags- og byggingarfulltrúi undir liðum 1 og 2.

Steindór Tómasson setur fund og stýrir fundi í fjarveru formanns.

Skipulagsmál og tengd erindi:

  1. Beiðni um landskipti; Litli-Klofi, Rangárþingi ytra, áður tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar 30. júní 2011 og á 22. fundi hreppsnefndar, tl. 7, dags. 7. júlí 2011.

María Antonsdóttir, kt. 240847-3619, óskar eftir leyfi til landskipta á lóð sinni Litla-Klofa, landnr. 205145. Nýja lóðin verður með heitið Litli-Klofi lóð C-2 og verður hún 17,3 ha. að stærð.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við landskiptin, þó með fyrirvara um undirskriftir frá aðliggjandi lóðareigendum.

Fyrir liggja undirskriftir eigenda aðliggjandi lóða og hreppsráð staðfestir því landskiptin.

  1. fundur í Byggingarnefnd Rangárþings bs., dags. 28. júlí 2011.

626-2011 Vatnshólar lóð 3, Rangárþingi ytra – stöðuleyfi fyrir gámi

Andrés Pétur Rúnarsson kt. 180271-4659, Hafurbjarnarstöðum, 245 Sandgerði, sækir um stöðuleyfi fyrir gámi á lóðinni Vatnshólar 3, Rangárþingi ytra lnr. 165175, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Samþykkt að veita stöðuleyfi til 12 mánaða.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

627-2011 Haukadalsmelur, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Páll Halldórsson, kt. 090242-2029, Bakkahjalla 2, 200 Kópavogi, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Lækjargötu 3, Rangárþingi ytra, lnr. 212866, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

628-2011 Króktún, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Halldór Sigfússon, kt. 120937-3329, Móvaði 41, 110 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Króktúni lóð K-3, lnr. 197568, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

629-2011 Stóru-Vellir, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Árni Páll Hafsteinsson kt. 110268-3439, Viðarrima 50, 112 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi í landi Stóru-Valla í Rangárþingi ytra, lnr. 200571, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

630-2011 Þjóðólfshagi , Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir stækkun.

Ólafur Guðmundsson kt. 201248-3379, Drekavöllum 18, 221 Hafnarfirði, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á sumarhúsi að Þjóðólfshaga 32, Rangárþingi ytra, lnr. 165255, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

631-2011 Þjóðólfshagi, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir geymslu.

Ólafur Guðmundsson kt. 201248-3379, Drekavöllum 18, 221 Hafnarfirði, sækir um byggingarleyfi fyrir geymslu að Þjóðólfshaga 32, Rangárþingi ytra, lnr. 165255, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um stærðarmörk geymsluhúsa samkvæmt skipulagi og endanlegt samþykki þess.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

632-2011 Reyðarvatn, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi

Jóhann Sigurðsson kt. 030874-3239, Skeiðarvogi 89, 104 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Reyðarvatni lóð L-7 í Rangárþingi ytra, lnr. 215001, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um hæðarmörk veggja samkvæmt deiliskipulagi.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

633-2011 Árbakki, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi.

Hulda Gústafsdóttir kt. 050366-4489, Árbakka, 851 Hellu, sækir um, f.h eigenda Árbakka lóð 53, byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Árbakka lóð 53 í Rangárþingi ytra, lnr. 214348, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Húsið flutt á staðinn tilbúið.

Samþykkt.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

634-2011 Ketilhúshagi 46, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir geymslu.

Ragnar Pálsson kt. 140368-3509, Heiðvangi 29, 850 Hellu, sækir um byggingarleyfi fyrir geymslu að Ketilhúshaga lóð 46 í Rangárþingi ytra, lnr. 197799, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykk.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

635-2011 Minni-Vellir, Rangárþingi ytra – byggingarleyfi fyrir geymslu.

Ómar Halldórsson kt.220254-2839, Króktúni 8, 860 Hvolsvelli, sækir um byggingarleyfi fyrir vélageymslu/fjárhúsi að Minni-Völlum í Rangárþingi ytra, lnr.177568, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

Hreppsráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar.

Fundargerðin er að öðru leyti til kynningar.

Erindi til umsagnar og afgreiðslu:

  1. Áskorun til sveitarstjórnar vegna Kaupáss, dags. 27. júlí 2011 frá Ernu Sigurðardóttur.

Í erindinu skorar bréfritari á sveitarstjórn að segja upp samningi við Kaupás.

