4. fundur 05. október 2026 kl. 10:15 - 12:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðmundur Einarsson
  • Tómas Haukur Tómasson
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri Rangárþings ytra

1.Rekstraryfirlit 2026

Málsnúmer 2608037Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir fór yfir rekstraryfirlit janúar til september 2026.

Lagt fram til kynningar.

2.Framtíðarsýn viðhalds og endurbóta

Málsnúmer 2604066Vakta málsnúmer

Í framhaldi af bókun stjórnar Húsakynna bs. frá 8. september 2026 er lögð fram skýrsla um viðhald og endurbætur skóla- og íþróttamannvirkja að Laugalandi.

Í skýrslunni eru teknar saman þarfir fyrir viðhald, öryggisúrbætur og framtíðaruppbyggingu ásamt tillögum að áfangaskiptingu. Skýrslan er lögð fram til umræðu og ákvörðunar stjórnar um forgangsröðun verkefna og næstu skref.

Lögð verður áhersla á fyrir árið 2027 að ljúka þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar og undirbúnar hafa verið s.s. frágangur í leikskólanum á Laugalandi, skólastofur í grunnskóla, gluggaskipti og möguleg klæðning í elsta hluta grunnskóla, gluggaskipti og klæðning á skólastjórahúsi, frágangur í íþróttasal og forhitara í sundlaug.

Forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs er falið að kostnaðarmeta þau verkefni sem stjórn leggur til að ráðist verði í á árinu 2027 og leggja fyrir stjórn til grundvallar fjárhagsáætlunar ársins 2027.

Einnig skal kalla eftir tilboði frá ARKÍS í uppfærslu á húsrýmisáætlun þar sem skólalóðin er einnig tekin fyrir miðað við breyttar forsendur. Þar þarf að áfangaskipta verkþáttum og kostnaðargreina svo hægt sé að leggja fram áætlun til nokkurra ára.

Sveitarstjóra Rangárþings ytra og skrifstofustjóra Ásahrepps er falið, í samstarfi við Reyni Jónsson og forstöðumann eigna- og framkvæmdasviðs, að þróa skýrsluna áfram og uppfæra hana í samræmi við umræður og ákvarðanir stjórnar á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

3.Skoðunarskýrsla - Byggðasamlagið Oddi, Leikskólinn Laugalandi

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.