12. fundur 03. apríl 2025 kl. 11:00 - 11:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir formaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Helga Björg Helgadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Tómas Haukur Tómasson embættismaður
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Formaður lagði til að við dagskrána myndi bætast við eitt mál, liður 3, viðhaldsmál á Laugalandi

Það var samþykkt samhljóða.

1.Fundargerðabækur - tillaga um að leggja notkun þeirra niður

2501014

Lagt til að hætt verði að nota fundargerðarbækur til að staðfesta fundarsókn.
Lagt til að hætt verði að nota fundargerðarbók til að staðfesta fundarsókn en haldið verði áfram að nota trúnaðarmálabók.

Samþykkt samhljóða.

2.Ársreikningur Húsakynna 2025

2503093

Ársreikningur Húsakynna fyrir árið 2024 lagður fram til staðfestingar.
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri fór yfir endurskoðaðan ársreikning Húsakynna bs. fyrir árið 2024.

Fjárfesting ársins var 29,8 mkr.

Ársreikningurinn samþykktur samhljóða.

3.Viðhaldsmál á Laugalandi

2504006

Lagt fram minnisblað frá skólastjóra Laugalandsskóla um ýmis viðhaldsverkefni á Laugalandi sem þurfi að skoða.

Stjórn Húsakynna þakkar fyrir ábendingarnar og felur THT að fara það viðhald sem er brýnast í samræmi við fjárhagsáætlanir.

Fundi slitið - kl. 11:45.