Hreppsráð tekur undir með bréfritara að lægra matvöruverð er hagur íbúa sveitarfélagsins. Hins vegar skal bent á að verslunarrekstur er ekki á höndum sveitarfélaga almennt og er óeðlilegt að sveitarfélagið íhlutist á nokkurn hátt í slíkan rekstur. Suðurlandsvegur 1-3 ehf. er sjálfstætt félag sem á og rekur fasteignir við Suðurlandsveg 1-3 á Hellu. Jafnvel þó svo sveitarfélagið eigi meirihluta þess félags ber að reka það á sjálfstæðan hátt með viðskiptahagsmuni þess að leiðarljósi.

Hreppsráð vísar áskoruninni til stjórnar Suðurlandsvegar 1-3 ehf.

  1. SASS; Samningur á milli Vegagerðarinnar og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga um að samtökin taki að sér að skipuleggja og reka almenningssamgöngur á milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins frá og með næstu ármótum, dags. 3. ágúst 2011.

Hreppsráð staðfestir fyrir hönd Rangárþings ytra samning um almenningssamgöngur milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins sem undirritaður var milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Vegagerðarinnar 26. júlí 2011.

  1. Beiðni Sævars Jónssonar um framlengingu á heimild til nýtingar veiðiréttar í Veiðivötnum fyrir jörðina Merkihvol.

Hreppsráð felur sveitarstjóra að auglýsa netaveiðirétt í Veiðivötnum fyrir jörðina Merkihvol. Áskilja skal rétt til að hafna öllum tilboðum en stefnt skal að því að taka hæsta tilboði. Samningstími skal vera út kjörtímabilið, þ.e. þrjú veiðitímabil . Jafnframt er sveitarstjóra falið að kanna samninga vegna nýtingar veiðiréttar í Veiðivötnum vegna jarðanna Réttarness og Nefsholt 2, vegna eignarhlutar Rangárþings ytra.

  1. Mötuneytismál leikskólans á Hellu, m.t.v. í 22. fund hreppsnefndar, tl. 20, dags. 7. júlí 2011.

Lögð fram greinargerð leikskólastjóra Heklukots, dags. 10. ágúst 2011. Í greinargerðinni eru raktar helstu ástæður fyrir auknu samstarfi við Hjúkrunarheimilið Lund, þ.á.m.:

  1. Með því að kaupa hádegismatinn frá Lundi og gefa börnunum kost á að borða þar t.d. einu sinni í viku, geta ferðir barnanna verið lengri og markvissari, því oft þarf að drífa sig til baka í leikskólann til að ná hádegismatnum þar í tæka tíð.
  2. Samstarf við Lund getur haft jákvæð áhrif á nám og þroska hjá börnunum þar sem þau læra af þeim sem eldri eru, kynnast betur umhverfi, menningu og samfélagi sínu hér á Hellu.
  3. Rannsóknir hafa sýnt að skipulögð samskipti barna og aldraðra auki sjálfstraust og félagsfærni barna og auki þekkingu þeirra og innsýn í heim aldraðra sem þau hefðu annars farið á mis við.
  4. Heimsóknir tengjast vel grænfánaverkefninu því matjurtagarður leikskólans er við Lund.
  5. Lengri samvistir þeirra eldri og yngri eru báðum til yndisauka.

Hreppsráð þakkar leikskólastjóra fyrir greinargerðina og vísar málinu til fræðslunefndar sem skili áliti fyrir næsta fund. Hreppsráð leggur áherslu á að málið verði vel kynnt fyrir foreldrum barna á leikskólanum.

  1. Málefni samfellu vegna Grunnskólans á Hellu.

Hreppsráð telur mikilvægt að samfella í einhverri mynd haldi áfram og að mannafli og fjármagn nýtist sem best. Ljóst er að breytinga er þörf þar sem íþróttafélögunum hefur reynst erfitt að manna stöður þjálfara í samfellunni. Formanni hreppsráðs og sveitarstjóra er er falið að funda með hagsmunaaðilum og móta framtíð samfellunnar og skila áliti til sveitarstjórnar.

  1. Reglur um styrkveitingar til afreksfólks í íþróttum búsett í Rangárþingi ytra.

Hreppsráð samþykkir eftirfarandi reglur um styrkveitingar til ungmenna, 18 ára og yngri, sem búsett eru í Rangárþingi ytra, vegna æfinga- og keppnisferða til útlanda. Styrkir þessir eiga við þegar viðkomandi ungmenni þurfa sjálf að bera hluta eða allan kostnað vegna ferðarinnar.

