1. fundur 01. júlí 2026 kl. 08:15 - 10:30 á Laugalandi
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðmundur Einarsson
  • Tómas Haukur Tómasson
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri Rangárþings ytra
Lagt til að bæta inn einum dagskrárlið, verkaskipting stjórnar og skipan framkvæmdarstjóra. Verður fyrsti liður á dagskrá. Aðrir liðir færast til sem því nemur.

Samþykkt samhljóða.

1.Verkaskipting stjórnar og skipan framkvæmdarstjóra

2606070

Stjórn skiptir með sér verkum og tilnefnir framkvæmdarstjóra.
Lagt til að Eggert Valur Guðmundsson verði formaður og Ísleifur Jónasson verði varaformaður. Jafnframt er lagt til að sveitarstjóri Rangárþings ytra fari með framkvæmdarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

2.Framkvæmdir við húsnæðið að Laugalandi.

2604066

Staða framkvæmda og tímaáætlun við húsnæðið á Laugalandi.
Fundarmenn skoðuðu framkvæmdir og fóru yfir stöðuna á Laugalandi.

Stefnt er að því að Leikskóladeild verði tilbúin til notkunar áður en skóli byrjar. Von er á hurðum og innréttingum í byrjun september og unnið verður að lokafrágangi í framhaldi af því og því verði lokið í október.

Stefnt er að því að skólastofur grunnskólans verði tilbúnar áður en skólastarf hefst en þar er unnið að uppsetningu kerfislofts og loftræstingar, jafnhliða verður skipt um gólfefni á göngum að hluta.

Gluggar verða endurnýjaðir á austurhlið eldri byggingar, gluggar koma um miðjan júlí og stefnt er að því að lokafrágangi verði lokið að innan áður en skóli hefst en frágangur að utan í haust.

Í íþróttahúsi er búið að panta skiptitjald og körfur og stefnt er að uppsetningu í ágúst. Búið er að panta nýja lýsingu í íþróttasal en eftir er að fá staðfestingu á því hvenær hún berst. Uppsetning verður staðfest í framhaldi.

Hafin er vinna við að mála elstu þökin á skólabyggingunni og verður það unnið jafnt og þétt samhliða öðrum framkvæmdum.

Stefnt er að stjórnarfundi áður en nýtt skólaár hefst þar sem fjárhagsleg staða verkefnisins verður tekin fyrir og farið yfir uppfærða tímalínu.

3.Laugalandskóli. Beiðni um kæli- og frystiaðstöðu

2605051

Stjórn Odda bs. tók undir þörf fyrir bætta aðstöðu og vísar málinu til stjórnar Húsakynna bs. til úrvinnslu.
Stjórn tekur undir að nauðsynlegt er að bæta úr kæli- og frystiaðstöðu. Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar falið að skoða mögulegar útfærslur og leggja fram á næsta fundi.

4.Sundlaugin á Laugalandi

2606060

Farið yfir stöðu sundlaugarinnar á Laugalandi.
Fundarmenn kynntu sér aðstöðuna.

Ljóst er að á næstu árum er komið að viðhaldi á sundlauginni og aðstöðunni í kring.

Sundlaugin hefur verið lokuð frá byrjun júní en stefnt er að því að hún opni á ný á næstu dögum.

Fundi slitið - kl. 10:30.