Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
- fundur hreppsráðs Rangárþings ytra á kjörtímabilinu 2010 - 2014, haldinn að Suðurlandsvegi 3, Hellu, fimmtudaginn 16. maí 2013, kl. 17:00.
Mætt eru: Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir formaður hreppsráðs, Anna María Kristjánsdóttir og Guðfinna Þorvaldsdóttir. Að auki situr fundinn Drífa Hjartardóttir, sveitarstjóri, sem ritar fundargerð. Klara Viðarsdóttir, aðalbókari, situr fundinn undir lið 2.
- Fundargerðir fastanefnda, annarra nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
1.1 3. fundur stjórnar þjónusturáðs um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi 13.05.13 í sjö liðum.
1.2 4. fundur stjórnar þjónusturáðs um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi 13.05.13 í fjórum liðum.
1.3 Sorpstöð Rangárvallasýslu bs., minnisblað 05.04.13, frá skoðunarferð stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
- Fjárhagsupplýsingar.
Lögð fram yfirlit yfir laun til loka apríl mánaðar ásamt samaburði við fjárhagsáætlun, innheimtar skatttekjur í samanburði við fjárhagsáætlun og lausafjárstöðu.
Klara Viðarsdóttir aðalbókari mætti á fundinn og fór yfir stöðu framangreindra atriða í rekstri sveitarfélagsins.
Sveitarstjóra og formanni hreppsráðs falið að fá skýringar hjá forstöðumönnum stofnana á misræmi raunlauna samanborið við fjárhagsáætlun
- Önnur erindi til umsagnar og afgreiðslu:
3.1 Hekluskógar 07.05.13, umsókn um leyfi til dreyfingar á 25 tonnum af kjötmöli.
Hekluskógar óska eftir heimild til að dreifa 25 tonnum af kjötmjöli á uppgræðslusvæði sunnan Sultartangalóns um miðjan maí. Verkefnið er styrkt af Endurvinnslunni hf.
|
Úrdráttur úr umsókninni: "Er áætlað að dreifa mjölinu í duftformi og nota til þess dráttarvél með stóran skeljasandsdreifara. Verða birkiplöntur gróðursettar á svæðið í kjölfarið. Yrði farið í öllu eftir reglugerð um dreifingu kjölmjöls sjá: Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 108/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis, auk áorðinna breytinga. Rannsóknir Landgræðslu ríkisins síðustu ára sýna að kjötmjöl er að skila ágætum árangri við uppgræðslu á rýru landi og hefur kjötmjöli verið dreift síðustu 5 árin í Þjórsárdal með mjög góðum árangri." |
Samþykkt samhljóða með skilyrðum um að farið verði stranglega eftir tilvísaðri reglugerð.
3.2 Nágrannavarsla. Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna undirbúnings nágrannavörslu á Hellu. Kostnaður vegna fyrirlesara, límmiða og skilta er ca. kr. 350.000 - og mun sú upphæð hugsanlega lækka með aukinni aðkomu tryggingafélags.
Samþykkt að greiða 125.000 kr. fyrir fundarhöld Péturs Guðmundssonar lögreglumanns, sem er hlutur Rangárþings ytra. Sveitarstjóra falið að ræða við VÍS varðandi annan kostnað.
- Fundarboð, umsóknir um styrki og boð um þjónustu:
4.1 Landskerfi bókasafna 10.05.13, aðalfundarboð 24.05.13.
- Annað efni til kynningar:
5.1 Innanríkisráðuneytið 07.05.13, um staðfestingu ársreikninga sveitarfélaga.
5.2 Námsferð starfsmanna Leikskólans Laugalandi 12.05.13.
5.3 Samband íslenskra sveitarfélaga, 13.05.13, niðurstöður umræðuhópa á Landsþingi.
5.4 Umhverfisstofnun 13.05.13, viðmiðunartaxtar ríkisins vegna minkaveiða 01.09.12 - 31.0 8.13.
5.5 Samband ísl. sveitarfélaga 13.05.13, tilnefning í fagráð um umferðaröryggi.
Fundargerðin yfirfarin og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.55