Lagt er fram minnisblað um framkvæmdir á Laugalandi, dags. 31. ágúst 2026, þar sem gerð er grein fyrir framvindu, umfangi og áætluðum heildarkostnaði viðhalds- og endurbótaframkvæmda á árinu 2026. Fyrir liggur að heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 240 m.kr. og fer um 100 m.kr. fram úr upphaflegri fjárfestingar- og viðhaldsáætlun ársins.
Með vísan til 2. mgr. 6. gr. samþykkta fyrir byggðasamlagið Húsakynni bs. samþykkir stjórn Húsakynna bs. að óska eftir viðbótarfjármagni með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 100 m.kr. vegna framkvæmda á Laugalandi. Stjórnin vísar viðaukabeiðni til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga, Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Stjórn leggur áherslu á að við verklok liggi fyrir sundurliðað kostnaðaruppgjör vegna einstakra verkþátta framkvæmdarinnar.
Stjórn Húsakynna bs. áréttar jafnframt mikilvægi þess að strax fari af stað vinna við að móta og skýra framtíðarsýn fyrir Laugaland í samvinnu við notendur, svo tryggt sé að framtíðarframkvæmdir á svæðinu séu vel undirbúnar og haldist innan samþykktra áætlana.
Sveitarstjóra Rangárþings ytra og skrifstofustjóra Ásahrepps falið að að afla gagna fyrir næsta fund.
Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 28. september kl. 08:15.

Samþykkt samhljóða.