Æfinga og keppnisferðir með félagsliði og æfingaferðir með landsliði kr. 25.000,-

Keppnisferðir með landsliði á opinber mót landsliða, s.s. riðlakeppnir og lokamót, kr. 50.000,-

Hópar, s.s. kórar og aðrir hópar utan íþróttasambanda auk keppnishópa, hámark kr. 10.000,- á einstakling, þó ekki hærri fjárhæð en 150.000,-.

Sveitarstjóra er veitt heimild til að meta umsóknir og að afgreiða styrki samkvæmt þessum reglum í samræmi við heimildir samþykktrar fjárhagsáætlunar. Styrkur verður aldrei greiddur nema með staðfestingu á þátttöku í viðkomandi í ferðinni, s.s. með framlagningu farseðla og kostnaðarreikninga.

  1. Sumarfrí sveitarstjóra.

Sveitarstjóri, Gunnsteinn R. Ómarsson, ráðgerir að taka sumarorlof á tímabilinu 22. ágúst 2011 til og með 16. september 2011.

  1. Fæðingarorlof Margrétar Ýrr Sigurgeirsdóttur.

Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir hefur óskað eftir fæðingarorlofi frá öllum störfum sveitarstjórnar á tímabilinu 1. september 2011 til og með 31. desember 2011. Ólafur E. Júlíusson mun taka sæti Margrétar í sveitarstjórn á meðan fæðingarorlofi stendur.

  1. Fjármál; Lykiltölur rekstrar 2011 í samanburði við áætlun, undirbúningur að endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 og gerð fjárhagsáætlunar 2012.

Lagðar fram til kynningar rekstrartölur fyrstu 6 mánaða ársins 2011, bornar saman við rauntölur 2010 og áætlun 2011; Staðgreiðsla og launagreiðslur.

Hreppsráð felur sveitarstjóra og launafulltrúa í samvinnu við viðkomandi forstöðumenn að fara yfir forsendur áætlana þeirra stofnana og deilda þar sem veruleg frávik hafa komið fram eftir 7 mánaða rekstur.

Lögð fram vinnuáætlun vegna endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins 2011 og gerð fjárhagsáætlunar 2012.

Fundargerðir til umsagnar og kynningar:

  1. Stjórnarfundur á Lundi, dags. 12. júlí 2011.
  2. Hluthafafundur Suðurlandsvegur 1-3 ehf., dags. 20. júlí 2011.
  3. 10 . fundur stjórnar Suðurlandsvegar 1-3 ehf., dags. 25. júlí 2011.
  4. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu, dags. 26. júlí 2011.
  5. fundur stjórnar Félagsþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu, dags. 29. júlí 2011.
  6. Fundur vegna málefna Suðurlandsvegar 1-3 ehf., dags. 29. júlí 2011.

Fundaboð, styrkumsóknir og kynningarefni:

  1. Drög að reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda, dags. 15. júlí 2011.
  2. Málefni Suðurlandsvegar 1-3 ehf.; Hluthafasamkomulag dags. 24. maí 2011, afsal Suðurlandsvegar 1 dags. 26. maí 2011 og fundargerð hluthafafundar Suðurlandsvegar 1-3 ehf. dags. 26. maí 2011.
  3. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga; Tilkynning um endanlega úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2011, dags. 15. júlí 2011.
  4. Landssamband hestamannafélaga; Umsókn um styrk fyrir Sólrúnu Einarsdóttur vegna þátttöku í unglingamóti FEIF Youth Camp sem haldið var í Skotlandi 23. – 31. júlí 2011, mótt. 22. júlí 2011.

Með tilvísun í nýsamþykktar reglur um styrkveitingar samþykkir hreppsráð að veita styrk að fjárhæð kr. 25.000,-. Skilyrði á greiðslu er staðfesting á þátttöku í umræddu móti.

  1. Ríkisskattstjóri; Álagning opinberra gjalda í sveitarfélaginu 2011 á tekjur ársins 2010 og eignir í lok þess árs, dags. 25. júlí 2011.
  2. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli; Beiðni m umsögn vegna umsóknar hestamannafélagsins Geysis um leyfi fyrir dansleik, dags. 27. júlí 2011.

Hreppsráð hefur þegar veitt athugasemdalausa umsögn í tölvupósti til sveitarstjóra.

  1. UMFÍ; Auglýsing eftir umsóknum um undirbúning og framkvæmd 2. Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður 2012, dags. 27. júlí 2011.

Sveitarstjóra falið að kanna málið og óska eftir, við HSK, að sótt verði um með Hellu í huga sé fjárhagsgrundvöllur fyrir því.

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin yfir og fundi slitið kl. 17.58