1.Rekstraryfirlit jan-sept 2025- Húsakynni bs
2510270
Lagt fram rekstraryfirlit Húsakynna jan-sept 2025
Rekstraryfirlit Húsakynna jan-sept 2025 lagt fram og kynnt.
2.Fjárhagsáætlun Húsakynna 2026
2510271
Lögð fram fjárhagsáætlun Húsakynna fyrir árið 2026.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 lögð fram til umræðu og samþykktar.
Rekstraráætlun gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði um það bil 51,1 mkr sem mætt er með framlögum sveitarfélaganna og leigutekjum.
Gert er ráð fyrir að fjárfesting verði 100 mkr með framlagi Ásahrepps sem fjármagnar hlut Rangárþings ytra í þessari fjárfestingu.
Stjórn Húsakynna leggur til að hönnunarvinna verði hafin sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.

3.Erindi frá Leikskólanum Laugalandi
2510272
Lagt fram erindi frá Leikskólanum Laugalandi, ósk um að Leikskólinn fái úthlutað afgirtu landi Mýrarkots sem afmælisgjöf í tilefni 30 ára afmæli Leikskólans.
Stjórn Húsakynna fagnar erindi Leikskólans á Laugalandi.
Stjórnin samþykkir innsenda ósk og leggur til að kostnaður verði fjármagnaður með fjárfestingaráætlun ársins 2026.
Samþykkt samhljóða.
Stjórnin samþykkir innsenda ósk og leggur til að kostnaður verði fjármagnaður með fjárfestingaráætlun ársins 2026.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 10:00.